Bjarmi - 01.04.1996, Page 20
UM VÍÐA VERÖLD
Biblían á Internetinu
LAOS:
Kreppt að kristnum mönnum
Kristnir menn eru í minnihluta í ríkinu Laos í Austur-Asíu. Peir búa nú við
meiri þrengingar en nokkru sinni fyrr, segir í erlendum blöðum. Reynt er að
neyða þá til að afneita trúnni og láta af hendi bæði fé, sem safnast hefur til
kristilegs starfs, og kristilegar bækur.
Eitt héraðið í landinu heitir Sayabuly. Þar hefur fjórum af hverjum tíu
kirkjum verið lokað og margir kristnir menn hafa verið teknir höndum. Því er
haldið fram að þeir séu óvinir þjóðarinnar og byltingarinnar. Ef þeir fylgja ekki
kommúnistaflokknum að máli eru þeir látnir í endurhæfingarbúðir. Þeim er gert
að afhenda öll kristileg rit og kírkjum er breytt í skóla.
Sagt er frá 99 kristnum Laosmönnum sem vildu ekki afneita trúnni. Var þeim
þá bannað að dreifa kristilegu lesefni, halda guðsþjónustur og taka á móti
öðrum kristnum mönnum.
Biblíufélög notfæra sér í vaxandi mæli upplýsingatækni
nútímans í þeim tilgangi að koma ritum Biblíunnar til fólks
sem ekki er vant að lesa í henni. New International Version
af Biblíunni er nú þegar aðgengileg á Intemetinu svokallaða
fyrir allar þær miljónir sem geta notfært sér það. Leiðtogar í
Biblíufélögum líta á Internetið sem mikilvægt tækifæri til að
ná með texta Biblíunnar til fólks sem ekki er líklegt til að lesa
hana af bók. Þá er í vaxandi mæli unnt að fá texta Biblíunnar
í tölvutæku formi með leitarforritum, m.a. á íslensku.
Fleira á ,,netinu(í
Hópur rétttrúnaðargyðinga hefur sett helga texta gyðinga á
Internetið samkvæmt upplýsingum frá Hebreska
háskólanum í Jerúsalem. Með textunum fylgja myndir. Um
er að ræða Tóra (Mósebækurnar fimm), ýmsa aðra texta
Gamla testamentisins og Talmud. Unnt er að nálgast textana
bæði á hebresku og arameísku.
Englar í tísku
í mörg ár litu margir á engla sem tilbúning eða barnalega ímyndun. Nú hefur
þetta breyst og englar koma í vaxandi mæli fyrir í bókmenntum, kvikmyndum,
tónlist, viðskiptalífi og í vitund fólks. í nýlegri þýskri könnun kom í ljós að 55%
töldu að englar væru einungis trúarlegt tákn en 48% töldu að þeir ættu sér
verndarengil.
Þýskur félagsfræðingur, Stefan Kaempf, telur að það sé að litlu leyti fyrir áhrif
frá kirkjunni að englar virðist vera „í tísku“. Trú á engla fyrirfinnist í mörgum
trúarbrögðum allt frá trú forngrikkja til islams og nýaldarhyggju.
Heimasíða Lausanne-
h reyfingarinnar
Lausanne-hreyfingin hefur fengið nýtt heimilisfang eða
netfang eins og það er kallað. Nú geta þeir sem hafa
aðgang að Internetinu komist í samband við
hreyfinguna með því að slá inn
lit íp.V/www.goshen. net. lausanne.
„Okkur finnst mikilvægt að gera upplýsingar
um Lausanne-hreyfinguna og útbreiðslu
fagnaðarerindisins aðgengilegar fyrir ört
vaxandi hóp þeirra sem nota Internetið,“
segir Arne H. Fjelsted, starfsmaður hjá
Lausannehreyfingunni.
Upplýsingarnar frá Lausanne-hreyfing-
unni er að finna á bandarísku, kristilegu
upplýsinganeti sem kallast Goshen-net (Gósen-
netið). Stefnt er að því að þær verði brátt aðgengilegar á
ýmsum öðrum tungumálum en ensku. Meðal þess sem um
er að ræða eru Lausanne-sáttmálinn og Manilla-yfirlýsingin,
hvort tveggja mikilvægar samþykktir og yfirlýsingar
heyfingarinnar.
20