Heima er bezt - 01.11.1965, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.11.1965, Blaðsíða 5
Jón Sigurðsson. Helga Friðgeirsdóttir. ir þessa byggð. Sveitarfélagið kennir sig við Ljósavatn. íbúar Ljósavatnshrepps eru því arftakar forna heitisins Ljósvetningar, þegar það er fært út fyrir heimilisfólkið á Ljósavatni, og hafa þeir löngum borið það með reisn og sóma. II. Jörðin Yztafell er í Ljósavatnshreppi. Bæir þeir, er henni tilheyra, eru norðarlega í áðurnefndum dal. Land býla hennar nær austan frá Skjálfandafljóti, þvert um Kinnarfell, vestur á hágrjót Kinnarfjalla. Stærð lands- ins er talin vera um 30 ferkílómetrar, og er það að lang- mestu leyti gróið land. Lítil á, sem nefnd er Rangá, rennur norður eftir daln- um. í hana fellur í miklum bratta og mörgum fossum um Yztafellsland, úr Kinnarfjöllum, ?máá, sem heitir Gljúfurá. Prýða fossar Gljúfurár útsýn frá Yztafells- bæjum og slá á stundum margradda hörpur fyrir fólk- ið á bæjunum. Um Yztafell segir í bókinni: Byggðir og bú, sem Bún- aðarsamband Suður-Þingeyinga gaf út árið 1963: „Jörðin var að fornu eign Hólastóls. Nafnið jafnan „Fell í Kinn“ í skjölum stólsins. Nafnið Yztafell er í Jarðabók Arna jYIagnússonar. Ábúandi keypti jörðina á uppboði stólsjarða 1805; síðan í sjálfsábúð. Ábúendur frá 1703 eru: Þórður Magnússon til 1735, Hjalti sonur hans 1735—’82, Jónas Einarsson 1782—1822, Jónas Jóns- son, tengdasonur hans, 1822—48, séra Jón Kristjánsson 1848—’63, séra Þorsteinn Jónsson og Guðbjörg Aradótt- ir ekkja hans 1863—’89, Sigurður Jónsson fóstursonur hennar 1889-1917.“ Fólk af stofni Sigurðar Jónssonar býr í Yztafelli enn. Nú er jörðin hins vegar orðin fjögur býli: Yztafell I, Yztafell II, Yztafell III og Hlíð. Þrír bæirnir (Yztafellin) standa í samliggjandi tún- um Kinnarfellsmegin, austan og ofan þjóðvegarins. Þeir bera heitin I og II og III frá norðri talið. Yztafell II stendur nokkru hærra en hinir bæirnir og spölkorn lengra frá veginum. Þar stóð gamli Yztafellsbærinn fyrr- um. Hlíð er aftur á móti vestan Rangár við rætur Kinnar- fjalla. III. „Hver einn bær á sína sögu“ kvað iMatthías Jochums- son. Öll eiga býlin að „Felli í Kinn“ góða sögu gróinda og framfara. Fólkið, sem á þeim býlum býr, er allt sögu- hetjur, sem skila framtíðinni miklum arfi. Hér verður þó að þessu sinni aðallega rætt um elzta bóndann í hópn- um, Jón Sigurðsson, og þráður merkilegrar afrekssögu hans að nokkru rakinn, sérstæður og um margt mjög stórbrotinn persónuleiki hans gerður að umtalsefni í stuttu máli, áður en hann hverfur af sjónarsviðinu. Jón býr að Yztafelli II félagsbúi með sonum sínum Heima er bezt 389

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.