Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 38

Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 38
íku, og segir frá ævintýrum svertingjadrengsins Mikka og hvíta drengsins Tomma. Sagan var lesin í útvarpinu sem framhaldssaga barnanna veturinn 1959. I lausasölu kr. 45.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 32.00 „ . . . Margir dagar voru liðnir. Það voru langir og erfiðir dagar í steikjandi sólarhita eða húðardembum, er létti jafn-skyndi- lega og þær skullu á. Fljótið teygði sig óendanlegt framundan, og á báða bóga lá skógarþykknið alveg niður að bökkum þess. Drengirnir voru aðframkomnir a£ þreytu. Þeir voru næstum því of þreyttir til þess að lyfta upp árunum til þess að róa á móti straumnum. Hið hýra andlit Mikka var nú oftast alvarlegt. Útlit Tomma hafði einnig gjörbreytzt. Hann var nú ekki lengur sami djarfi pilturinn, sem hafði lagt af stað frá tjöldunum fyrir viku síðan. Hvítu fötin hans héngu í tætlum utan á honum og voru svo útötuð í mold og leir, að hvergi sá í hvítan blett. Andlit hans var brúnt og hrjúft af sólbrunanum, og berir hand- leggirnir bólgnir af mýflugnabiti. Báðir voru drengirnir aðfram- komnir af sulti. Þeir höfðu ekki gefið sér tíma til þess að veiða sér fisk í matinn, og matarbirgðirnar fóru ört minnkandi." Úr bókinni Gullhellirinn 11. ÍVIK BJARNDÝRSBANI eftir Pipaluk Freuchen. Höfundur þessarar bókar er dótt- ir hins fræga landkönnuðar og rithöfundar Peter Freuchen. Móðir hennar var grænlenzk. Bókin segir frá því, hvernig grænlenzki drengurinn ívik bjargaði fjöl- skyldu sinni frá hungurdauða með því að berjast við bjarndýr. Margar myndir prýða bókina, sem er í íslenzkri þýðingu Sigurðar Gunnarssonar skólastjóra. í lausasölu kr. 38.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 27.00 „ . . . En ísbjörninn kom nær og nær. Og ívik fannst, að hann stækkaði alltaf og stækkaði, og yrði loks stærri en allt ísfjallið. En þegar fyrsta hræðslan var afstaðin, minntist hann þess, að hann var veiðimaður, sem hélt á gamla spjótinu hans pabba síns í hendinni, — spjótinu, sem lagt hafði svo mörg veiðidýr að velli. ísbjörninn nálgaðist enn meir. Þetta var meðalstór björn, og hann var soltinn." Úr bókinni ívik bjarndýrsbani 30. TÓMSTUNDIR eftir Vald. V. Snævarr fyrrum skólastjóra, er safn smá- sagna, leikrita og ljóða. Er hér um að ræða hugljúft lestr- arefni, sem hollt er börnum og unglingum. í lausasölu kr. 38.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 27.00 „ . . . Ég lagði af stað í hægu veðri með sjúkdómslýsinguna í huganum. Eg var alltaf að rifja hana upp fyrir mér á leiðinni. Ég mátti engu atriði gleyma. Eg skyldi muna allt, ákvað ég með sjálfum mér. Og auðvitað fór ég styttri leiðina, til þess að ná sem fyrst út að Stað. Ég hugsaði lítið út í snjóflóðahættuna á þeirri leið, en herti gönguna, sem mest ég mátti. Eg renndi mér á ská niður Staðarhnjúkinn — þið munið eftir honum, drengir, — og kom standandi niður á grundina ofan við bæinn.“ Úr bókinni Tómstundir 36. DRENGURINN OG HAFMÆRIN eftir Synnöve G. Dahl. í bókinni eru sjö gullfalleg ævin- týri, sem öll böm verða hugfangin af. Bókin er prýdd mörgum skemmtilegum teikningum. Sigurður Gunnars- son skólastjóri þýddi. Bókhlöðuverð kr. 38.