Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 43

Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 43
Foreldrar Ingólfs voru hjónin Jón Friðfinnsson neta- gerðarmaður, síðast á Akureyri, og Þuríður Sigurðar- dóttir frá Miðkoti í Svarfaðardal. Ingólfur lauk námi og vann síðan í prentsmiðjunni til 1913, að hann ásamt Aðalsteini Sigmundssyni frá Árbót í Aðaldal, síðar kennara, lagði niður vinnu og hvarf frá prentlistinni. Tók þá að leggja stund á skólanám, varð stúdent og kandidat í lögfræði. Hefur síðan gegnt ýmsum opinber- um störfum. Ástæðan fyrir brottgöngunni var talin meðal annars hafa verið sú, að þeir hefðu neitað að fara höndum um handrit úr penna Guðmundar sýslumannssonar Guð- laugssonar, vegna veikinda hans. Hann mun hafa andazt úr berklum. Auk þessara framantöldu vann um sumartíma bakara- sonur austan af Seyðisfirði, Þórarinn Jörgensen að nafni. Prentsmiðjusctlurinn. Þegar inn úr dyrum var komið, frá vestri, blasti við stóra prentvélin fyrir austurhlið, sneri formstæðið til suðurs, en borðið, sem hið prentaða lagðist á, til norð- urs. Sunnan vð prentvélina var vaskurinn; í honum var letrið þvegið eftir prentun. Uppi yfir honum var opinn veggskápur með mörgum hólfum; þar var komið fyrir ýmsu því, sem nota þurfti við undirbúning prentunar- innar. Vestan við vaskinn var stálborð mikið; voru á því blöð og bækur búin undir prentunina. Vestan þess kom lítil leturkassa-dragkista, en vestur af henni prent- vél sú, sem allt smávegis var prentað í; var hún fót- knúin eða stigin. Er þá komið að skrifstofudyrum hús- bóndans. Vestan þeirra kom svo stór leturkassa-drag- kista, þar sem leturkassarnir hölluðust mót norðri og önnur þar norður af, við vesturhlið, en þar hallaðist letur- eða setjara-kassinn mót suðri. Væru tveir að setja úr þessum kössum eða skúffum, sneru þeir saman bökum. Er þá komið að dyrunum. Norðan þeirra var sama fyrirkomulag með staðsetningu leturskúffanna; bökum var snúið saman. Bak við nyrðri leturkassa-drag- ldstuna voru hillur, sem höfðu því hlutverki að gegna að geyma smákassa þar sem í voru strik og ýmsir aðrir hlutir, sem ætlaðir voru til prentskreytingar. Er þá lok- ið við vesturhlið og komið að norðurstafni vestanverð- um. Austur af fyrrnefndu hillu-skoti, voru tvær letur- kassa-dragkistur, en þeirra staðsetningu var þann veg háttað, að þar stóðu setjararnir augliti til auglitis hvor við annan. Þar austatl við kom svo pappírsskurðarhníf- ur. I norðausturhorninu voru snagar fyrir sloppa okkar og handþurrkur utan vinnustunda, en jakka okkar og höfuðföt meðan verið var að verki. Er þá lokið að lýsa hringsviði salarins. Nokkuru austar en um miðjan sal, voru fjórar stoðir undir loftinu, frá suðri til norðurs. Á milli tveggja syðri stoðanna, gegnt prentvélarhjólinu, lá baklaus stigi upp á loftið; í gólfinu, skammt austan stigans, var nið- urgangan í kjallarann; þar voru geymdar pappírsbirgð- ir o. m. fl. Sunnan og vestan til við stigann var hitagjafi okkar prentaranna, ekki mjög gildvaxinn ofn, en nokk- uð hár. Hann hafði þá yfirburði fram yfir marga aðra ofna, að bolurinn var í mörgum fellingum; var því hitaútstreymi hans mun meira en venjulegra ofna, þótt fyrirferðameiri væru. Vestur af ofninum og stiganum var auður gangur til útidyra. Norðan gangs þessa og vestan til í salnum voru einir fjórir kollóttir stólar, sem trépallar þeir, sem letrið var þvegið á eftir prentun, voru staðsettir á, á undan dreifingu letursins í letur- kassana. Var sá verknaður kallaður „aflagning“ og að „leggja af“, sjálft verkið. Norðan við stóla þessa lá gangur austur að nyrðri stoðunum. Milli þeirra var komið fyrir nálega hnéhá- um kassa sem stóð á gólfi og hillu, sem var allt að því Fyrsta prentvélin i Prentsmiðju Odds Björnssonar 1901. Heima er bezt 367

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.