Heima er bezt - 01.07.1952, Síða 19

Heima er bezt - 01.07.1952, Síða 19
Nr. 6 Heima ’cr bezt 211 að fiskur væri genginn í fjörð- inn svo snemma vors. Útgerðirn- ar komu fram samtímis og bjuggu nú um sig á viðeigandi hátt til nokkurra vikna dvalar í byrgjunum undir standbjarginu í Drangey. Hófust nú fuglaveiðarnar. Byrjað var á því að tengja flekana saman, stjórar voru við þá tengdir, farið var fram á mið með uppistöðurnar, stjórum varpað fyrir borð og nú voru snörur egndar. Að „egna snörur“ var að hagræða þeim þannig, að þær stæðu sem opnar lykkjur of- an á flekunum. Tilgangurinn með því að „egna“ var sá, að skapa umbúnað, er verkaði þannig, að snörurnar rynnu að fótum fuglanna og héldu þeim föstum er þeir skriðu upp á flek- ana. Til þess að hæna fuglinn að flekunum þurfti að ná í nokkra fugla, sem kallaðir voru „bandingjar“, en það nafn var gefið vegna þess, að fuglar þess- ir voru festir á flekana, tveir á hvern, þannig, að snörum var brugðið um vængi þeirra. Þann- ig sat bandinginn fjötraður á báðum vængjum, á flekabrún. Þarna sat hann fastur, skrækj- andi og gargandi. Komu félag- ar hans þá aðvífandi og skriðu upp á flekann, með þeim afleið- ingum, að þeir festu fæturna í hinum egndu snörum og sátu þarna fastir þangað til vitjað var um og þeir handsamaðir. Venjan var að vitja um flek- ana tvisvar í sólarhring, eða að morgni og kvöldi; „farið var út“ á vissum tímum og allir fóru samtímis. Umvitjanir fóru allar fram á sama tíma, til þess að fæla fuglinn sem minnst í um- hverfi eyjarinnar. Ég gat þess áður, að í hverri útgerð gátu verið 3—9 manns. Hver maður mátti hafa 3 eða 4 niðurstöður. Gátu niðurstöður 9 manna útgerðar því orðið um eða yfir 30, og þegar þess er minnzt, að 3 flekar voru í hverri niðurstöðu, má reikna út fjölda fleka útgerðarinnar. Það var ekki óalgengt, að hver útgerð hefði 90—100 fleka. Þess ber að geta, að báturinn átti eina nið- urstöðu. í hverri umvitjun var farið að öllum niðurstöðum og fuglinn tekinn af hverjum fleka, nema bandingjarnir, en gumlu band- ingjarnir voru nú snunir úr háls- liðnum og nýir bandmgjar sett- ir i stað hinna fyrri. Fuglinn, sem veiddist á flek- ana, var svo að segja cingöngu langvía og lundi. Hve mikið veiddist var ákaflega breytilegt. í hverri vitjun gat það komið fyrir, að 5—8 fuglar væru á sama fleka, með öðrum orðum 12—20 á niðurstöðu og þótti það mjög góð veiði. Að meðaltali var veið- in auðvitað ekki svo mikil. Vertíðin stóð frá miðjum maí til sláttar, þetta um 10 vikur af sumri, eða samtals um 7 vikna tíma. Þótti það góð veiði, ef 400 —600 fuglar á mann veiddust yf- ir vikuna, enda þurfti veður að vera hagstætt og veiði góð, til þess að svo mikið fuglaðist. Á vertíðinni var sjór þéttsett- ur flekum á vissum svæðum í kring um Drangey. Hver maður átti sína fleka og voru þeir brennimerktir honum eða á ann- an hátt auðkenndir, svo að eigi yrði farið flekavillt. Fengur hvers manns var festur í sjálf- stæðar kippur með „fuglabandi", en fuglaböndin voru auðkennd með tréspjöldum, er voru brennimerkt eða auðkennd eins og flekarnir, greinilega, svo að ekki yrði á villzt. Bátseigandi sá um fleka bátsins og voru þeir að sjálfsögðu einnig auðkenndir. Oft kom það fyrir, að flekar týndust í illviðrum, ef flekabönd slitnuðu eða stjórar sviku. Þeg- ar leið á vertíð, eða veður voru óstöðug, var alltaf um að ræða eyðileggingu á snörum og þurfti þá að setja nýjar í stað þeirra, sem ekki þóttu riýtilegar leng- ur. Til þess að bæta upp fleka- töp voru varaflekar stjóraðir í stað þeirra, sem týndust. Annars þurfti að hafa varafleka og nota þá utan þess, því þegar flekar voru farnir að „sjóast“, varð að skipta um þá við og við. Sjóuðu flekarnir voru þá fluttir í land og þurrkaðir, en þurrir flekar hafðir úti í þeirra stað. Þegar sjóuðu flekarnir þornuðu þurfti oft að „hára þá upp“, en að hára upp, var að setja nýjar snörur í flekana í stað þeirra, sem ónýt- ar voru. JAFNÓÐUM og fuglað var þurfti að sjá fyrir því, að fugl- inn kæmist í land og honum yrði þar gert til góða, svo að hann geymdist vel. Frammi i ey var hann kippaður, svo að auðvelt væri með hann að fara bæði í flutningum í land og út um sveitir. Þess vegna var hann kippaður þannig, að bundið var um hálsinn á 5 og 5 fuglum í senn og í hverri kippu voru hafðir 30 fuglar. Var þessi kippustærð miðuð við, að þægi- leg væri til flutnings og auðvelt að hengja á klakk. Þótti það hæfileg klyf að hafa tvær kipp- ur hvorum megin, en þrjár, ef stutt var að flytja. Þegar vel aflaðist, var flutt í land um miðja viku og var gert að þeim fugli til notkunar á heimilunum sjálfum. Var það verk kvenfólksins að gera hon- um til góða. Fyrst þurfti að plokka og svíða. Þótti það fram- úrskarandi dagsverk að plokka 100 langvíur á dag, en að meðal- tali mun dagsverkið varla hafa verið meira en 50 langvíur plokk- aðar og sviðnar. Sviðið var við lyngbál. Þannig var starfi hag- að, að prik var notað, því stung- ið í gin fuglsins og niður í gegn um hálsinn, og síðan brugðið yf- ir eldinn, en greiðlega gekk að svíða, ef fuglinn var þurr, því að fitan á honum draup stundum og skerpti logann. Þar næst var fuglinn tekinn sundur þannig, að bringan var skilin frá hryggnum; hún var ýmist sölt- uð eða reykt, en hryggurinn, á- samt hálsi, haus og lærum, var súrsað. Þetta súrmeti var að mestu haft til sumarmatar, en það entist fram á vetur hjá þeim, sem mikið fengu. Fuglinn var góður fengur margra heimila í héraðinu, þeg- ar útgerðir voru flestar. Móðir mín átti stundum saltaðar lang- víubringur í mörgum tunnum og tóku þær við, þegar súrmetinu sleppti, eða þær voru hafðar jafnframt því til tilbreytni. Fuglinn, sem fluttur var í land um helgar, var fyrst og fremst hafður sem verzlunarvara. Komu menn víða að til þess að kaupa Drangeyjarfugl, ekki aðeins úr Skagafirði, heldur líka úr öðrum héruðum. Það var ekkert sjald-

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.