Bjarmi - 01.04.1996, Síða 23
KRISTNIBOÐ
í bréfinu frá Guðlaugi er líka slegið á létta strengi.
Glóðarsteikt rottulæri og músalundir eru meðal þess sem
fólkið leggur sér til munns, reyndar ekki kristniboðarnir,
segir hann, heldur svonefndir Múgidsjímenn sem eru einn
af mörgum litlum þjóðflokkum í Suður—Ómósýslu.
Annars eru matarréttirnir margvíslegir. Ofangreindir
Múgidsjímenn lifa mest á músum og rottum. Búmemenn
stunda krókódílaveiðar í skjóli nætur. Þeim þykir best
hvítt kjötið af miðlungsstórum krókódílum. Bragðið verður
lakara af eldri skepnum. Nokkru sunnar, meðal Dasenetsj-
manna, eru asnar matreiddir og þykir engum asnalegt!
Norðar búa svo Múrsímenn. Þar þóttu herramenn
herramannsmatur. Þó er sagt að mannát sé aflagt nú til
dags.
Það skiptir mestu máli, segir Guðlaugur, að „ekki er
Guðs ríki matur og drykkur heldur réttlæti, friður og
fögnuður í heilögum anda“ (Róm. 14,17). „Maturinn er
fyrir magann og maginn fyrir matinn en Guð mun hvort
tveggja að engu gjöra“ (1. Kor. 6,13). „Maturinn mun ekki
gjöra oss þóknanlega Guði“ (1. Kor. 8,8).
Siðir og venjur þjóðflokkanna koma okkur oft einkenni-
lega fyrir sjónir (eða munn í sumum tilvikum) og gera það
að verkum að okkur finnst vera svo mikið bil milli þeirra
og okkar. En Guð elskar þetta fólk jafnt og okkur.
Oft kostar það svolítið að vinna meðal þeirra. Þarna er
heitt i veðri, stundum 42 stiga hiti í skugganum. Vindur-
inn þyrlar upp sandi og mold og fyllir vitin, og allt innan
dyra verður þakið brúnu ryki. Fötin eru étin upp af
iðjusömum smákvikindum sem halda til í skúffum og
hillum. Regnvatn flæðir inn í tjaldið svo að dýnan verður
gegnsósa af brúnu vatni. Það er erfitt að finna þurran blett
í þreifandi myrkrinu þegar rigningin bylur á tjald-
dúknum.
Langar göngur í sólarhitanum yfir endalausa sléttuna
valda sárum á fótum. Ekki hjálpar að fara úr skónum sem
særa því að sandurinn er glóandi heitur. Loks þegar komið
er til mannabyggða er fólki boðið eitthvað ókennilegt til
matar.
En það er einkennilegt hverju má venjast. Sagt er að
kristniboðarnir 1 Bóranahéraði austan Konsó séu orðnir
vanir súrmjólkinni sem borin er fram í krukkum. Að vísu
svelgdist þeim á fyrstu árin þegar þeir sáu kakkalakka í
mjólkinni og misstu matarlystina. Seinna tíndu þeir bara
kakkalakkana úr og héldu áfram að drekka. Eftir annað
starfstímabilið þótti þeim ekki mikið þótt þeir fyndu
kakkalakka með mjólkinni sem þeir renndu niður. Að
loknu fjórða timabili þeirra var svo komið að sæju þeir
ekki kakkalakka í mjólkinni þá leituðu þeir að þeim á
gólfinu og bættu þeim út í!
KIRjyAn, VEISLAn oc
AÐ LOKym VEL VALÍn
ORJ> tÍL FERJTIÍnCAR^
BARJlSÍnS.
LIFAI1DI ORJ>
Bókin sem selst hefur í milljónum eintaka um allan heim er nú fáanleg á
íslensku. Lifandi orð er Nýja testamentið og Sálmarnir endursagðir á daglegu
máli. Bókin auðveldar lesandanum að skilja og setja I samhengi orð Biblíunnar
og er því tilvalin gjöf handa fermingarbarninu.
LÍFAHDÍ
ORf>
Biblían á daglegu máli
Dreifing sími
552 5155
dassl kynn iráni ið ykkur i framundan!
• Biblíuskólinn
# við Holtaveg
23