Heima er bezt - 01.09.1965, Qupperneq 26

Heima er bezt - 01.09.1965, Qupperneq 26
Prestssetrið Skeggjastaðir. „Að Bustarfelli í Vopnafirði var einu sinni sýslumað- ur, ríkur og stórættaður. Hann var kvongaður og átti rausnarbú mikið. Sá var siður að Bustarfelli, að fólk lagðist til svefns á vetrum, áður en ljós var kveikt í bað- stofu, og réð kona sýslumanns því, altént, hvað lengi var sofið. Kveikti hún jafnframt sjálf og vakti fólkið. Það var einhverju sinni, að konan vaknar ekki sem hún var vön, og fer vinnufólkið á fætur og kveikir. Vill sýslumaður ekki láta vekja hana. Segir hann að hana muni dreyma, og skuli hún njóta draumsins. Og er langt er liðið á nótt, vaknar hún loksins og varpar öndinni mæðulega. Segir hún nú draum sinn.----- Henni þótti maður koma til sín og biðja sig upp standa og fara með sér. Hún gerir það, og fer hann með hana nokkuð frá bænum og að steini einum stórum, sem stóð í landareign Bustarfells og hún þekkti. Maðurinn gekk þrisvar réttsælis í kringum steininn, og sýnist þá kon- unni hann verða að litlu, en skrautlegu húsi. Leiðir hann svo konuna inn í húsið. Þar sér hún að kona liggur á gólfi, og er mjög þung- lega haldin. Maðurinn bar þá upp erindið við konu sýslumannsins og biður hana að bjarga konu sinni, sem liggi á gólfi, og muni deyja, nema hún njóti fulltingis mennskra manna. Sýslumannskonan gengur þá að sæng- urkonunni og segir: „Jesús góður hjálpi þér.“ Við þessi orð brá svo, að huldukonan varð léttari, og verður það öllum til hinnar mestu gleði. Nú var tekið til að lauga barnið, og skal sýslumanns- konan vera fyrir þeim starfa. Fékk sængurkonan henni bauk með smyrzlum í, sem hún átti að bera í augu barnsins, um leið og hún laugar það. Þetta gerir sýslu- mannskonan, og ætlar hún að smyrzli þessi séu heilnæm. Dettur henni í hug að bera þau í augu sér, en þorir það ekki fyrir fólkinu. Þó getur hún með lagi, svo að eng- inn sá, brugðið fingurgómnum í hægra auga sitt. — Er svo lokið lauguninni, og býst sýslumannskonan til heim- ferðar. En að skilnaði gefur sængurkonan henni dúk mjög dýran. Var hann úr guðvef og allur gullofinn. Gengur svo huldumaðurinn með henni út úr húsinu og fylgir henni heim að Bustarfelli og skilur þar við hana. Þegar sýslumannskonan hefur lokið sögu sinni, dregur hún dúkinn undan höfði sér og sýnir til jarteikna um sögu sína. Þóttist enginn slíkan grip séð hafa af samri tegund. Er svo sagt, að dúkur þessi sé enn hafður að altarisldæði við kirkju þá, sem Bustarfell á kirkjusókn að. En frá sýslumannskonunni er það að segja, að hún fann þá breytingu á hægra auga sínu, sem hún hafði borið smyrslin í, að nú sá hún allt,sem skeði,bæði í jörðu og á. Er sagt, að nálægt Bustarfelli séu klappir miklar og björg stór. Sá nú sýslumannskonan að þetta var raunar öðruvísi en sýndist, og að þetta voru allt bæir, hús og þorp stór. Var þetta allt fullt af fólki, sem hagaði sér eins og annað fólk, sló og rakaði og yrkti engjar og tún. Það átti naut, sauði og hesta, sem allt gekk saman við annan búsmala, og eins fólkið. En enginn sá þetta, nema sýslu- mannskonan. Hún tók eftir því, að þetta fólk var miklu verkhyggnara og veðurglöggvara en annað fólk. Tók sýslumannskonan eftir því, að þá kom ætíð þerrir, þegar það breiddi, en rigning, ef það breiddi ekki, en aðrir breiddu, og svo var um annan verknað. Liðu svo fram nokkrir tímar. Það var svo einhverju sinni, að sýslumannskonan fór í kaupstað. Er hún kem- ur inn í krambúðina, sér hún að konan, sem hún sat yf- ir, er þar fyrir innan búðarborðið. Það sér sýslumanns- konan, að enginn virðist sjá þessa konu, nema hún. Sýslumannskonan gengur þá að borðinu til hennar og segir mjög vingjarnlega: „Og við sjáumst þá héma aft- ur.“ Huldukonan snýr sér við mjög reiðilega og hrækir í hægra augað á sýslumannskonunni, án þess að segja 338 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.