Heima er bezt - 01.05.1955, Qupperneq 16

Heima er bezt - 01.05.1955, Qupperneq 16
144 Heima er bezt Nr. 5 Kolbeinn Guðmundsson frá Úlfljótsvatni: Bændur í Nesjum og Nesjavöllum á nítjándu öld II. Grímur Þorsteinsson á Nesjavöllum tirimur var sonur Þorleifs Guð- mundssonar og Guðrúnar Magn- úsdóttur; bjuggu þau á Nesjum 1816 og þá er Grímur skráður 17 ára. 1820 fer hann með föður sín- um að Nesjavöllum, sem flutti þangað það ár með börnum sín- um og síðari konu sinni; fyrri kona hans drukknaði í Þing- vallavatni 30. marz 1819. 1822 giftist Grímur Katrínu Gísla- dóttur frá Úlfljótsvatni og er þá talinn vera bóndi á Nesjavöll- um. Það lítur út fyrir, að hann hafi haft einhver jarðarnot á Nesjavöllum hjá föður sínum það ár, því að Nesjum er hann kom- inn árið eftir og þar býr hann nokkur ár, að vísu til fardaga 1828. Ég hef ekki getað fengið upplýsingar um, hvenær hann fór frá Nesjum, og veit ekkert um hann fyrr en hann flytur að Nesjavöllum 1838. Þá kemur hann frá Brúsastöðum í Þing- vallasveit með sitt skyldulið, Katrínu konu sína og börn þeirra 4, og auk þess 3 launbörn sín, Grímur 6 ára, Valgarður 4 og Árni 3 ára. Grímur bjó síðan á Nesjavöllum til dauðadags. Grímur á Nesjavöllum var dugnaðarmaður mikill og afla- maður. Orðlögð refaskytta, svo að fáir eða enginn hefur jafnast á við hann í þeirri íþrótt. Það sagði mér maður, sem lá við gren með honum. Þegar þeir komu að greninu, var hvorugt fullorðna dýrið þar sjáanlegt. En eitthvað heyrðu þeir í yrðlingunum inni í greninu. Þá sagði hann, að Grímur hefði sagt sér að setj- ast við dyrnar á greninu og passa það, að ekkert færi út og ekkert inn; annað ætti hann ekki að gera, nema að passa það og sofna ekki. En sjálfur sagðist hann ætla að leggja sig og sofna um stund. En eftir stutta stund rís hann upp held- ur hvatlega og segir: „Eitthvað dreymir mig.“ Stendur því næst upp, tekur byssuna, ámálgar fyrri skipun sína við mig að passa vel dyrnar á meðan hann sé í burtu, sem geti ef til vill orð- ið nokkuð frameftir nóttunni. •— Það var um kvöld, sem þeir komu að greninu. — Svo líður stundar- korn. Þá heyrir hann skot úr talsverðri fjarlægð. Svo líður nokkuð langur tími og hann var farið að syfja, en hann mátti ekki vekja sig á því að standa upp og ganga um. Nei, hann mátti ekki einu sinni kveða vísu til að vekja sig með. En fyrir engan mun vill hann, að Grímur finni sig sofandi, þegar hann kemur. Svo hann sagði, að það hefði verið fangaráð sitt að bíta á jaxlinn og tauta fyrir munni sér í hljóði, það sem honum datt í hug. En þegar hann er nýbyrj - aður á þessu, heyrir hann annað skot og var það nær greninu en hið fyrra. Við það sagðist hann hafa glaðvaknað, og stuttu síðar sér hann, hvar Grímur kemur með bæði dýrin, sem áttu gren- ið. Síðan náðu þeir yrðlingunum út úr greninu og létu þá í poka. Svo tók Grímur skinnin af fullorðnu dýrunum, og sagði hann, að Grímur hefði verið fljótur að því. — „Hann byrjaði um leið og ég fór eftir hestunum, sem voru þarna skammt frá, og var búinn, þegar hestarnir voru komnir.“ — Greni þetta var í svo- nefndum Grashólum fyrir vestan Hengil. Þeir fóru síðan austur Dyraveg að Nesjavöllum og komu þar um fótaferð um morguninn. Þannig var það oft, að mönn- um sýndist, sem Grímur gengi beint á þann stað, sem dýrin voru, eftir að hann hafði lagt sig og sofið stutta stund. Silungsveiöi stundaði hann af kappi í Þingvallavatni, bæði í net og á dorg, þegar ís var á vatninu. Stundum fór hann á skautum austur á svonefnda Skútavík. Hún er skammt fyrir ofan, þar sem Sogið fellur úr Þingvallavatni. Þar er oft von á urriðaveiði. Þar veiddi hann stóra urriða, 5—10 kíló. Ekki var talað um, að neinn amaðist við þessari veiði Gríms, enda mun fáum eða engum hafa lánast þetta nema honum. En það vissu menn, að urriði hélt sig við Sogs- kjaftinn, og því var það, að 2 unglingar fóru of nærri Soginu, lentu í straumnum og drukkn- uðu báðir. Þeir voru of nærri Soginu með netið og gættu ekki að sér, fyrr en straumurinn tók bátinn og sogaði hann niður í gljúfrið með heljarafli og braut hann í spón. Samskonar slys vildi til 1916. Þá var stangaveiði- maður við Sogskjaftinn, sem fór of nærri, svo að straumurinn tók bátinn með manninum, sem í bátnum var. Maðurinn drukkn- aði og báturinn brotnaði. En Sogið skilaði hvorutveggja fram í Úlfljótsvatn, manninum dauð- um, en bátnum brotnum og ó- nýtum. Grímur fékk þarna oftast góða veiði, þegar hann hafði tækifæri til þess að fara þang- að, en það var ekki svo oft. Þetta var svo löng leið, að dagurinn entist ekki til þess að fara það öðruvísi en á skautum beint yfir vatnið. En ekki var skauta- færi yfir vatnið hvenær sem vildi alla vetur. Það koma oft þeir vetur, sem aldrei kemur skautafæri á Þingvallavatn. Svo að þetta hefur enginn viss at- vinnugrein verið. En svo mun önnur veiði hafa verið, sem var Grími vissari atvinnugrein, auk refaveiðanna. Það var rjúpna- veiði og hreindýraveiði. Rjúpan var verzlunarvara og seldi hann hana til Hafnarfjarðar- og Reykjavíkurkaupmanna. Grímur fór margar vetrarferðir með

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.