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 27.00 „ . . . Þegar Mikki refur kom heim í greni sitt, sagði hann við konu sína: „Nú hef ég boðið skógarbirnunni og allri fjöl- skyldu hennar til miðdegisverðar klukkan fjögur á miðvikudag- inn. Þú veizt, að það skiptir okkur miklu máli að eiga vingott við birnuna." „Já, ég veit það,“ svaraði frúin. „En hvaðan eigum við að fá veizluföngin? Þér er þó vel kunnugt um, að nú eru erfiðir tímar.“ „Mitt er að sjá um það,“ svaraði Mikki. „En nú skal ég segja þér nokkuð: Birnan er orðin svo mikil með sig, að hún hefur ráðið sér barnfóstru." Úr bókinni Drengurinn og hajmarin 42. LEYNDARDÓMUR KÍNVERSKU GULLKERANNA eftir Percy F. Westerman. Davíð Áskelsson þýddi. Hér segir frá ævintýrum og mannraunum Péturs Annesley í leit að hinum dýrmætu ættargripum, kínversku gullker- unum. í lausasölu kr. 55.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 39.00 „ . . . Li Fan var í jafn æstu skapi, þó að sjóræningjaskipstjór- inn væri lagður af stað til að framkvæma fyrirskipanir hans. Hann gekk um gólf í ákafa í móttökusalnum, meðan hann íhugaði ástandið eins og það var. Hann hafði Annesley á valdi sínu. Það var vissulega mikilsvert. En Forsyth hafði sloppið, og það gat haft alvarlegar afleiðingar. Kæmist Forsyth aftur til Hermione, myndi það kosta Li Fan stöðuna. En tækist Tao Ching aðeins að ná strokufanganum, var Li Fan nokkurn veginn óhultur gegn allri íhlutun um fyrir- ætlanir sínar, og auk þess gat hann þá neytt Annesley til þess að segja allt, sem hann vissi um dýrgripina." Úr bókinn Leyndardómur kinversku gullkeranna K. JÓNSI KARLINN í KOTI OG TELPURNAR TVÆR eftir Guðmund L. Friðfinnsson. Jónsi í Koti er karl í krapinu, sem íslenzkum drengjum mun að skapi, telp- urnar tvær, Þura og Stella, eiga margar góðar vinkonur. Bókina prýða teikningar eftir Odd Bjömsson. í lausasölu kr. 25.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 18.00 „ . . . Gráni er betri." „Nei, Rauður er víst betri. Hann skal vera það,“ sagði ég og vingsaði hnappheldunni, sem ég hélt á, en þokaði mér þó um eitt skref aftur á bak, því að ég sá, að Þura stappaði niður fætin- um, og það gat ég verið alveg viss um, að hún væri að verða verulega reið. Við höfðum verið að flytja hrossin og farið að jagast út af reiðhestum feðra okkar. Nú stóðum við á holtinu fyrir utan túnið á Völlum, en þar skildust leiðir. Önnur gatn lá beint heim að bænum á Völlum, en hin í sveig niður með holtinu og út að Vallakoti. Ég átti nefnilega heima í Vallakoti, en Þura á Völlum. Feður okkar voru bræður, til allrar bölvunar fannst mér stundum, og pabbi Þuru var flúttur að Völlum fyrir nokkrum árum, en við höfðum verið í Vallakoti eins lengi og ég mundi eftir mér.“ Úr bókinni Jónsi karlinn i Koti og telpurnar tvœr 41. STRÁKUR A KÚSKINNSSKÓM eftir Gest Hannson. Höfundarnafnið er dulnefni á ung- um, íslenzkum rithöfundi og er bókin myndskreytt af bróður höfimdarins. „Strákur á kúskinnsskóm . . . er skemmtileg bók, og þá er nokkuð sagt. Og hún er vel skrifuð barnabók, þar sem sitt hvað gerist, sem í frásög- ur er færandi. Það er langt síðan ég hef rekizt á jafn ómengaða fyndni í íslenzkri bók. . . .“ — Steingrímur Sig- urðsson. — Bókin er því miður uppseld hjá forlaginu. 71. STRÁKUR í STRÍÐI eftir Gest Hannson. Þessi nýja bók, eftir höf. bókarinn- 362 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.