Heima er bezt - 01.09.1965, Side 16

Heima er bezt - 01.09.1965, Side 16
máli, þótt fiskimiðin væru í nokkurri fjarlægð, heldur en á meðan bátarnir voru knúðir áfram með árinni og handaflinu einu saman. Eftir því sem ég bezt veit, var fyrsta húsið byggt á Þórshöfn nokkru fyrir 1890. Svo stóð á, að verið var að brjótast í því, að stofna þarna kaupfélag, og var búið að panta trjáviðinn í verzlunarhúsið. En eftir að trjá- viðurinn var kominn í land, liðuðust samtökin, sem stóðu að félagsstofnuninni, í sundur, því að ýmsir gengu úr skaptinu, þegar á átti að herða. Þá var allur trjáviður- inn seldur einum og sama manni. Sá, sem keypti, átti einn sjötta hluta af jörðinni Syðra-Lóni og á þeim jarð- arhluta byggði hann fyrsta húsið í Þórshöfn. Sennilega hefur hann rekið einhverja smá-verzlun þarna, því að hann var ávallt nefndur „Borgari“. Mig minnir að sá maður héti Jóhann Jónsson. Hann andaðist á bezta aldri, svo að engar sögur fara af þessu fyrirtæki. Ann- ars höfðu Langnesingar aðallega verzlað við lausakaup- menn, sem kallaðir voru „spekúlantar“ allt frá því í byrjun nítjándu aldar, og hélzt það óbreytt til síðustu aldamóta. Þess verður að geta, að haustið 1889 fékk séra Arn- ljótur Olafsson á Bægisá veitingu fyrir Sauðanesspresta- kalli, sem þá var tahð með beztu brauðum landsins og mjög eftirsótt. Ástæðan til þess, að hann fékk þetta eftirsótta brauð, var augljóslega sú, að hann var þjóð- kunnur maður, sem hafði tekið mikinn og virkan þátt í málefnum lands og þjóðar. Hann var fyrst kosinn á Alþing árið 1858 og lengst af átt þar sæti síðan. Og nú var hann konungkjörinn þingmaður og því mjög í náð- inni hjá stjórnarvöldunum. Hann sat síðast á Alþingi 1891, en þá var hann kominn í Sauðanes sem fyrr segir. Séra Arnljótur var sem kunnugt er maður stórgáfað- ur og hálærður. Einkum var hann vel lærður í lögfræði og hagfræði, enda af sumum talinn fyrsti hagfræðingur landsins. Hvort hann hefur verið jafn mikill guðfræð- ingur, skal ósagt látið. Hann tók ekki embættispróf fyrr en 12 árum eftir að hann lauk stúdentsprófi og var þá búinn að vera alþingismaður fimm ár. Mun slíkt vera einsdæmi í sögunni. Séra Arnljótur var mjög framfarasinnaður á sumum sviðum, einkum í menntamálum, því að vitað er, að hann átti mestan þátt í því, að Möðruvallaskóli var stofn- aður. Hins vegar þótti hann nokkuð íhaldssamur á öðr- um sviðum. Fjármálamaður var hann mikill og hafði all- mikil afskipti af verzlunarmálum á meðan hann var á Bægisá. Fljótlega eftir að hann kom að Sauðanesi (1890) mun hann, svo glöggsýnn maður, hafa komið auga á það, að óviðunandi var, að enginn verzlun skyldi vera á Þórs- höfn, því erfitt var að sækja verzlun til Vopnafjarðar, en þangað var verzlun sótt, nema að því leyti sem verzl- að var við lausakaupmenn. Það er því ekkert vafamál, að hann beitti sér fyrir því, að verzlun væri komið á fót á Þórshöfn. Á þessum árum var annar stórgáfaður maður á Langa- nesi, en þó næsta ólíkur séra Amljóti á allan hátt, svo að þeir gátu ekki unnið saman að framfaramálum hér- aðsins. Þessi maður var Friðrik Guðmundsson bóndi að Syðra-Lóni, sá sem á elliárum sínum í Vesturheimi skrifaði sínar stórmerku endurminningar. Hann var tengdasonur Jakobs Hálfdánarsonar, sem varð fyrsti kaupfélagsstjóri Kaupfélags Þingeyinga og aðalbaráttu- maður við stofnun þess félags. Friðrik var hið mesta glæsimenni, bjartsýnn með af- brigðum og mikill áhlaupamaður, sem beitti sér fyrir alhliða framförum í héraðinu. En hann kom þá stund- um ekki auga á torfærurnar, sem oftast voru til staðar á þeim árum. Eitt af hans mestu áhugamálum var að koma á fót kaupfélagi á Þórshöfn. Fyrsta tilraunin mistókst, svo sem áður er sagt, þar sem selja varð timbrið, er átti að notast í fyrsta verzlunarhúsið. Eftir mikla baráttu tókst honum að stofna félagið nokkrum árum síðar, eða laust eftir 1890. Dafnaði félagið vel í fyrstu og naut mikilla vinsælda. En það var óhamingja þessa héraðs, að þessir tveir stórgáfuðu og mikilhæfu menn, séra Arnljótur og Friðrik, gátu ekki starfað saman. Gamla þingmanninum þótti Friðrik of bjartsýnn og of mikill ákafamaður, og því vildi hann lítið eða ekkert styðja eða skipta við fé- lagið. Tók þá prestur fyrir alvöru að vinna að því, að önnur verzlun yrði sett niður á Þórshöfn. Hann vildi fyrst og fremst að einhver gömul og gróin verzlun setti þar á fót útibú, því að þar væri meira trausts og kjöl- festu að vænta. Og þetta tókst séra Arnljóti. Gamla einokunar- og selstöðuverzlunin, Örum & Wulff, sem rak miklar verzlanir bæði á Húsavík, Vopnafirði og víðar, setti þar á stofn sjálfstæða verzlun, og hefur það líklega verið árið 1897, eftir því sem næst verður komist. Hér sló gamli maðurinn tvær flugur í einu höggi. Hann gat nú alveg farið á snið við hið nýja kaupfélag og jafnframt hafið samkeppni við það. Og svo gat hann þarna komið syni sínum í góða og vel launaða stöðu, því að Snæ- björn sonur hans var gerður að verzlunarstjóra (faktor) á Þórshöfn. Hófst nú hin harðasta samkeppni á milli kaupfélags- ins og einokunarverzlunarinnar. En sú samkeppni gat ekki endað nema á einn veg. Kaupfélagið var févana og skorti lánstraust út á við, svo að það varð að lúta í lægra haldi fyrir ofureflinu. Og nokkru eftir aldamótin (lík- lega 1904) varð það að hætta störfum, en Friðrik flutt- ist vonsvikinn til Vesturheims vorið 1905. En á meðan á þessari hörðu samkeppni stóð, hófst vegur Þórshafnar fyrir alvöru. Það var sannkallaður uppgangstími, því að þangað flykktist margt fólk á þessu tímibili, athafnasamt fólk, sem byggði sér hús og settist þarna að. Fyrst og fremst var þetta fólkið sem starfaði við verzlanirnar. Og svo settust þarna að hand- verksmenn, einkum smiðir, því að þeir höfðu nægilegt verkefni, að byggja yfir fólkið, sem þarna tók sér ból- 328 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.