Heima er bezt - 01.07.1952, Side 25

Heima er bezt - 01.07.1952, Side 25
Nr. 6 Heima er bezt 217 Dularfullir atburðir nefndirnar gætu ekki gert út um þetta sjálfar á sameiginlegum fundi, eða fulltrúar í þeirra stað úr báðum hreppunum. Svo var ákveðinn fundardagur og fund- arstaður, og skyldu tveir menn úr hvorum hreppi mæta á þess- um fundi. Úr Þingvallahreppi, Jónas í Hrauntúni og Sigurður Loftsson í Heiðarbæ. Úr Grafn- ingshreppi Kolbeinn Guðmunds- son oddviti og Jón Sveinbjarnar- son á Bíldsfelli. í fundarbyrjun tók Jónas það fram, að sveita- bækur hreppanna ættu að sýna hvað rétt væri í ágreiningi þeim, sem fundur þessi ætti að fjalla um. En hann óskaði þess, að hvorki yrði þras eða rifrildi þó fulltrúarnir yrðu ekki á eitt sáttir. Sýslumaður yrði þá að úrskurða hvað rétt væri. Þetta þótti mér ágætt og samþykkti það strax. Svo bárum við Jónas saman bækurnar og viðskipti hreppanna fyrstu 10 árin eftir að þeir urðu tveir sjálfstæðir hreppar. Komumst við að þeirri niðurstöðu, að ég hefði rétt fyrir mér. Svo var fundargjörðin færð inn í sveitarbók beggja hrepp- anna og undirskrifuð af öllum 4 fundarmönnum. Meðfundar- menn okkar þurftu ekkert að leggja til málanna, aðeins að fylgjast með og skilja hvernig málinu var háttað og á hverju niðurstaðan var býggð. Ég bjóst ekki við, að Jónas væri eins rétt- sýnn og strangheiðarlegur í samningum eins og hann reynd- ist. Við urðum kunnugri hvor öðrum eftir þennan fund en áð- ur, og fengum meiri mætur hvor á öðrum. Svo liðu mörg ár, sem við hittumst svona endrum og eins á mannamótum eða á ferðalagi, en höfðum aldrei tækifæri til að tala saman, nema eins og gengur skiptast á nokkrum orðum um dagleg efni. En svo bar það svo til, að við urðum einu sinni sam- nátta í Miðdal í Mosfellssveit. Báðir vorum við á leið til Reykja- víkur. Þar voru þá, eins og oft bar við, margir næturgestir. Um kvöldið fóru flestir gestirnir að spila, sér til gamans, nema ég og Jónas. Stakk hann þá upp á, að við færðum okkur frá spila- mönnunum og töluðum saman í næði. Og það gerðum við, og I síðasta hefti Heima er bezt var sagt fra einkennilegum atburðum, sem áttu sér stað í höll einni við Dóná. Hér koma til viðbótar nokkr- ar frásagnir um dularfulla atburði, sem gerðust í Englandi. í flestum löndum Evrópu lifa sagnir um drauga og önnur ein- kennileg fyrirbæri á vörum fólksins. Og enda þótt flestir nú á dögum séu tregir til að trúa á sannleiksgildi slíkra sagna, er það staðreynd, að ýmsar þessara frásagna hafa við raunveruleika að styðjast, og sanngildi þeirra er sannað óvéfengjanlega. í Englandi og Skotlandi eru margar eldgamlar hallir og herrasetur. Við slíka staði eru sögurnar oftast tengdar. Georg Long, sem hefur fært margar sátum á tali fram að háttatíma. Honum fannst hann þá vera orð- inn einmana í mannfélaginu, og eins og búið væri að setja sig til hliðar, og margt væri um sig sagt, sem ekki væri rétt, jafnvel að hann væri latur og vinnulítill, og trúlaus væri hann kallaður. Satt væri það að vísu, að hann að- hylltist ekki allt trúarkerfi kirkjunnar. En aðalatriðunum kvaðst hann trúa og treysta á. Ég sagði honum mitt álit á við- horfi einstaklingsins til fjöldans og féllst hann á, að ég hefði mik- ið til míns máls og líklega rétt. En það væri nú ekki aftur tek- ið, sem liðið væri. Réttlætistil- finning hans var sterk, og þeg- ar honum fannst, að henni væri misboðið, var skapið stórt, og sagði hann þá afdráttarlaust meiningu sína. Jónas var stór maður vexti og þreklega vaxinn, rammur að afli. Létt var honum um gang og göngumaður mikill. Hann var fróður og víðlesinn og átti víst flestar eða hafði undir höndum um lengri eða skemmri tíma, beztu bækur þær, sem gefnar voru út á íslenzku á 19. öld, m. m. Hann var sjálf- menntaður, varð að hafa sjálfur slíkra sagna í letur, hefur ferð- azt til staða, þar sem vart hefur orðið við drauga, og talað við fólk, sem kveðst hafa séð þá. Sagnirnar standa oftast í sam- bandi við afbrot eða aðra ömur- lega atburði. Þannig er því varið um draugana á Samlesbury Hall í nágrenni Prestons í Lancas- hire. Þetta fagra, gamla herraset- ur var byggt á 15. öld, en atburð- irnir gerðust hundrað árum síð- ar, er Sir John Southworth var eigandi búgarðsins. Þetta var á siðaskiptatímanum í Englandi, þegar mótmælendur og katólskir áttu í brösum hvorir við aðra. Sir John var ákafur páfasinni og hafði oft verið dæmdur í sekt- ir fyrir að láta ekki af trú sinni. Nágranni hans var aðalsmaður fyrir því öllu að mestu án til- sagnar. Skrift lærði hann þann- ig, að hann fékk stafrófið skrif- að á blað og skrifaði svo eftir því. í reikningi kunni hann 4 höfuð- greinar hans í heilum tölum og botum, og í hugareikningi var hann svo góður að af bar, bæði fljótur og viss. Jónas andaðist 29. júlí 1922. 3. ábúandi Halldór Jónasson. Síðasti bóndi í Hrauntúni var Halldór Jónasson. Hann reisti þar upp bú eftir föður sinn lát- inn — í fardögum 1923 — og bjó þar til fardaga 1935. Þá var Hrauntún lagt niður sem bújörð, vegna þjóðgarðsins. Halldóri búnaðist þar vel og hélt öllum mannvirkjum vel við, og girti 30 —35 dagsláttur af Hofmannaflöt strax fyrsta árið, sem hann bjó þar. En það mun hafa dregið úr framkvæmdum hans, að við borð lá að friða Þingvallaskóg og gera hann að þjóðgarði. Hrauntún var í byggð 105 ár og þar bjuggu þrír feðgar í röð hver eftir annan. En þá var — eins og fyrr segir — býlið lagt niður fyrir fullt og allt. Og verð- ur þar sennilega ekki byggt ból framar.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.