Bjarmi - 01.12.2002, Side 32
Heimildir:
Árni Bjömsson:Jól á íslandi (1963).
Árni Björnsson: Saga daganna (1993).
Jón G. Friðjónsson: Mergurinn málsins
(1993).
Karl Sigurbjömsson: Táknmál trúarinnar
(1993).
stæóingum smákökubox eóa jólakökuhleif.
Ekki er laust við að sú hugsun leiti á að eitt-
hvaó af þeirri ofgnótt innkaupa meðal-
heimilis fýrir jólin sem í dag tíðkast mætti
miðla með öórum sem minna eiga, því
kristilegt innihald jólagjafanna er augljóst:
Vió minnumst á jólum gjafar Guðs hinnar
mestu, komu sonar hans í heiminn, og vilj-
um af mætti endurspegla kærleika hans til
okkar með því að gefa og gleðja fólkið í
kringum okkur.
,JESÚ, ÞÚ ERT VORT JÓLATRÉ..."
Jólarósin rauóa er tákn Krists, kærleika
hans og fórnar, eins og við syngjum um í
sálmunum: Það aldin út er sprungið og Hin
fegursta rósin er fundin. Rauð rós er líka
tákn píslarvættis, en ilmur hennar og feg-
urð minnir á þá dýró Paradísar, sem í vænd-
um er fyrir hin trúuðu. Hvít rós táknar
hreinleika og gleóina sem Kristur gefur, eins
og jólin sjálf.14 Hvítur er litur jólahátíðar-
innar eins og Boóunardags Maríu, páska,
gleóidaga og uppstigningardags, auk allra
heilagra messu, og endurspeglast hann í
skírnarklæðum, fermingarkyrtlum, brúðar-
kjól og líkklæðum. Hvítur er litur hreinleik-
ans, réttlætisins og sakleysisins, hins eilífa
Ijóss og gleði í Kristi.
Möndlugrautur á sér uppruna í jóla-
grautnum gamla, hinum hnausþykka
grjónagraut með rúsinum og rjóma.
Möndluviðurinn ertákn guðlegrar náóar og
segir frá því í 4. Mósebók 17.1-8 hvernig
stafur Arons blómgaóist og bar möndlur.
Mandlan varó síðar tákn Maríu guósmóó-
ur. Hún, eins og mandlan í grautnum, fær-
ir okkur gjöf, þá dýrustu, Guðs náð holdi
klædda.15
Jólatré urðu ekki algeng í Noróur-Evr-
ópu fýrr en um miðja 19. öld, en fyrstu
heimildir um jólatré eru frá Þýskalandi í
upphafi 1 7. aldar. Hér á Islandi hafa jólatré
tíókast í rúm eitt hundraó ár. Aó vísu ekki
grenitré, eins og nú er, heldur staur á fæti
með lyngumvöfðum örmum ogjólakertum
á. Eins og í svo mörgu öðru voru það stríðs-
árin síðari sem fluttu með sérjólatré að er-
lendri fýrirmynd til almennrar útbreióslu.16
I bók sinni Táknmál trúarinnar tilgrein-
ir Karl Sigurbjörnsson, þá sóknarprestur í
Hallgrímskirkju, lífsins tré í Paradís í 1.
Mós. 2.9 sem fýrirmynd jólatrésins. Mynd-
in afjesú sem hinu græna tré í Lúk. 23.28-
31 og líkingin afvínvióinum oggreinunum,
sem lesa má um í 15. kapítula Jóhannesar-
guóspjalls eru einnig nærtækar.17 Hið sí-
græna tré tákni eilífðina í sígrósku sinni og
vonina meó hinum græna lit. Jólatréð er því
mynd eilífðarvonarinnar og bendir ájesúm
Krist sjálfan, Guó í garði, gefandi góð jól.
1 Þetta orðatiltæki merkir: Þá væri vel; ósk-
andi væri. Önnur orðatiltæki, tengd jólum,
eru: Þá eru mín jól, sem notað er um eitt-
hvað sem vekur gleði, og: Það eru ekki
alltaf jólin/Ekki varajól til páska í merking-
unni að lífið sé ekki ávallt leikur (sbr.
danska jólavísu: Nu erdetjul igen/ogjulen
varer helt til páske/nej, det er ikke sandt/for
ind imellem kommer faste). SjáJGF 1993.
