Heima er bezt - 01.09.1965, Page 22
Leirhöfn á Sléttu.
ríðandi frá Garði í Þistilfirði. — Var þá norðan hríðar-
veður, sæmilega ratljóst, en frost 7—10 stig. Þá fannst
mér leiðin löng og ströng með hríðarkófið í fangið. —
Feginn var ég þá hvíldinni í Kollavík, en þar fengum við
nýjan silung, veiddan í litlu vatni við túnfótinn, en
þetta var seint í marzmánuði.
Oft kom ég síðar í Þistilfjörð og á Langanes og
kynntist þar fólki og búskaparháttum. — Líklega er
Þistilfjörðurinn eitt bezta sauðfjárræktarhérað landsins.
Minnist ég þess ekki að hafa séð í ferðurn mínurn jafn
þéttvaxið og fallegt fé. Segja má að nú sé Þistilfjörður-
inn sæmilega þéttbýl sveit, þar sem heiðarbýlin öll eru
fallin í auðn sem fyrr segir.
Kauptúnið Þórshöfn er við Þistilfjörð á innanverðu
Langanesi, sem kunnugt er, en skammt þar frá er hið
sögufræga prestsetur Sauðanes. A Langanesi hefur byggð
mjög gengið saman, og útgerð að Skálum og byggð þar
alveg lagzt í auðn, en á Skálum voru 7 börn skólaskyld
veturinn 1941—’42.
Oft leggur hafís að Langanesi og eru margar sögur
til um bjarndýr, sem gengið hafa þar á land. Virðast
sumar sögurnar mjög ýktar. En það er auðskilið, að
fólk á afskekktum bæjum hafi verið óttafullt, er þessi
stóru rándýr gengu glorhungruð á land, þar sem fólk
var vopnlaust til varnar.
Hér er ein saga úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar:
Kollavik og Borgir. Viðarfjall i baksýn.
Geirlaug heitir hæsti tindurinn.
334 Heima er bezt