Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.2002, Page 29

Bjarmi - 01.12.2002, Page 29
Jólahugvekja Hann bjó meó oss Katrín Þ. Guðlaugsdóttir „í upphafi vár Oróió, og Oróió var hjá Guði, og Oróið var Guó. Hann var í upp- hafi hjá Guói. Allir hlutir uróu fyrir hann, án hans varó ekki neitt, sem til er. í hon- um var líf, og lífió var Ijós mannanna. Ljósió skín í myrkrinu og myrkrió tók ekki á móti því.” „Og Oróió varó hold, hann bjó meó oss, fullur náóar og sannleika...” Jóh. 1, 1-5,14. Guð gjörði heiminn og allt sem í honum er. En frá því sköpunin gerói uppreisn gegn Guði hvfldi myrkur syndar og dauða yfir mannheimi, því mennirnir elskuðu myrkrið meira en Ijósið. Þó skinu fyrirheit Guðs um frelsara eins og vonarstjörnur á himni og tendruóu trú feðranna gegnum aldir, með- an þeir biðu þess að fyrirheitin rættust. Biðin var löng og ströng, og lýður Guðs var óþreyjufullur á stundum og óhlýðinn, og fjölmargir heltust úr lestinni. En þeir sem treystu Drottni og varðveittu trúna sann- reyndu að orð hans voru áreiðanleg, undur og stórmerki fýlgdu þeim. Vitnisburóur þeirra hljómar sterkur og fagnandi í 23. sálmi Davíðs, ógleymanlegum pílagríms- söng kynslóóanna. Þessi huggunarríki hiróissálmur er ein yndislegasta trúarjátn- ing allra tíma. Þeir tilheyróu Guðs útvöldu þessir sem gættu hjarðar sinnar á Bet- lehemsvöllum umrædda nótt, og áreiðan- lega hafa þeir oft setið í nióamyrkri vió eld- inn og sungið þennan sálm sér til hugar- hægóar. Þessi nótt var varla öðru vísi en aðrar, fyrr en skyndilega aó himinninn opnaöist yfir þeim og engill Drottins stóó hjá þeim. Þeir uróu skelfingu lostnir, en engillinn sagði við þá: „Verió óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ung- barn reifað og lagt íjötu.” Við getum reynt aó ímynda okkur hugarástand fjárhiró- anna, undrun og eftirvæntingu. Stóra stundin var runnin upp, bióin á enda, fyrir- heitið að rætast. Hver skyldi hugur okkar vera á aóventu? Hefur heimshyggja og óðagot rænt okkur helgi jólanna, svo vió höfum týnt tilgangi jólahaldsins? Og í stað þess að frióur jól- anna auógi andann og efli trúna, skilja þau eftir uppgefinn anda og örþreyttan líkama? Hirðarnir skunduðu hiklaust af stað og fundu allt eins og þeim hafói verið sagt. Eftir fagnaðarstund í fjárhúsinu snéru þeir lofsyngjandi aftur út á vellina. Síðan hafa fjölmargir farið að dæmi þeirra, beygt kné vió jötuna lágu og staðið á fætur með lof- söng í hug og hjarta. „Orðið varó hold”, þar lá Jesús í jötu. Flestar myndir af ungbarninu á jólanótt sýna hann með útbreiddan faóm. Það undirstrikar líf hans og starf, hvernig „hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika”. Vió syngjum um þennan opna faðm Jesú mót syndugum manni: ,Já, útbreiddur faðmur er yfirskrift góó, á allt frá hans jötu uns gaf hann sitt blóó.” Guð birti okkur kærleika sinn í Kristijesú, Orðinu sem varð hold og bar synd heimsins. Hann var út- genginn frá föðurnum og til hans átti hann aó fara aftur um þyrnum stráóa braut. Skugga krossins bar fljótt á líf Jesú. Heimsdrottnar myrkursins skynjuðu þegar í hinum nýfædda frelsara ógnun vió veldi sitt. En yfir krossinum blikar stjarna eilífr- ar vonar sem Guó hefur tendrað. í skini hennar sjáum við aó „krossinn er auóur, gröfin er tóm”, því Jesús er upprisinn og farinn til föðurins á himnum, þar sem hann nú lifir í dýró, umkringdur himneskum herskörum. Þangað stefna líka pílagrímarnir á göngu sinni. Yfir þeim skína stjörnur fyrirheita og vonarríkrar heimkomu. Þeir hafa litió barnið íjötunni, Guðsson- inn, og leita skjóls við kross hans. Þess vegna njóta þeir blessunar og hljóta umbun jafnt í gleði og þraut. „Ó, hversu sæll er hópur sá, sem Herrann kannast við, ef frelsara sinn æ hann á, hann æ á nógan frið.” En er ég, Drottinn, einn af þeim? Jesús svarar: „Barnió mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.” Má ég þá kallast þinn? Og Orðið svarar: „Öllum þeim sem tóku vió honum gaf hann rétt til að veróa Guðs börn, þeim sem trúa á nafn hans.” Guði sé lof og þökk. Orð hans er áreið- anlegt. Gleðileg jól í nafni Guðs föóur, son- ar og heilags anda. Katrín Þ. Guðlaugsdáttir er rítarí ogstarfaði um árabil sem kristniboði í Eþíópíu.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.