Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 37
Skólinn byrjaði snemma hausts 1891. Við fórum saman tvær
systurnar og vorum báðar vinnukonur. Forstöðukonan tók á
móti okkur stúlkunum úti á hlaði, virðuleg og tíguleg, en líka
alúðleg og blíðleg, þótt hún væri kröfuhörð um nám og stjórn-
söm daglega. Og það fann eg alltaf, að hún vildi að við lærðum.'1
Úr bókinni Kvennaskólinn á Laugalandi 1871—1896
BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
vita, þegar Árni kæmi. Og mundi hann þá sjálfur sækja gest
sinn út á flugvöll."
Úr bókinni Flugferðin til Englands
35. UNDRAFLUGVÉLIN
eftir Ármann Kr. Einarsson. Segir frá því, þegar Árni
eignaðist þyrilvængju og margvíslegum ævintýrum í
sambandi við það.
í lausasölu kr. 45.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 32.00
„ . . . Árni vissi ekki, hve lengi hann hafði sofið. Allt í einu
varð hann var við eitthvað á hreyfingu fyrir utan tjaldskörina.
Hann reis upp og hlustaði. Nei, honum skjátlaðist ekki, þetta
var annað og meira en gnauðið í vindinum.
Þey, þey! Nú var eins og eitthvað væri dregið meðfram tjaldinu,
og skyndilega kom hreyfing á tjalddyrnar.
í fyrstu datt Árna í hug, að þetta væri einn leiðangursmann-
anna, eitthvað að athuga eða sækja inn í tjaldið til sín.“
Úr bókinni Undraflugvélin
39. LEITARFLUGIÐ
eftir Ármann Kr. Einarsson. í þessari bók kemur fram á
sjónarsviðið ný persóna — Stebbi sterki. — Og síðasta
ævintýri Árna inn á afréttum er bæði tvísýnt og hættu-
legt. — Bókin er uppseld hjá forlaginu.
6. FALINN FJARSJÓÐUR
eftir Ármann Kr. Einarsson. (2. útg.). Bækurnar um
Árna og Rúnu í Hraunkoti eru orðnar vinsælustu ungl-
ingabækur á íslandi og eru þegar farnar að ná vinsæld-
um erlendis einnig. Þetta er fyrsta Árnabókin, en þær
eru nú orðnar sjö.
í lausasölu kr. 50.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 35.00
„ . . . Jeppinn beygði nú lieim traðirnar. Árni rak upp undrun-
aróp og ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum. Rúna ók bílnum
og Gussi á Hrauni sat við hlið hennar. Kunni hún, — stelpan! —
virkilega að aka bíl, ekki eldri en fjórtán ára. Ja, hún gat svei
mér fleira en að sitja hest. Og hvað var það yfirleitt, sem hún
Rúna gat ekki? Árni virti hana fyrir sér með aðdáun og hrifningu,
þar sem hún sat brosandi við stýrið og sveigði jeppann fimlega
heim á hlaðið.
Rúna og Gussi stukku út úr bílnum.
Þakka þér fyrir, að þú lofaðir mér að aka. Rúna rétti Gussa
höndina og brosti til hans svo einstaklega hlýlega. En hún lét
sem hún sæi ekki Árna.“
Úr bókinni Falinn fjársjóður
14. TÝNDA FLUGVÉLIN
eftir Ármann Kr. Einarsson. Þetta er önnur Árna-
bókin, en hún er því miður uppseld hjá forlaginu.
22. FLUGFERÐIN TIL ENGLANDS
eftir Ármann Kr. Einarsson. Segir frá því, þegar Árna
var boðið til Englands og ævintýrum sem hann lenti i
þar.
í lausasölu kr. 40.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 28.00
„ í bréfinu ítrekaði flugstjórinn heimboð Árna til Eng-
lands. Hann sagðist vera farinn að hlakka til að hitta íslenzka
drenginn, sem fann gömlu, týndu flugvélina hans uppi á jökli.
Hann óskaði eftir, að Árni kæmi eins fljótt og kostur væri á.
Kvaðst hann vera búinn að greiða farmiða fyrir hann hjá Flug-
félagi íslands. Og gæti hann tekið sér far með flugvélum félags-
ins, þegar honum bezt hentaði. Hann þyrfti ekki heldur að hafa
neinar áhyggjur, þegar hann kæmi til London. Þeir hjá flug-
félaginu væru búnir að lofa, að hringja til hans og láta hann
52. FRÆKILEGT SJÚKRAFLUG
eftir Ármann Kr. Einarsson. Þetta er 6. Árna-bókin, og
halda flugævintýri Áma þar áfram, ekki síður spennandi
en hin fyrri. Halldór Pétursson teiknar myndir í allar
Árna-bækurnar.
í lausasölu kr. 58.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 41.00
„ . . . Árni hækkaði flugið, en skyggni var slæmt. Jörð og loft
rann einhvern veginn saman í eina hvíta heild, og auk þess var
enn ekki nærri fullbjart. Þarna yfir fjöllunum var mjög mis-
vindasamt, svo að ómögulegt var að halda flugvélinni stöðugri
í loftinu. Stundum hallaðist hún svo mikið, að það var engu
líkara en henni væri að hvolfa, en þess á milli þaut hún ýmist
beint upp eða hrapaði niður á við. Árna fór hreint ekki að
lítast á blikuna, og var hann þó ýmsu vanur.
Spenntu fastara öryggisbeltið, kallaði hann til Sigurðar. Árni
gaf félaga sínum hornauga. Skyldi hann ekki vera smeykur í
öllum þessum loftköstum og hamagangi?"
Úr bókinni Frækilegt sjúkraflug
66. FLOGIÐ YFIR FLÆÐARMÁLI
eftir Ármann Kr. Einarsson. Og hér kemur svo nýjasta
og skemmtilegasta Áma-bókin, sem segir meðal annars
frá eltingarleik Árna við smyglara og bardaga Gussa á
Hrauni við Orminn ógurlega.
í lausasölu kr. 58.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 41.00
„ . . . Árni ákvað að leggja nú þegar upp í leitina. Rúna og
Helga litla vildu báðar ólmar fá að fara með honum. En þar sem
ekki var sæti í vélinni nema fyrir aðra þeirra, taldi Árni réttast
að taka hvoruga með. Við nánari yfirvegun sé Árni, að ekki kont
til greina að taka neinn með sér, því að ef svo ólíklega skyldi
vilja til, að hann fyndi týnda piltinn, var aðeins rúm fyrir hann
í vélinni. Systurnar urðu að gera sér að góðu að sitja heima að
þessu sinni. Þær urðu að láta sér nægja að hjálpa Árna til að
búast af stað og aðstoða hann við að draga þyrluna út úr skýlinu.“
Úr bókinni Flogið yfir flœðarmáli
15. GULLHELLIRINN
eftir Frances Neilson. Gunnhildur Snorradóttir þýddi.
Þetta er myndskreytt saga frá frumskógum Suður-Amer-
Heima er bezt 361