Heima er bezt - 01.09.1965, Page 5

Heima er bezt - 01.09.1965, Page 5
kauptúnið Djúpivogur, kunnur verzlunarstaður frá tímum einokunarinnar og selstöðukaupmanna. Jörðin Geithellar, er hreppurinn dregur nafn af, er eflaust landnámsjörð, og talinn sá staður er „feður“ landsins byggðu, þótt aðeins væri um vetursetu að ræða. í Landnámu segir, að þeir fóstbræður, Ingólfur og Hjör- leifur, fóru að leita Iands þess, er Hrafna-Flóki hafði fundið, og kanna kosti þess. Höfðu þeir vetursetu í Álftafirði hinum syðra. Þeim leizt landið betra suður en norður. Sögn er til um, að þeim varð vant tveggja geita og leituðu með fjallinu og fundu þær við hella. Þar heita síðan Geithellar. Þingstaður þessara sveita og þar voru jafnan stærri fundnir haldnir, svo sem þing- málafundir. Var ég á einum þeirra sumarið 1908, þeg- ar deilt var um frumvarpið sæla. Var þá öllum þing- heimi veitt kaffi sem í veizlu væri. Fólkið í þessum sveitum hefur löngum verið mér hugstætt, enda leið okkar Austur-Skaftfellinga legið þar um, ef landleið er farin í önnur héruð. Margir bændur eru þar búmenn góðir, fjármenn miklir, gestrisnir og félagslyndir. Má líklegt telja, að hér sé ennþá fólk af ætt Síðu-Halls, en hér verður nú aðeins minnst eins bónda, Þorfinns Jóhannssonar, Geithellum. Hann er sannur aldamótamaður, fæddur árið 1900. Foreldrar hans voru hjónin Helga Einarsdóttir bónda á Geithell- um, Magnússonar hins ríka á Bragðavöllum og Jóhann Jónsson frá Melrakkanesi. Þau bjuggu stórbúi á Geit- hellum á unglingsárum mínum, með mörgu vinnufólki og fjölda fjár. Var mér þá sagt, að frá engu heimili kæmi meira ullarinnlegg en þaðan, enda átti vinnufólk- ið margt fé, en húsbændur þó fleira. Þessi hjón, foreldr- ar Þorfinns og systkina hans, voru mér þá sem fyrir- mynd þess bezta meðal bænda þeirra tíma. Vart hefur nokkur húsmóðir í sveit minnt mig meira á drottningu í ríki sínu en Helga Einarsdóttir. Stjornsöm, vinsæl af Geithellar 1963. Jólmnn Jónsson. fólki sínu og veitul í búi allsnægtanna, þegar hinn unga gest bar að garði. Bóndinn ljúfmenni, ötull og hagsýnn framfaramaður, fjármaður mikill og í fararbroddi við öll verk, er kröfðust frískleika og dugnaðar. Þessi hjón höfðu farið í brúðkaupsferð til Noregs, meðfram til að sjá, hvort betra væri að búa í landi forfeðranna en hér heima. Þegar þau komu heim úr þessari skemmtiför voru þau ekki í vafa. Hér á föðurleifð Helgu, Geithell- um, vildu þau búa, og þar farnaðist þeim vel. Á ævileið mannanna skiptast oft á skin og skúrir. Mitt í stórræðum búskaparins á Geithellum, þegar lokið var smíði og frágangi nýs íbúðarhúss, sem pantað hafði ver- ið frá Noregi, tilhöggvið, kennir bóndinn sjúkleika. Taksóttin, lugnabólgan, hefur náð tökum á honum. Læknar landsins höfðu þá ekki fengið þau meðul, sem dygðu gegn þeim hættulega sjúkdómi. Hann lézt innan fárra daga. Það var haustið 1915, að hann burtkallaðist frá konu og 5 ungum börnum, sem ólust upp með móð- ur sinni, sem hélt áfrarn búskap um árabil. Síðar taka þar við Þorfinnur og Einar bróðir hans. Skipta jörðinni á milli sín og hafa búið þar í tvíbýli, bæði heimilin verið í fremstu röð framfara og fjáreignar. Kona Þorfinns er Guðný Jónsdóttir frá Múla, sem er nágrannabær, einnig stórjörð, sem nú er skipt í þrjú býli, sem öll eru setin af ættfólld Guðnýjar, bróðurbörn hennar. Hún er bú- kona mikil og annast allt innan húss með miklum þrifn- aði og smekkvísi. Vel hefur þess verið gætt, að Geithellar héldu reisn Heima er bezt 317

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.