Heima er bezt - 01.09.1965, Qupperneq 10

Heima er bezt - 01.09.1965, Qupperneq 10
systir Guðrúnar, húsfreyju 12 árum yngri. Húsbónd- inn, Jón Gíslason, eignaðist son með þessari vinnukonu sinni: Jóhannes, fæddur 28. febrúar 1836, og ólst hann upp á Strjúgsá. Hann giftist Rannveigu Þorsteinsdóttur frá Hvassafelli. Elzta bam þeirra var Þorvaldur Jó- hannesson, fæddur 5. júlí 1862. Hann var tekinn í fóstur af þeim hjónum á Strjúgsá. Þorvaldur var vel greindur og prýðilega hagmæltur, en flogaveikur lengst af ævi sinnar. Hrösun sína í hjónabandinu tók Jón sér afar nærri, og jafnvel því fremur sem kona hans var honum jafn ástrík eftir sem áður. Gerðist Jón, um þessar mundir, mjög þunglyndur og einrænn, svo nærri lá sturlun. Um þetta ber vott vísa hans. Kross mig á er knúinn sá, er kveikir þrá úr heimi, engum frá ég manni má, mínu tjá andstreymi. En í þessu hugarstríði sá hann þó eina vök auða, sem sjúkur hugur hans gat laugað sig í. Sú mér treynist svölun bein, er sorgarflein má beygja: Guði hreinum mín þó mein má ég einum segja. Jón Gíslason var hæglátur í framkomu, óádeilinn við menn og vinsæll af þeim er kynntust honum. Samtíma- maður hans um skeið lýsir honum svo: „Hann virtist vera nokkuð dulur í skapi og þungt hugsandi. Hann var djúphygginn, nokkuð sérlegur og öðruvísi en fólk er flest.“ Jón Gíslason naut allmikils álits hjá sveitungum sín- um. Hann var kosinn hreppstjóri í Saurbæjarhreppi. En ekki virðist honum hafa getizt að því starfi, því hann sagði af sér eftir nokkur ár. Samt var hann lengi þar á eftir nefndur hreppstjórinn á Strjúgsá manna á meðal. Jón Gíslason gaf sig lítt að mannamótum í sveitinni. En ánægju hafði hann af héimsóknum vina sinna og við- ræðum við þá. Einn af vinum hans var Magnús Jónsson, sem var bóndi í Stóradal, og þeir Jón því svo að segja nágrannar. Síðan fluttist Magnús að Hólakoti. Áttu þeir oft samræður. Meðal annars ræddu þeir um lífið eftir dauðann, og voru báðir sannfærðir um tilveru þess. Þeir gerðu það með sér, að hvor þeirra, sem fyrr létizt, skyldi gera hinum viðvart, ef þess yrði auðið. Svo var það seint um kvöld, að aflíðandi miðju sumri, að Jón á Strjúgsá gekk út, einn saman. Þegar hann kom inn aftur mælti hann fram vísu þessa: Hér að ofan hægt sig bar, hnoðri í sólarþroti, mun það vofa Magnúsar míns í Hólakoti. Vísa þessi flaug brátt um sveitina og þótti að því leyti merkileg er það vitnaðist að andlát Magnúsar í Hóla- koti hefði borið að mjög á sama tíma og Jón á Strjúgsá sá „hnoðrann". Magnús andaðist 1. júlí 1866. Upp frá bænum á Strjúgsá er alldjúpt og hrikalegt gil eða gjá í fjallið, nefnd Kötlugjá. Segir þjóðsagan að eitt sinn hafi búið í klettunum í fjallinu tröllkona að nafni Katla, og sé gjáin við hana kennd og nefnd Kötlu- gjá. Venjulega er gjáin skuggaleg og grett, en á heið- ríkum sumardögum, þegar sól er gengin til norðvest- urs, beinir hún geislum sínum að gjánni og lýsir hana upp. Er þá eins og hamraveggirnir kasti geislunum brosandi á milli sín í glettnisfullum leik. Eitt sinn var Jón Gíslason að koma heim að Strjúgsá úr ferðalagi, síðla dags, og kveður þá þessa vísu: Gleður Katla grett á brún, gömlum eftir vana, mér þá breiðir móti hún, meyj arspékoppana. Með aldrinum gerðist Jón Gíslason nokkuð þung- fær. Kona hans, Guðrún Jóhannesdóttir annaðist þá alla aðdrætti að heimilinu, og ferðalög þeim viðkomandi. Þorvaldur sonar-sonur Jóns Gíslasonar var eftirlætið hans og yndi í ellinni, og unni Þorvaldur afa sínum mjög. Eitt sinn voru þeir tveir einir saman, Jón og Þorvaldur. Allt í einu hné Jón útaf í sæti sínu, rænu- laus. Þá var Þorvaldur 12 ára, og bar fullt skyn á hvað hér væri um að vera. Varð honum svo mikið um, að hann mátti ekki lengi mæla. Var talið að upp úr þessu áfalli hefði byrjað flogaveikin, er þjáði hann alla æfi síðan. Jón Gíslason á Strjúgsá varð bráðkvaddur 19. janúar 1874, nær hálfáttræður. Þegar frá líður hjúpast jafnan hérvist horfinna kyn- slóða móðu gleymsku og heimildavöntunar um æfi þeirra og eðliseinkunn. Á þetta við um allan þorra manna. Þó er það svo, að upp úr standa alltaf nokkrir tindar, sem seinna gleymast. Það eru menn, sem venju- lega láta eitthvað eftir sig liggja, sýnilega eða sögulegt, eða eitthvað annað, sem lengi líf þeirra í minningum seinni tíma manna, og gerir þá að vissu leyti sýnilega ofar móðu samtíðar þeirra, umfram flesta aðra. Svo var það um Jón hreppstjóra á Strjúgsá. Ekki þó vegna þess að hann léti eftir sig varanleg mannvirki eða annað verðmæti. Varla heldur fyrir það, þó eftir hann séu til góð og vel kveðin kvæði og lausar vísur í varð- veizlu Landsbókasafnins í Reykjavík. Ekkert af þessu hefir orðið til að láta hann lifa í minningu sveitunga sinna, heldur einfaldlega það, að hann, að gáfum, góðri hagmælsku, prúðmennsku og drengskap, var á mörg- um sviðum, — eins og sveitungi hans sagði — „öðruvísi en fólk er flest.“ 322 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.