Bjarmi - 01.04.1996, Síða 27
2) Línum í magaveggjum og gori dýra, sem fórnað er,
svo sem kindum, geitum og kúm. Lesið er á sama hátt
úr línunum og innbyrðis afstöðu þeirra.
3) Innyflum þessarra sömu dýra.
4) Lifrum kinda, geita eða hænsna.
Oft segir sjamaninn hvað gera skuli til að sjúkdómur
geti læknast, eða hvernig binda megi enda á óáran eða
óhamingju. Hann er þá eins konar læknir, enda er orðið
sjaman þýtt á íslensku sem töfralæknir. En þetta hugtak er
miklu víðtækara. Sjamanismi á líka við um fólk, sem
bendlað er við galdra, það er fólk, sem talið er valda
áföllum í lífi annarra, viljandi eða óviljandi. Þetta fólk er
oft ásakað um andfélagslega hegðun svo sem mannát,
kynmök við látna, leynifundi, djöfladýrkun, manndráp
með seiði o.fl. Slíkt fólk er stundum talið nytsamlegt,
þegar það gerir að engu seið annarra galdramanna eða
kemur upp um þá. í flestum samfélögum Afríku er
skylda að drepa galdramenn, sem stunda andfélagslega
iðju, komist upp um þá.
Sjamanismi er mest áberandi í einföldum samfélögum
manna. Sjaman er einstaklingshyggjumaður, sem oft fer
eigin leiðir, er falla illa að skipulagi samfélagsins.
Frelsi kristins manns
Af því, sem sagt hefur um sjamanisma undrast maður að
til skuli vera fólk á íslandi, sem telur að það hafi eitthvað
þangað að sækja. Þetta er ekkert annað en ævaforn heiðni,
þar sem fulltingi anda og ópersónulegra afla er leitað.
Heiðingjar í öðrum hlutum heimsins þakka Guði fyrir að
losna undan áþján illra anda og fyrir frelsið, sem þeir hafa
hlotið í Jesú Kristi. Kristnir menn fela framtíð sína Guði á
vald. Þetta á einnig við gagnvart þjáningunni. Biblían
gerir ráð fyrir að illir andar séu veruleiki, en varar okkur
við því að ganga til frétta við þá eða hafa samband við þá
(5. Mós. 18,9-14; 3. Mós. 19,26b,31). Það er ekki að
ástæðulausu. Jesús gefur fullkomið frelsi. Ekki er frelsi í
neinum öðrum.
HVAÐ ER ...?
PASSÍUSÁLMA
förunautar til framtíðar
Ómetanlegar
fermingargjafir
á hóflegu verði
Hiö íilenska Biblíufélag,
Hallgrímskirkju
Opiö alla virka daga frú 10-12.30
Sími 551-7805
STEINAR WAAGE 'Toppskórinn
SKÓVERSLUN A 11 VIÐINGÓLFSTORG
27