Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 26
lega er, að hér er engirrn venjulegur flóttamaður á ferð- inni. Kravchenko var háttsettur embættismaður, nálægt innsta hringnum í Kreml og er öllum hnútum kunn- ugur. . . .“ Bókin er 564 bls. í stóru broti. Þýðingu gerði Lárus Jóhannesson. í lausasölu kr. 100.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 70.00 „ . . . Nóttin var köld, og ekki sást til stjarna. Mér fannst járnbrautarstöðin full af ógnunum. Hvað myndi gerast, ef ég rækist á einhvern starfsmanna minna og hann gerði viðvart? Ferðatöskurnar tvær og þessi ferð, sem farin var án leyfis, myndi þegar í stað vekja grun hans. Hvað myndi gerast, ef félagi Serov eða Rudenko hershöfðingi hefði þegar komizt að fyrirætlunum mínum? Eins og það væri svar við þessum ótta, kom ég skyndilega auga á mann í einkennisbúningi rauða hersins. Mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds. Ég dró hattinn lengra niður yfir augun, laut dýpra niður í uppbrettan frakka- kragann, læddist fram með múrveggnum og gætti þess að snúa ávallt bakinu við landa mínum. Þar eð embættismenn Ráðstjórnarríkjanna ferðast ætíð með svefnvagni, settist ég inn i almenningsvagn. Þetta dró úr þeirri áhættu að mæta einhverjum, sem þekkti mig. f þessum dimma vagni, sem var troðfullur af syfjuðum mönnum, gat ég hugsað í næði. Mér hafði lengi verið ljóst, að þessi úrslitastund var óum- flýjanleg. Ég hafði undirbúið flóttann í marga mánuði. Eg hafði skoðað hann sem lausn úr völundarhúsi hræsni, gremju og samvizkubits, sem ég hafði reikað um í mörg ár. Hann átti að vera yfirbót mín fyrir þær svívirðingar, sem ég var sakbitinn af sem einn úr hinni ráðandi stétt lands míns.“ Úr bókinni Eg kaus frelsið ÆVISÖGUR 139. EINKALÍF NAPÓLEONS eftir Octave Aubry. „Einkalíf Napóleons er skemmtileg og fróðleg bók, sem sameinar helztu kosti sagnrits og skáldsögu. . . .“ „Franski rithöfundurinn Octave Aubry er einn fremsti ævisagnaritari nútímans. Honum tekzt á aðdáanlegan hátt að sameina krítiska safnritun og skáld lega frásögn. . . .“ Ólafur Hansson. Bókin er 400 bls. í stóru broti, prýdd 16 myndum auk litmyndar. Magnús Magnússon þýddi. f lausasölu kr. 160.00 Til áskr. HEB a'ðeins kr. 110.00 ......Bonaparte stígur á strönd Alexandríu eftir sex vikna siglingu, hinn 2. júlí. Sama daginn er borgin á valdi hans. f brennandi hitanum leggur hann samstundis af stað til Kairo. Arabamir hafa fyllt brunnana, hermennirnir þjást af hita og þorsta og nöldra, þeim sýnist auðnin alþakin brostnum vonum og sviknum loforðum, janfnvel liðsforingjarnir láta hugfallast. Bonaparte er byrstur og ómjúkur í máli. En vonirnar vakna á ný, þegar mjóturnar Kairó og hvítir, tröllvaxnir pýramídamir í gullnum sólarbjarma blasa við. Ljómandi af gieði og með brugðið sverðið hleypir herforinginn fáki sínum meðfram her- línunni og hrópar til manna sinna eldheitum hvatningarorðum, sem í munnmælum hafa orðið þessi: Hermenn, munið að fjöru- tíu aldir líta niður til ykkar." Úr bókinni Einkalif Napoleons 140. SONUR NAPÓLEONS eftir Clara van Tschudi. Höfundur þessarar bóka hefur skrifað margar bækur, einkum ævisögur, sem þýddar hafa verið á fjölda mála og notið mikilla vinsælda víða um heim. — Þetta er saga einkasonar Napóleons mikla. Þó að hann yrði ekki nema rúmlega tvítugur að aldri, varð ævi hans merkileg og áhrifa frá honum gætti mjög í stjórnmálum Evrópu á þessum tíma. Þegar hann fædd- ist, og fyrstu bernskuárin heima í París, var hann dýrk- aður sem eins konar goð, nefndur kóngur af Rómi, og skáldin ortu um hann ljóð í þúsundatali. En ævi þessa manns, sem virtist hafa verið frábærum gáfum gæddur, var stórfelldur harmleikur, eins og menn geta lesið í bókinni. — Guðbrandur Jónsson, prófessor, íslenzkaði og samdi skýringar. Bókin er 242 bls. með mörgum myndum. í lausasölu kr. 130.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 90.00 „ . . . Nú var sonur Napoleons orðinn átta ára. Var þá lokið við undirbúningsnámið og breytt um kennslutilhögun. Við lok þessa fyrsta kennslutímabils bar kennurum hans saman um það, að starf þeirra hefði borið meiri árangur, en þeir hefðu árætt að búast við. Það hafði verið varast það fram að þessu að ofreyna drenginn; en nú varð hann að læra mikið utan bókar. Honum var nú kenndur reikningur, stærðfræði, náttúrufræði, landafræði, mörg mál, þýzk málfræði og saga Austurríkis. Það var fenginn til einn bezti skriftarkennarinn í Vínarborg til þess að laga hina kröbbu- legu rithönd hertogans, og hann átti einnig að gefa sig að garð- yrkjustörfum. Með hjálp Collins byggði hann moldarkofa í hallargarðinum í Scönbrunn, og var hann til skamms tíma sýndur þar og kallaður „hellir hertogans af Reichstadt". Þar eð enginn mælti á franska tungu, lærði hann loks þýzku. En auðvitað var það ekki tilætlunin, að hann skyldi týna niður frönskunni, og því varð það að ráði, að kennarar hans skyldu á víxl tala við hann þýzku og frönsku í kennslustundunum." Úr bókinni Sonur Napoleons 141. EUGENÍA KEISARADROTTNING eftir Octave Aubry: „Ævisaga Eugeníu drottningar sýnir jöfnum höndum merka þætti úr sögu síðustu aldar og óvenjulega tilbrigðaríkar myndir úr örlögum konu, sem á fáa sína líka. . . . Aubry segir þessa sögu með þeirri leikandi snilld, sem er svo að segja í blóðið borin hverjum Frakka, sem fæst í alvöru við bókmenntir.“ Jónas Jónsson frá Hriflu. Bókin er 355 bls. í stóru broti, prýdd 16 mynd- um auk litmyndar. Magnús Magnússon þýddi. I lausasölu kr. 160.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 110.00 „ . . . Veiðarnar hófust aftur. Eugenía reið alltaf við hlið keisarans, nú iét hann hana ekki víkja frá sér. Hún var í reiðföt- um, er voru í tízku á dögum Lúðvíks XV., og hélt á lítilli sviptt og lét ólina hvína á gljástígvélunum með gullnu sporunum. Það ljómaði af andliti hennar, varirnar stóðu hálfopnar, svo skein í hvítar tennurnar, augun sindruðu. Napóleon gat naumast 350 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.