Heima er bezt - 01.09.1965, Blaðsíða 26
Prestssetrið Skeggjastaðir.
„Að Bustarfelli í Vopnafirði var einu sinni sýslumað-
ur, ríkur og stórættaður. Hann var kvongaður og átti
rausnarbú mikið. Sá var siður að Bustarfelli, að fólk
lagðist til svefns á vetrum, áður en ljós var kveikt í bað-
stofu, og réð kona sýslumanns því, altént, hvað lengi var
sofið. Kveikti hún jafnframt sjálf og vakti fólkið.
Það var einhverju sinni, að konan vaknar ekki sem
hún var vön, og fer vinnufólkið á fætur og kveikir.
Vill sýslumaður ekki láta vekja hana. Segir hann að
hana muni dreyma, og skuli hún njóta draumsins. Og
er langt er liðið á nótt, vaknar hún loksins og varpar
öndinni mæðulega. Segir hún nú draum sinn.-----
Henni þótti maður koma til sín og biðja sig upp standa
og fara með sér. Hún gerir það, og fer hann með hana
nokkuð frá bænum og að steini einum stórum, sem stóð
í landareign Bustarfells og hún þekkti. Maðurinn gekk
þrisvar réttsælis í kringum steininn, og sýnist þá kon-
unni hann verða að litlu, en skrautlegu húsi. Leiðir
hann svo konuna inn í húsið.
Þar sér hún að kona liggur á gólfi, og er mjög þung-
lega haldin. Maðurinn bar þá upp erindið við konu
sýslumannsins og biður hana að bjarga konu sinni, sem
liggi á gólfi, og muni deyja, nema hún njóti fulltingis
mennskra manna. Sýslumannskonan gengur þá að sæng-
urkonunni og segir: „Jesús góður hjálpi þér.“ Við þessi
orð brá svo, að huldukonan varð léttari, og verður það
öllum til hinnar mestu gleði.
Nú var tekið til að lauga barnið, og skal sýslumanns-
konan vera fyrir þeim starfa. Fékk sængurkonan henni
bauk með smyrzlum í, sem hún átti að bera í augu
barnsins, um leið og hún laugar það. Þetta gerir sýslu-
mannskonan, og ætlar hún að smyrzli þessi séu heilnæm.
Dettur henni í hug að bera þau í augu sér, en þorir það
ekki fyrir fólkinu. Þó getur hún með lagi, svo að eng-
inn sá, brugðið fingurgómnum í hægra auga sitt. — Er
svo lokið lauguninni, og býst sýslumannskonan til heim-
ferðar. En að skilnaði gefur sængurkonan henni dúk
mjög dýran. Var hann úr guðvef og allur gullofinn.
Gengur svo huldumaðurinn með henni út úr húsinu og
fylgir henni heim að Bustarfelli og skilur þar við hana.
Þegar sýslumannskonan hefur lokið sögu sinni, dregur
hún dúkinn undan höfði sér og sýnir til jarteikna um
sögu sína. Þóttist enginn slíkan grip séð hafa af samri
tegund. Er svo sagt, að dúkur þessi sé enn hafður að
altarisldæði við kirkju þá, sem Bustarfell á kirkjusókn
að.
En frá sýslumannskonunni er það að segja, að hún
fann þá breytingu á hægra auga sínu, sem hún hafði
borið smyrslin í, að nú sá hún allt,sem skeði,bæði í jörðu
og á. Er sagt, að nálægt Bustarfelli séu klappir miklar og
björg stór. Sá nú sýslumannskonan að þetta var raunar
öðruvísi en sýndist, og að þetta voru allt bæir, hús og
þorp stór. Var þetta allt fullt af fólki, sem hagaði sér eins
og annað fólk, sló og rakaði og yrkti engjar og tún. Það
átti naut, sauði og hesta, sem allt gekk saman við annan
búsmala, og eins fólkið. En enginn sá þetta, nema sýslu-
mannskonan. Hún tók eftir því, að þetta fólk var miklu
verkhyggnara og veðurglöggvara en annað fólk. Tók
sýslumannskonan eftir því, að þá kom ætíð þerrir, þegar
það breiddi, en rigning, ef það breiddi ekki, en aðrir
breiddu, og svo var um annan verknað.
Liðu svo fram nokkrir tímar. Það var svo einhverju
sinni, að sýslumannskonan fór í kaupstað. Er hún kem-
ur inn í krambúðina, sér hún að konan, sem hún sat yf-
ir, er þar fyrir innan búðarborðið. Það sér sýslumanns-
konan, að enginn virðist sjá þessa konu, nema hún.
Sýslumannskonan gengur þá að borðinu til hennar og
segir mjög vingjarnlega: „Og við sjáumst þá héma aft-
ur.“ Huldukonan snýr sér við mjög reiðilega og hrækir í
hægra augað á sýslumannskonunni, án þess að segja
338 Heima er bezt