Bjarmi - 01.12.2002, Síða 33
Hljómar kynna:
Hrönn Svansdóttir
Eftirvænting lá í loftinu þegar beðið var
eftir því aó Michael W. Smith stigi á
svið og flytti lokaatriói föstudagskvölds á
Creation hátíðinni. A augabragði breyttist
myrkvað sviðið í Ijósahaf og tónlistin
streymdi fram. Þar var vel skipuó hljóm-
sveit og Michael í fararbroddi. En í stað
hefbundinna tónleika hófst lofgjörðar-
stund þar sem þúsundir viðstaddra urðu
þátttakendur í stað áhorfenda. Þarna var
Michael W. Smith að flytja lög sem eru
komin út á DVD-disknum Worship.
Michael Whitaker Smith fæddist 7.
október 1957 í Kenova í Vestur-Virginíu.
Hann ólst upp hjá foreldrum sínum, Paul
og Barböru Smith ásamt Kim, yngri systur
sinni. Uppvaxtarárin voru eins og hjá
mörgum öórum, hann spilaði mikið hafna-
bolta, tók þátt í kirkjustarfi meó fjölskyld-
unni og spilaði á píanó. Hins vegar samdi
hann fyrsta lagið sitt aðeins fimm ára
gamall og ákvað tíu ára aó vera kristinn
maður. Hann dreymdi um að veróa at-
vinnumaður í hafnabolta en önnur leið
beió hans. Hann hóf nám í Marshall Uni-
versity en hætti á fyrstu önn og flutti til
Nashville í þeirri von um aó veróa atvinnu-
tónlistarmaður. Þetta var árið 1979 og
Michael 22 ára. Hann var farinn að neyta
fíkniefna og jókst neyslan mikið eftir að
hann flutti frá foreldrum sínum sem höfðu
sýnt mikið umburðarlyndi og kærleika.
Þessu tímabili lauk þegar Michael á barmi
taugaáfalls hrópaði til Guðs og baó um
hjálp. Eftir það náði hann sér vel á strik.
Þegar hann var hljómborðsleikari í
hljómsveitinni „Higher Ground“ var hon-
um boðió starf sem lagahöfundur fyrir út-
gáfufyrirtækió „Paragon/Benson". Þetta
var það besta sem hafði gerst í lífi hans og
hann lýsir því sjálfur svona: „Ég hélt að ég
hefði d áið og farið til himna.“ Hann fékk
200 dollara í laun á viku fyrir aó gera það
sem honum fannst skemmtilegast aó gera,
þurfti ekki lengur að vinna sem þjónn á
1988
1989
1990
1992:
1993:
1999:
2000:
2001
2002
veitingahúsi eða
við garðyrkju-
störf. Það var á
þessum tíma
sem hann kynnt-
ist eiginkonu
sinni, Deborh Kay - hm
Davis. Þaó var ást við fyrstu sýn, hún gekk
í gegnum skrifstofuna þar sem Michael var
aó vinna og var fallegasta kona sem hann
hafði séð. Hann tók upp símann og
hringdi í mömmu sína og tilkynnti að hann
væri búinn að finna konuna sem hann ætl-
aði að kvænast. Þremur vikum síóar voru
þau trúlofuó og fjórum mánuðum síðar
gift. I dag eiga þau fimm börn.
Arið 1982 gekk Michael í hljómsveitina
sem spilaói með Amy Grant og varir sam-
starf þeirra enn. Það var ári seinna sem
fyrsta platan hans kom út, hún heitir
„Michael W. Smith Project" og samdi
Michael öll lögin og Debbie, konan hans,
alla textana. Það var á þessari plötu sem
lagið „Friends" kom fyrst út. Þetta var
upphafið aó glæsilegum tónlistarferli og
nú hafa komið út 16 plötur/geisladiskar
og 10 bækur, hann hefur hlotið fjölda
verðlauna, m.a. tvenn Grammy verðlaun
og 34 Dove verðlaun og selt yfir átta millj-
ónir diska.
Þegar Michael W. Smith áleit aó ferill
hans hefði náó hámarki þá gaf hann út
fýrsta lofgjörðardiskinn sinn, og eins og af
tilviljun kom hann út 11. september í fyrra.
Þessi diskur færði mörgum uppörvun og
fékk viótökur sem enginn átti von á. Hann
var söluhæstur kristilegra diska árin 2001
og nú 2002. Þessum disk fylgdi hann eftir
meó útgáfu á DVD disk sem tekinn var upp
á lofgjörðartónleikum í Kanada þar sem
15.000 manns komu saman. Og 22. októ-
ber sl. kom út annar lofgjörðardiskur
„Worship Again“.
Sjálfur segir Michael um nýja diskinn:
„Hann er ekki einungis samansafn af góð-
um lögum, hér er upplifun sem áhorfend-
ur og áheyrendur taka þátt í.“
Yfirlit:
Platan „Michael W. Smith 2“
Myndbandið „Michael W. Smith
Live in Concert“
Platan „The Big Picture" og fýrsta
bókin Old Enough to Know.
Platan „The Live Set“ og mynd-
bandið „The Big Picture Tour“
Platan „i 2 (EYE)“
Platan „Christmas"
Platan „Go West Young Man“ sem
innihélt lagið „Place in This
World“ sem gaf honum verðlaunin
„American Music Award’s New
Artist of the Year“
Platan „Change Your World“
Platan „The First Decade“ og
„The WonderYears“
Geisladiskurinn „l’ll Lead You
Home“
Bókin It’s Time to Be Bold og bók-
in Friends Are Friends Forever.
Geisladiskurinn „Live the Life“ og
bókin Your Place In This World og
frábær jóladiskur „Christmastime“
Geisladiskurinn „This Is Your
Time,“ og bókin This Is Your Time,
einnig uppskriftabók í samvinnu
vió móður hans Cooking with
Smitty’s og barnabók skrifuð með
Debbie Where’s Whitney?
Geisladiskurinn „Freedom”
Bókin I Will Be Your Friend og
geisladiskurinn „Worship“
Bókin Worship, og bókin The Price
of Freedom og einnig myndbandió
„Worship" og geisladiskurinn
„Worship Again“
33