2 Lat. Adventus Domini, koma Drottins.
3 Sjá kaflana um liti og táknmál kirkjuársins í
Táknmál trúarinnar (KS 1993, bls. 85-94).
4 I austurkirkjunni er jóladagur 6. janúar. Sjá
skýringar í ÁB 1993, bls. 326-329.
5 Sbr. jólasálm sr. Valdimars Briem nr. 93 í
sálmabók 1945.
6 Stjarnan minnir á mátt Guós yfir náttúru-
öflunum, því á fjórða degi kallaði Skapar-
inn fram Ijósin á festingu himinsins, „að
þau greini dag frá nóttu og séu til tákns og
til að marka tíðir, daga og ár...“ (1. Mós.
1.14). Fimmarma stjarnan er tákn Maríu
guðsmóóur, en til hennar lítum við sem
leióarstjörnu úr djúpi syndarinnar. KS
1993, bls. 58.
7 Sami, bls. 52.
8 Sami, bls. 84.
9 Sjá umfjöllun í ÁB 1993, bls. 290-296. í \
sama riti er einnig að finna góðar upplýs-
ingar um Lúsíumessu, sem er 13. des. (bls.
297-301) og siði tengda Þorláksmessu (bls.
302-313).
10 ÍÁB 1993, bls. 372.
11 ÁB 1963, bls. 51 og 83-85. Jólakötturinn
hefurverið hluti af hræðsluáróðri til að
halda börnum og vinnufólki að störfum á
jólaföstunni. Sjá nánar í ÁB 1993, bls. 368-
372.
12 Sjá um imbrudaga í ÁB 1993, bls. 115-122.
Næstu imbrudagar hefjast miðvikud. 18.
des.
13 ÍÁB 1963, bls. 85.
14 Hún er einnig tákn Maríu guðsmóður, rósar
himnanna. Sbr. KS 1993, bls. 77-78 og 87.
15 „Eins og kjarni möndlunnar myndast í skel-
inni án þess að hún skaddist, þannig bar
mærin Guðs son“ (KS 1993, bls. 56, sjá
einnig bls. 77).
16 Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur, telur
mega rekja elstu rætur þessa siðar til ein-
hvers konar trjádýrkunar og vísar bæði í
rómverska nýárssiði og norræna goðafræði.
Þá nefnir hann hinar kristnu hugmyndir um
skilningstré góðs og ills, sem hafi runnið
saman vió hinar heiðnu. Sama rit, bls. 85- y
88.
17 KS 1993, bls. 86.
PAKISTAN
Kristnir vara vió ógnarstjórn
ef Bandaríkin ráóast á Irak
Kristinn áhrifamaður í Pakistan hefur varað vió því að árás Bandaríkjamanna á Irak
gæti valdið alvarlegri aukningu ofsókna á hendur kristnu fólki í Pakistan.
Cecil Caudry sem fer fýrir All Pakistan Minorities Alliance sagöi: „Eg sé fýrir mér
skelfilega atburói ef innrás veróurgeró í Irak, árásir á kirkjur okkar ogjafnvel heim-
ili. Öfgamenn munu taka sérhverja árás á Irak sem
tákn um stríð kristinna gegn Islam.”
Caudry fékk heióursmerki sem orrustuflugmaóur í
styrjöldunum vió Indland og er lykilmaður og krist-
inn leiðtogi og talsmaóur réttinda minnihlutahópa í
Pakistan.
Hann hefur verið verndari kirkjunnar eftir árásirn-
ar 11. september 2001 og segir: „Kirkjurnar eru fullar sem aldrei fýrr og kristió fólk
hefur mikla trú á leiötogum sínum. Við höfum lagt mikió á okkur til aö vernda þaó
en ég vil ekki hafa vopnaða lögreglu fýrir utan kirkjurnar. Það vekur ótta í huga
fólks. Óttinn er til staðar en hann hindrar fólk ekki í að koma og lofa Guó. Það sýn-
ir trúarstyrk þess.”
(ASSIST fréttastofan)
um '7Z-T-
vwa'
—iverold
Sr. María Agústsdóttir er hémðsprestur í
Reykjdvíkurprófdstsdœmi Vestrd.
32