Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.2002, Page 15

Bjarmi - 01.12.2002, Page 15
Færeyska sjómannaheimilió vió Skipholt í Reykjavík. „Það er Heimatrúboóiö í Færeyjum sem rekur húsiö, þ.e.a.s. Sjómannatrúboðió, sem er sjálfstæó eining innan Heimatrú- boósins. Það er reyndar Sjómannatrúboó- ið sem á húsió og sér um rekstur þess.“ Þegar starf Sjómannatrúboósins hófst hér, var fljótlega ráóist í aó byggja hér hús og árið 1958 var Færeyska sjómannaheim- ilið við Skúlagötu, eða Sjómannastofan eins og Færeyingar kölluðu húsið, formlega tekió í notkun. Einn af frumkvöólum sjó- mannastarfsins hér var Jóhann Olsen. Hann kom hingað með fjölskyldu sína og dvaldi hér stóran hluta ársins í ein 30 ár; sum barna hans fæddust reyndar hér á landi. Eftir aó sjómannastofan var tekin í notkun bjójóhann ásamt fjölskyldu sinni í húsinu. Þau hjónin fylgdust meó færeysk- um bátum og voru sjómcnnum til aðstoð- ar. Þau fóru í bátana og voru með andakt- ir og síóan meó samkomur á sunnudögum í sjómannaheimilinu. Þarna komu margir færeyskir sjómenn og reyndar líka þó nokk- uð af íslenskum sjómönnum. Það má því vel ímynda sér að heimili trúboóans hafi verið eins og umferóarmiðstöð. Um þetta leyti, eða í lok sjötta áratugarins, voru hér um 1300-1500 færeyskir sjómenn í kring- um landió, þannig að þarna var um tals- veróan fjölda að ræða. Sumir þessara manna settust síóan hér að og einnig hafði nokkuó af Færeyingum komió hingaó í kringum síóari heimsstyrjöldina í leit að vinnu, þegar meira var um vinnu hér en í Færeyjum. Um tíma voru því Færeyingafé- lög starfandi víðsvegar um land og eru sum þeirra enn starfrækt. Fljótlega eftir að sjómannatrúboðió hófst hér, fór af staó félagsskapur sem kall- ast „kvinnaringurin" , eða kvennahringur- inn. Þetta eru hópar af konum, - í Færeyj- um eru slíkir hópar nánast í hverju einasta þorpi, - sem hafa þaó aó markmiði aó styója vió sjómannatrúboðió. Kvenna- hringurinn hér hefur komið saman í gegn- um tíóina og verió meó samverustundir. I Færeyjum útbúa þessir hópar yfirleitt jóla- pakka og senda í þau skip sem eru aö heim- an um jólin og einnig eru hóparnir með fjáraflanir ýmiss konar. Það fór kvenna- hringurinn einnig aó gera hér; þær voru með kaffisölur og héldu basar svipað og þekkist hjá ýmsum öðrum samtökum. Þeim tókst aó safna svolitlum peningum, þannig aó þegar sú hugmynd kom að byggja sjómannagistihús, eða fara úr stof- unni yfir í húsió eins og þeir kölluðu þaó, var hægt að hefja vinnu við bygginguna. Menn notuðu síóan ýmsar leiðir til fjár- öflunar, m.a. voru seldir happdrættismiðar og voru Jóhann Olsen og Jens Pétursson einna duglegastir að fara um landið og selja mióa. Þaó er gaman aó heyra Eirnýju segja frá því hvernig þeir gengu í flest hús á landinu og jafnvel þó fólk vildi ekki kaupa mióa, þá voru þeir meó fjölritaóa miða með Biblíuversum, sem þeir gáfu fólki og ræddu við fólk um trúna. Þaó er því Ijóst aó þó aó tilgangur feróa þeirra hafi verið að selja happdrættismiða til fjáröflunar fýr- ir byggingu sjómannaheimilisins, þá fóru þeir ekki án þess aó skilja eftir vitnisburð um Drottinjesú Krist. Eftir því sem trúuðum Færeyingum fjölg- aði hér, óx sá draumur á meóal þeirra aó byggja hér gistihús. Sjómannastofan var orðin of lítil til samkomuhalds og þar var heldur ekki gistiaóstaóa, þó svo að fólk fengi oft að gista þar, jafnvel á dýnum á gólfinu. Það má segja aó upp úr 1 970 hafi verið farió aó vinna að því að gera þennan 15

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.