Heima er bezt - 01.05.1955, Qupperneq 22

Heima er bezt - 01.05.1955, Qupperneq 22
150 Heima er bezt Nr. 5 og manna fyrirmannlegastur. Framkoma hans ber með sér, að hann er gjörhugull maður og gætinn, óg svo þegar við það bætist skarpar gáfur, og nokkur þótti, sem hann gerir sér ekki far um að leyna að fullu, þá er sjálfskýrt, hvers vegna honum hefur veitzt svo létt að stjórna umræðum á Alþingi um tíu ára skeið og farizt það röggsamlega. Þessir eiginleikar hans koma líka fram í daglegu starfi. Þess vegna eru Gautlönd líka íslenzkt fyrir- myndarbýli, og þess vegna gæt- ir þar slíkra framfara í búskap og skipulagi. Jón hefur ekki látið neins ó- freistað til að bæta jörð sína. Hann hefur sléttað tún sitt og stækkað, og umbótunum heldur áfram með hjálp duglegra sona, sem ætla að feta í fótspor föður síns í bændastétt. Einn sonanna hefur kjörið sér annað verksvið. Hann er nú einn af duglegustu sýslumönnum á íslandi1). Auk þess er líka ástæða til að leggja áherzlu á, hvernig Jóni Sigurðs- syni ferst úr hendi að sinna hin- um margþættu opinberu störf- um, sem almenningur hefur kjörið hann til. Hann er gott dæmi þeirra manna, sem með hæfni sinni hafa sannað, að lög- fræðileg skólapróf eru ekki á- vallt nauðsynleg þeim, sem með höndum hafa stjórn opinberra stofnana. Seinasta stórbýlið við Kráká er Baldursheimur, en hann er líka byggður af tápmiklu, ungu fólki, enda staðarlegt þar heim að líta. Ábúendum þar er það fullljóst, að ekki tjáir annað en leggja hart að sér og nota sér alla þá möguleika, sem kostur er á, ef ættland þeirra á að taka framförum. Er við höfðum hresst okkur á mjólk, fylgjum við vörð- unum til hinna svokölluðu beit- arhúsa jarðarinnar, er þar nokk- ur hluti fjárins hafður á vetrum. Að enn öðrum bæ komum við að hjá Kráká, síðasta manna- bústaðnum í jaðri auðnarinnar. Þar bar allt merki um sára fá- !) Hér er árt við Kristján, siðar dóm- stjóra. Steingrímur, sonur Jóns, var og til mennta settur, var síðast sýslum. Eyja- fj.s. og bæjarfógeti á Akureyri. tækt. Konan var ein heima, og hún vildi ekki einu sinni hleypa okkur í bæinn, því að húsakost- ur væri svo bágborinn. En hún kom með mjólk út til okkar, og hana drukkum við, meðan við lofuðum hestunum að grípa nið- ur og hvíla sig. Þar sem slík ör- birgð ríkir, gefst ferðalangnum ágætt tækifæri til að komast að raun um, hve fólk getur sætt sig við lítið, og þá er ekki síður vert að veita því athygli, hvernig neyðin kennir fólkinu að leita sér bjargar í umhverfið, að því er húsgögnin varðar. Raunar getur víða á íslandi að líta eitthvað svipað, því að enn er margt í notkun, sem minnir á gamla tímann, þegar neyðin sótti heim hvert byggt býli, en þó sér mað- ur þetta allt miklu greinilegar hér, á þessu útkj álkakoti, og við skiljum aðstæðurnar til hlítar. Það er enginn hægðarleikur að afla sér málma og trjáviðar á íslandi, og því erfiðara er þetta, þeim mun lengra dregur frá sjó og fátækt er annars veg- ar. Bændurnir leitast því við að búa sem mest að sínu og verður þá grjót og bein hendi næst. Og notkun þess er líka ósvikjn. Það mun varla til það býli á íslandi, að ekki sé þar að finna einn eða fleiri flata steina, þar sem kosta- fæða landsmanna, harðfiskur- inn, er barinn, unz hann fer að meyrna og verður liprari undir tönn. Nú er fiskurinn oftast bar- inn með stórum járnhömrum, en á minni býlum er holaður steinn notaður í hamars stað. Við Kráká var fiskisleggjan steinn, og smiðjusteðjinn var líka steinn og fleiri smíðaáhöld úr því efni. Kindabein voru notuð í hnakk- ana og svo höftjn á hestana. Hrútshorn voru notuð í boga á klyfsöðla og móttök úr hrosshári, ull eða skinni. í bænum var naumast um aðra húsmuni að ræða en fátæklegt borð, fasta rúmbálka og nokkur tréílát af einföldustu gerð, þegar sleppt er járnpottinum og kaffikatlinum, sem auðvitað verður ekki án ver- ið. Loks gat þarna að líta nokkr- ar tágakörfur, sem ekki voru illa gerðar og ýmsir smáhlutir úr beini, svo sem alir, kilpir og fleira þess háttar. Það segir sig aftur á móti sjálft, að þessir frumbýlingslegu búnaðarhættir eru óðum að hverfa, eftir því sem greiðara reynist að afla nauðsynlegra ný- tízkra verkfæra til daglegrar notkunar.... Um kvöldið komum við, að hinu forna hrauni, sem er við Svartárvatnið austanvert og veldur því, að landið fær svip af sveitinni austan Mývatns. Margt bar hér vitni um sand- fokið. í vatnið setzt æ meiri sandur og verður það grynnra með hverju ári sem líður. Er nú sagt, að það sé hvergi meira en 6 fet á dýpt. Við vatnið er lítið býli, Svart- árkot, og þar höfðum við hugs- að okkur að gista. Bærinn hefur nú verið fluttur vestur fyrir vatn, en áður stóð hann austan- vert við það. Áður en í Svartár- kot kemur, liggur leið okkar yfir hið gamla. tún, sem stormurinn hefur tætt upp, af því að það lá á foksandi. Nokkrir fjárhúskofar standa enn uppi þarna, en milli þeirra getur ýmist að líta fok- sand eða vindsorfnar lægðir, sem eru þéttsettar skinhvítum beinum, þöglu vitni um forna búsetu. Hér er nefnilega um að ræða hinztu leifar allra þeirra dýra, sem fætt hafa horfnar kynslóðir þessarar jarðar. I brún eins rofabakkans hefur stormurinn afhjúpað beinagrind af manni, sennilega einhverjum fornum heimamanni hér. Forð- um voru hinir dauðu jarðaðir við bæina. Bóndinn í Svartárkoti, Einar Friðriksson, er maður harðdug- legur, sem hefur hafizt af eigin rammleik og heyr harðvítuga, en happasæla baráttu við náttúru- öflin í þessari útvarðarstöð. Hann hefur myllu við ána og stundar fiskveiðar í vatninu með góðum árangri, en auk þess reynir hann að auka fiskigegnd- ina þar með klaki, en seiða hef- ur hann aflað sér úr Mývatni. Og þar eð ekki hefur tekizt að flytja lifandi fiska alla þessa leið, hef- ur honum sjálfum hugkvæmst að fá frjóvguð urriðaegg frá Mý- vatni og láta þau klekjast út í kílunum við vatnið. Er ekki skylt að bera virðingu fyrir slíkum manni og starfi hans? Virðing okkar fyrir honum vex og að

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.