Heima er bezt - 01.05.1955, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.05.1955, Blaðsíða 24
152 Heima er bezt Nr. 5 konu, sem fór ein síns liðs yfir ána. Hún hafði brugðið sér í kaupstaðinn til þess að kaupa sér nýja hrífu. Akureyri er kaupstaður, en við megum ekki gera okkur í hugar- lund, að hann sé eins og einhvert þorpið okkar. Hér eru engar reglulegar götur og ekkert torg- ið, vantar allt hið skipulega, sem bæir, þótt smáir séu, eiga að hafa til ágætis sér. Kaupstaður- inn er dálítil húsaþyrping við rætur brekku einnar og upp í brekkugilin. Allt eru þetta timb- urhús. Eyjafjörðurinn takmark- ar bæinn á einn veg. Þar er eng- in höfn, en skipin verða að leggj- ast úti á firðinum. Frá sjónum séð ,er bærinn fallegur, og stöku hús eru svo aðlaðandi, að manni dettur í hug smábæirnir norsku, sem eru svo snyrtilegir, fágaðir og fægðir. Kirkjan er syðst í bænum, og kippkorn norður frá getur að líta Oddeyrina með verzlunarhúsum Gránufélagsins og í nánd við þau, er að rísa upp dálítill bæjarhluti, og má þar sjá nokkur ný steinhús. Mestur hluti bæjarins er kaupmannahús, fiskgeymsluhús og önnur vöruhús. Og' kringum kaupmannahúsin er helzt líf og fjör. Getur þar að líta hesta- lestir allan liðlangan daginn, en á klárunum sinum flytur bónd- inn vöru sína og svo kaupstað- armatinn heim. Það er nefni- lega miklu meiri viðburður, þeg- ar íslenzki sveitabóndinn ætlar að bregða sér í kaupstaðinn en þegar stéttarbróðir hans í Dan- mörku gerir slíkt hið sama. Stundum verður hann að vera dögum saman að heiman, og gjarna vill fleira heima fólk slást í förina, bæði menn og konur. Margir hestar eru undir ullarklyfjum eða öðrum varn- ingi, sem er seldur eða rétt- ara látinn upp í greiðslu á vör- um þeim, er bóndinn þarfnast. Öll verzlun milli kaupmanna og alþýðu er nefnilega ennþá vöru- skiptaverzlun, og það er kaup- maðurinn, sem ákveður verð á vöru bóndans, og verðið er að- eins að nafninu til og gjama allmiklu hærra en greiðist fyrir vöruna í Kaupmannahöfn, en vara kaupmannsins er líka á nafnverði. Að þessu leyti er mik- ill agnúi á íslenzku viðskipta- lífi, og auðvitað verður það bóndinn, sem ber hér skarðan hlut frá borði. Þessi vöruskipta- verzlun og hinn mikli lánsfrest- ur, sem bóndinn fær, er Þránd- ur í Götu þjóðlegar viðreisnar. Það er almennt talið, að vín- hneigð íslendinga sé þjóðarböl, sem verði til þess að tefja eðli- legar framfarir. Ég tel, að okk- ur Dönum sé ekki fullljóst, hvernig þessum málum er varið á fslandi. Að minnsta kosti stóð ég í þeirri trú, er ég kom til ís- lands, að þar yrði í raun og veru ekki þverfótað fyrir drykkju- rútum. Mér er því ánægja að geta lýst því yfir, að ég hef frá upphafi ekki orðið var við neitt þessari skoðun til styrktar. Já, það má jafnvel orða þetta svo, að drykkjuskapur sé víðs fjarri íslenzka bóndanum, og ég ætla, að í ljós mundi koma, ef gerður væri samanburður, að vín sé mjög á annan veg um hönd haft á dönskum bændabýlum en ís- lenzkum. Ég get ekki dæmt um, hvernig þessu hefur verið varið áður, en nú er það alls ekki al- gengt, að brennivín sé um hönd haft i sveitunum eða því sé haldið að mönnum. Nú er nefni- lega farið að tolla brennivín svo að um munar, og með því hefur áunnizt mikið til að takmarka neyzlu áfengis. Því miður sér ferðamaðurinn þó drykkjurúta á íslandi, en þeir sjást helzt á verzlunarstöð- unum. Bóndinn fær sér helzt í staupinu, þegar hann er í verzl- unarerindum. Menn neyta líka færis, þegar póstskipið kemur á hafnir til að bregða sér á skips- fjöl og heilsa upp á vini og kunningja eða stofna til kunn- ingsskapar, og við slika sam- fundi, er ekki örgrannt um dreypifórnir. Auk þess er til þess að; gera ódýrt að fá sér neðan í því á gufuskipunum, þar sem brytinn þarf ekki að greiða neinn toll af vörum sínum, og enda er undan því kvartað, að póstskipin séu svo að segja eins konar veitingahús, þar sem gest- irnir geti auk annars laumað með sér ódýrri hýru í brjóst- vasa, auk hins, sem í magann er komið. En það, sem hér hefur sagt verið, má vel marka, að raunar er ekki hægt að koma drykkjuskaparorði á íslendinga yfirleitt. íslenzku sjómennimir fara oft á veiðar án annarra drykkj arfanga en sýrunnar, sem er daglegur svaladrykkur sveita- fólksins árið um kring. Akureyri er vel 1 sveit sett. Þess vegna er líka um allmikinn garðagróður að ræða þar. — Nokkrar blómategundir, ribs- berjarunnar, rófur, kál og kart- öflur dafnar þarna vel. Bærinn er jafnvel kunnur fyrir kartöflu- garða sína, sem eru nokkur tekjulind eigendunum, enn frægari eru þó kartöfluekrum- ar við heitu uppsprettumar uppi í firðinum . Margra alda kúgun veldur því, að þessi þjóð hefur ekki ennþá rétt sig úr kútnum, og það eru fylgjur þeirrar fortíðar, sem halda henni enn hálfdott- andi með viðkvæðinu: Það er ekki til neins, að ég reyni þetta. Ferðamaðurinn þarf ekki að vera lengi á íslandi til þess að komast að raun um, hvílíkt nægtabúr hafið umhverfis það er. Það er gnótt fiskjar í vatn- inu, og nytjafiskur gengur meira að segja alveg upp að ströndum landsins. Það er því ekki furða, þótt erlendir sjómenn sæki upp að ströndum íslands til veiða, eins og Frakkar, Englendingar og Norðmenn. Árið 1884 voru ís- lenzku fiskimiðin meira að segja heimsótt af Bandaríkjamönn- um. Tvö skip frá hinum kunna fiskbæ Gloucester komu á ís- landsmið til að veiða lúðu. Heim- sókn þessara tveggja skipa er á- gætt dæmi um, hvernig tökum Bandaríkjamenn taka þessi mál. Þegar einn af bandarísku um- boðsmönnunum var á heimleið frá heimssýningunni í Berlin 1880, gisti hann England og heyrði þá enska þorskveiðimenn segja frá því, að þeir fengju oft mikið af lúðu á íslandsmiðum. Þessi fregn vakti athygli í Bandaríkjunum, þar sem söltuð lúða er mjög eftirsótt vara í reykhúsunum, því að það var ljóst, að miklu væri það hag- kvæmara að sækja á íslandsmið en til vesturstrandar Grænlands til lúðuveiða, ef fregnir Grims- bymanna væru á rökum reistar.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.