Heima er bezt - 01.10.1955, Síða 13

Heima er bezt - 01.10.1955, Síða 13
Nr. 10 Heima er bezt 301 biskupssveina. Þeir hittust nærri Skálholti með allmiklu liði á Þorláksmessu sumarið 1433. í stuttu máli sagt, tóku þeir Jón biskup, drekktu honum í Brúará og héldu svo heim. Þrem árum síðar kvæntist Þorvarður Margréti Vigfúsdótt- ur og hófu þau búskap á Möðru- völlum. Þorvarður var stórauð- ugur maður og stórbrotinn, eins og sjá má af því, sem að fram- an er sagt. Hann hafði bú á þrem stórbýlum auk Möðruvalla, Hlíðarenda í Fljótshlíð, Eiðum á Fljótsdalshéraði og Strönd í Selvogi. En hann varð ekki gam- all maður. Talið er að hann hafi andazt 1446, og hafa þau Mar- grét þá aðeins verið 10 ár í hjónabandi. En Margrét bjó á- fram á Möðruvöllum við mikla rausn. Þau hjón eignuðust þrjár dætur, sem vitað er um, Guðríði, Ingibjörgu og Ragnhildi. Árið 1463 hélt hún brúðkaup allra dætra sinna á Möðruvöllum sama daginn, sem áður er sagt. Guð- ríður giftist Erlendi Erlendssyni, sem síðar varð sýslumaður á Hlíðarenda. Ingibjörg Páli Brandssyni, er síðar varð sýslu- maður og bjó á Möðruvöllum, og Ragnhildur Bjarna Marteinssyni frá Ketilsstöðum, síðar sýslu- manni á Eiðum. Allar giftust þær auðugum og mikilsmetnum mönnum. Giftingardagur þess- ara þriggja systra er eflaust einn af svipmestu dögum í sögu Möðruvalla, eins og áður er að vikið. Fjöldi íslendinga eru af- komendur þeirra. Margrét á Möðruvöllum varð gömul. Hún er talin stórbrotin kona og mikilhæf. Hún andaðist árið 1486 eða 33 árum eftir brúðkaup dætra sinna. Eins og áður er sagt, tóku þau Ingibjörg Þorvarðardóttir og Páll Brandsson við búi á Möðru- völlum eftir Margrétu. Þau eign- uðust tvo syni, Bjarna og Bene- dikt, en þeir dóu báðir ásamt foreldrum sínum í plágunni miklu 1494. Tó þá við búi Grím- ur, sem var óskilgetinn sonur Páls, og því ekki kominn af hinni gömlu Möðruvallaætt Lofts ríka. Mikil málaferli urðu þá út af Möðruvallaeignum milli Erlend- ar sýslumanns á Hlíðarenda og Erlendar og Þorvarðar sona hans annars vegar og Gríms Pálssonar hins vegar. Féllu dómar í þeim málum stundum Grími í vil en stundum móti. Varð Grímur að víkja af Möðru- völlum frá 1510—1515 og settist þá á jörðina Þorvarður Erlends- son lögmaður frá Hlíðarenda. En hann naut eigi lengi sigurs- ins í þessu máli, því að hann andaðist 1513. Grímur bjó þá aftur á Möðruvöllum frá 1515 til dauðadags 1527. Lengra verður ekki rakið hér ábúandatal Möðruvalla. MöðruvallaJcirJcja. Ég gat þess í upphafi máls að Möðruvellir hafa verið og eru kirkjustaður. Má ætla, að Guð- mundur ríki hafi fyrstur reist þar kirkju eftir að kristni var lögtekin. Vafalaust hefur sú kirkja verið reisuleg, því að hvorki skorti fé né metnað hjá þeim frændum. Ketill Þor- steinsson hefur vafalaust látið sér annt um kirkjuna og tíða- gerðir þar, svo að til fyrirmynd- ar hefur verið, annars hefði hann tæplega verið 'kosinn biskup. Eigi verður hér rakin saga kirkjunnar, en hana hefur séra Benjamín Kristjánsson ritað í sambandi við 100 ára afmæli hennar og birt í jólablaði „Dags“ 1948. En óhætt er að segja, að í katólskri tíð var kirkjan á Möðruvöllum glæsilega búin að ýmiskonar kirkjugripum, og oft stór og rúmgóð. Enda jafnan auðugir menn, sem þar bjuggu. Skömmu fyrir siðaskipti voru t. d. í henni þrjú ölturu silki klædd með dýrlegum búnaði, gylltum bríkum og máluðum dýrlingamyndum. Auk háaltaris fyrir stafni voru Maríualtari og altari hins heilaga Marteins, verndardýrlings kirkjunnar. En margir þessir dýrgripir kirkj- unnar, altaristöflur og líkneski helgra manna hafa farið for- görðum um siðaskiptin, þegar íslenzku kirkjurnar voru rúnar helgigripum sínum. Hefur ákafi siðaskiptamanna við að eyði- leggj a helgigripi katólsku kirkjunnar verið til mikils tjóns. Þó er enn í Möðruvallakirkju einn dýrgripur frá þessum tíma, en það er altaristafla úr ala- bastri. Altaristafla þessi er ein af elztu og merkustu kirkjugrip- um hér á landi og af svipaðri gerð og altaristaflan að Hólum í Hjaltadal, en talsvert minni, en meira en öld eldri. Má merki- legt heita hvernig hún hefur geymzt yfir siðaskiptin með hin- um katólsku helgimyndum. Vera má að hún hafi verið geymd en eigi í notkun um það leyti. Altaristafla þessi er með tveimur vængjahurðum, og er hægt að loka henni, þegar ekki eru neinar kirkjulegar athafnir. og hefur það eflaust varðveitt hana gegn tímans tönn. Alls eru sjö myndir á aðaltöflunni og vængj ahurðinni að innan. En þær eru þessar: 1. Jóhannes skírari. 2. Boðun Maríu. 3.FæðingJesú.4.Upprisan (fyrir miðju). 5. Himnaför Mar- íu. 6. Krýning Maríu. 7. Jóhann- es guðspjallamaður. Eru manna- myndirnar útskornar úr ala- bastri og talsvert margar á hverri mynd. Sigurður L. Páls- son, menntaskólakennari, hefur upplýst um uppruna töflunnar í 4. hefti Stíganda 1944. Telur hann töflur þessar frá Notting- ham í Englandi og þær elztu þeirra frá 1350. Á 14. öld þróaðist þar þessi listgrein og voru töfl- ur þessar seldar víðsvegar um lönd. Talið er að svipuð tafla sé á Skarði á Skarðströnd. Og er bað eðlilegt, þar sem frændfólk Þorvarðar á Möðruvöllum bjó þar. Talið er að Margrét Vigfús- dóttir hafi afhent kirkjunni töflu þessa til eignar upp í van- goldna kirkjutíund árið 1471. Má af þessu tímatali sjá, hve merk- ur gripur altaristafla þessi er. Eðlilegt er, að kirkjubóndi á Möðruvöllum vilji gjarnan hafa slíkan dýrgrip í kirkju sinni, en hins vegar verður það að teljast varasamt að geyma svo dýr- mætan grip í timburkirkju. Timburkirkja sú, sem nú er á Möðruvöllum, er rúmlega 100 ára og var byggð 1848. Hún er fögur og viðkunnanleg og henni vel við haldið. Fyrir nokkrum árum var hún mjög smekklega máluð af Hauki Stefánssyni. Framhald á bls. 315.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.