Bjarmi - 01.12.2002, Page 35
múslímskra landa með góðri ferðamanna-
þjónustu. I þrjátíu kílóa tösku rúmast um
100 Biblíur. Fólkió sjálft borgar ferðirnar en
við aðstoóum það í sambandi vió hagnýtan
undirbúning. Kristió fólk í þessum löndum
hrópar á Biblíur og tekur þeim feginshendi.
um sem ég tók þátt í. En einn vinur minn,
Alexander, var í fangelsi vegna trúar sinnar
til ársins 1985. Ég spurði hann hvort það
hefði verið einhver hjálp að við skyldum
hafa beóið fýrir honum þegar hann sat inni.
Hann svaraói og sagði: ,Já, svo sannarlega.
Einnig kemur fyrir að við sendum stærri
sendingar með skipum eóa öðrum farar-
tækjum.
I Sádi-Arabíu er hópur kristins fólks sem
kemur frá Filippseyjum, Indlandi og Eþíóp-
íu. Þaó vinnur sem þjónustufólk á heimilum
ríka fólksins. Þetta fólk þarf á fyrirbæn okk-
arað halda. Ef upp kemst um að þau rækja
trú sína með öðrum er þeim vísað úr landi.
Guó hefur meira að segja sett sitt fólk í
Mekka, borgina þar sem múslimar einir
eiga að búa og dvelja.
Starfykkar er því dreift um víða veröld?
Já, óhætt er að segja þaó. Vió vinnum í
Mið-Austurlöndum, Suður-Ameríku, Afríku
og Asíu. I Kína er fjöldinn allur af heimilis-
söfnuðum sem ekki eru opinberlega skráð-
ir. í ár förum vió með rúmlega milljón bæk-
ur til Kína. Yfirvöld líta á neðanjaróarkirkj-
una sömu augum og Falun Gong. Hin
kristnu sem tilheyra þessum kirkjum vilja
ekki skrásetja sig hjá yfirvöldum vegna
hugsanlegra afskipta þeirra af starfinu. Þau
vilja ekki vera undir stjórn guðleysis.
Kristnir menn hafa verið ofsóttir í Víet-
nam og á Filippseyjum, einkum í múslímska
hlutanum. I Kólumbíu í Suður-Ameríku
hefur 400 kirkjum verið lokað og 20 prest-
ar verið skotnir til bana í ár. Yfirleitt eru þaó
skæruliðasamtök sem standa aó baki. Þau
vilja geta nýtt kirkjuna til framdráttar sín-
um málstað. Athyglisvert er aó miklar vakn-
ingar eiga sér staó einmitt þar sem ofsókn-
ir eru miklar. Guð hefur margsinnis gripið
inn í aðstæður fólks á undraverðan hátt.
Sá Guð sem við þjónum er lifandi Guð. Vió
höfum fengið mörg stórkostleg bænasvör.
Guð hefur leitt starfió og opnað leiðir,
blindað augu tollara og þannig get ég
lengi talið. T.d. vita ekki margir að árið
1982 hófst sjö ára bænaherferó fyrir
Austantjaldslöndunum. Henni lauk
árió 1989, sama ár og járntjaldið
hrundi og löndin opnuðust.
Cetur pú nefnt dcemi um dþreifan-
lega bœnheyrslu?
Ég get tínt til mörg dæmi og |
sagði frá sumu á samkomun-
Oft var mjög kalt í fangelsinu, en stundum
var eins og komió væri með teppi og það
breitt yfir mig. Þá vissi ég að einhver var að
biðja fyrir mér.” Bróðir Andrés segir líka frá
því í bókum sínum hvernig Guð hefur oft
leitt hann á undursamlegan hátt.
Viltu minna okkur Islendinga á eitthvað að lok-
um?
Þið getið verið með í að biója fyrir þessu
starfi og kristnu fólki sem er ofsótt. Kristió
fólk í lokuðum löndum er um 200 milljón-
ir. Um 40 milljónir búa við ofsóknir eða að-
stæóur þar sem þeir geta mætt ofsóknum
og þurfa að sýna ýtrustu varúð eða vera í
felum með trú sína. Við finnum að það er
munur á stöðu kristins fólks eins og það var
áður í kommúnistalöndunum og svo víða
nú á dögum. Áður var kristið fólk sett í
fangelsi, en í mörgum löndum, ekki síst þar
sem harðlínumúslimar koma við sögu, er
fólk drepið. En vió eigum lifandi Guó.
Hann segir: „Biðjió og yður mun gefast.“
Bænin getur breytt öllu.