Heima er bezt - 01.07.1952, Page 24

Heima er bezt - 01.07.1952, Page 24
216 Heima er bezt Nr. 6 hann því að afla sér tekna á annan hátt, t. d. með því að vinna hjá öðrum út um sveitina. En eftir honum var sótzt til vinnu, því að bæði var hann þrekmaður og lagvirkur. Einkum þótti hann hlaða veggi og garða ágætlega. Svo mun hann hafa haft nokkrar tekjur af skógin- um. En upp úr 1870 fóru menn að komast á lag með að halda fjárkláðanum í skefjum, svo að hann gerði ekki stórskaða, og eftir 1877 og fram um aldamót varð hans lítið vart. Jónas rétti því furðu fljótt við fjárhag sinn, svo að hann varð vel sjálfstæður efnalega. í minnisbókum hans sést, að hann hefur oft hjálpað sveitungum sínum um hey, mat og eldivið í hörðum árum, og það í talsvert stórum stíl. En Jónas mun lítið hafa talað um hjálpsemi sína út á við, enda var hann laus við mont og allt yfirlæti. í Hrauntúni hlóð hann mikla grjótgarða, sem lengi munu sjást, bæði umhverfis túnið og svo all- stóran nátthaga. Garðar þessir voru með öllu sauðheldar girð- ingar. Hve langir þeir eru get ég ekki sagt um með vissu. En ég hygg, að túnið og nátthaginn séu til samans 20—30 dagsláttur. Hús öll byggði hann upp snotur og traust, og var allur frágangur á mannvirkjum í Hrauntúni með myndarbrag. í hreppsnefnd var Jónas kos- inn um sömu mundir sem hann varð hreppstjóri eða 1 til 2 ár- um fyr, og oddviti eitt kjörtíma- bil — 6 ár. Honum mun ekki hafa samið við meðnefndarmenn sína, og eftir það mun hann ekki hafa setið í hreppsnefnd. Jónas byrjaði snemma á því að safna að sér bókum. Kvað svo rammt að því, að gestir sem til hans komu, undruðust hvað hann átti mikið af bókum. Sumir litu bækur hans heldur illu auga. Þóttu þær of miklar. Bæði legði hann of mikið fé í bókakaup og svo mundu bækurnar tefja hann frá vinnu. Þeir gátu ekki orða bundizt og létu í ljós, að þeim fyndist hann leggja of mikið í bókakaup. En þá sagði hann jafnan: „Þetta getið þið sagt um bókakaup mín. En hefði ég varið andvirði bókanna í brennivín, þá mundu þið ekkert segja.“ Við þessi svör hans þögnuðu flestir. Og sumir tóku það fyrir sneið til sín, sem líklega hefur verið rétt til getið hjá þeim. Jónas var umbótamaður á mörgum sviðum. Vildi vinna á móti öllu sem þá var kölluð hjátrú og hindurvitni. T. d. að til væru útilegumenn, huldufólk eða draugar eða annað þvílíkt. Það kvað svo rammt að þessu, að hann vildi ekki eiga Þjóðsögur Jóns Árnasonar, og seldi þær úr bókasafni sínu. Einnig komst hann í andstöðu við kenningar kirkjunnar og hætti að hlýða á messur. Út af þessu varð hann einn um skoðanir sínar. Þessu var misjafnlega tekið af fjöld- anum, og hann var oft harðorð- úr við þá, sem ekki voru á sama máli. Sóknarprestinum leiddist það, að hann kom ekki í kirkj- una þegar messað var. Og þó hann kæmi að Þingvöllum á messudegi í þeim erindum að hitta þar einhverja menn úr hreppnum, þá kom hann ekki fyrri en messa var um það bil úti, og beið þá úti þar til henni var lokið. Sem dæmi þess hvað Jónas gat verið harðorður — og sagði stundum meira en honum datt í hug að framkvæma — er, að einhverju sinni á fundi á Þingvöllum urðu þeir ekki á sömu skoðun, presturinn og Jón- as. Sagði þá Jónas í heyranda hljóði, að réttast væri að afhrópa prestinn. Þá sagði bóndi ein úr hreppnum, Pétur Guðmundsson í Miðfelli: „Hvað ætli þú afhróp- ir svo góðan mann.“ Þá sagði Jónas: „Ég segi það og hef sagt það, að ef menn tækju sig sam- an, þá mætti segja honum að fara.“ — Svo var þeim umræð- um lokið, og allir skildu í bróð- erni og gerðu gaman úr öllu saman. Þannig var það, að þótt Jónas væri stundum harðorður við prestinn og aðra, þá fylgdi ekki neitt hatur eða óvinátta. T. d. lagði hann svo fyrir, að enginn annar prestur talaði yfir sér við útför sína en sóknar- prestur sinn, séra Jón Thor- steinsson á Þingvöllum. Jónas hafði mikinn áhuga á öllum umbótum, sem hann hugði að bæta mundu afkomu bænda. T. d. var hann lengi deildarstjóri í pöntunarfélögum fyrir Þingvallahrepp. Ekki var það starf ábatasamt fyrir deild- arstjórana. Þeir söfnuðu vöru- pöntunum hjá hreppsbúum á veturna; svo komu vörurnar á vorin, og bændur tóku þær. En fáir borguðu fyrr en á haustin, og þá ekki alltaf allir. En deild- arstjórinn átti að innheimta og fá 1% í innheimtulaun. Ég hygg, að innheimtulaunin hafi tæplega hrokkið fyrir vanskil- um. Fyrir fyrirhöfnina og reikn- ingshald var ekkert borgað, hvorki ferðakostnaður við að sækja félagsfundi né annað. Jónas var eindreginn heima- stjórnarmaður í stjórnmálabar- áttunni við Dani og vildi engar tilslakanir. Hann skrifaði einnig nokkrar greinar í blöð um ýmis áhugamál sín. Ég kynntist Jónasi nokkuð, þótt litlar samgöngur væru á milli okkar, og var það vegna þess, að við vorum þannig í sveit settir, að langt var á milli. Ég heyrði ýmsar sögur um það, hvað hann væri þver og ómögu- legt væri að víkja honum frá sinni skoðun, hvort sem hann stæði á réttu eða röngu. Einu sinni bar það við, þegar ég var oddviti í Grafningshreppi, að á- greiningur var á milli mín og oddvitans í Þingvallahreppi, sem þá var Halldór Einarsson á Kárastöðum. Hreppar þessir voru áður einn hreppur, en var skipt í tvo hreppa 1862. Allir þeir, sem fæddir voru í Þingvallahreppi hinum forna, áttu fæðingar- hrepp í báðum hreppunum, og áttu að framfærast að hálfu leyti af hvorum, eftir að þeim var skipt í tvo hreppa, ef þeir þurftu sveitarstyrk og höfðu ekki unnið sér sveit annars stað- ar. Þegar ég tók við oddvitastörf- um, tók ég eftir því, að 1 ómagi í Grafningshreppi átti fæðingar- hrepp í Þingvallahreppi hinum forna, en var farinn að þiggja sveitarstyrk áður en 10 ár voru liðin frá skiptingunni. Ég álykt- aði því, að ómagi þessi ætti sveit í Þingvallahreppi að hálfu leyti. En Halldór oddviti vildi ekki ganga inn á það, og bað um úr- skurð sýslumanns í málinu. Sýslumaður svaraði því svo, að fyrst skyldi reynt, hvort hrepps-

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.