Heima er bezt - 01.11.1965, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.11.1965, Blaðsíða 26
agar L-itm minningabók Jóns H. Þorbergssonar, Ævi- daga, farast Snæbirni Jónssyni þannig orð í ) kunningjabréfi 30. júní 1965: „Enginn mundi neita því, að miklu og merki- legu ævistarfi hefði Jón skilað, þó að hann hefði aldrei skrifað endurminningar sínar, en þó er það sannast sagna, að mikið átti hann óunnið meðan hann hafði enn ekki skrifað Ævidaga. Það fer ekki hjá því, að sú bók verði jafnan talin ein hinna merkustu er út komu á árinu 1964, og ávallt verður hún eitt af heimildarritunum um ís- lenzka menningu og íslenzka menningarbaráttu á fyrra hluta tuttugustu aldar. Hún er um það efni mikil og næsta sérstæð fróðleiksnáma. Og hún kemur víða við og geymir margan þann fróðleik, sem ekki er annars staðar að finna. í henni rekumst við á margan þann fróðleik, sem okkur hefði ekki órað fyrir að þangað væri að sækja. Og aldrei er það að efa, að höfundurinn ástundar að segja sannleikann, hreinan og afdráttarlausan, um hvaða efni sem hann fjallar. Þvílíkur lærdómur að kynnast baráttu þeirra manna, sem á þrem fyrstu áratugum þessarar aldar voru að leit- ast við að hefja lífið í sveitum þessa lands á hærra menn- ingarstig. Þar er saga sem ungri kynslóð væri hollt að kynnast. Háttum er nú svo gerbreytt frá því sem þá var. „Kalt mundi frúnni að klifra um fjöll í klakaspor ekkjunnar Iátnu.“ „The proper study for man is man“, sagði einn af frægustu rithöfundum Englendinga á átjándu öld. Og þó að bók þessi geymi geysimikinn fróðleik af því tægi, sem nú var að vikið, þá er ekki minna um vert að kynn- ast í henni höfundinum sjálfum. Þarna segir mjög sér- stæður maður sögu sína, síns ytra lífs og síns sálarlífs. Hann segir hana blátt áfram, segir hana hispurslaust og án nokkurs mikillætis. En skyldu þeir verða margir les- endur hennar, sem við sjálfsprófun yfir lestrinum geta með einlægni sagt við sjálfa sig: „Þetta hefði ég ósköp vel getað gert líka“? Ég trúi því ekki. Það er ætlun mín, að á mörgum stundum í ævi þessa manns hafi hann þurft á að halda því hugrekki, því þreki og þeirri ráðsnilld, sem tiltölulega fáum er gefin. En hann treystir því allt- af, að forsjónin muni láta vel úr rætast fyrir sér. Og hon- um verður alltaf að þessu trausti sínu. Nærri má geta hvílíkur styrkur honum hefur orðið þetta. Segja má að frá höfundarins hendi hafi þessari bók verið þannig háttað, að ekki þurfti á bókarbót að halda. En alltaf tökum við fúslega á móti því sem gott er. Og það er sannarlega ekki lítil bókarbót að þeim fjölda mynda sem hér eru prentaðar. Hver ein og einasta á er- indi inn í bókina. Já, þetta er góð bók og merkileg. Og gott var að henni var látin fylgja ítarleg nafnaskrá, sem eykur notagildi hennar.“ Hjónin á Hærukollsnesi Framhald af blaðsiðu 405.---------------------- Sigurður hváði og spurði konu sína, hvað drengurinn væri að biðja um, hvort hann væri að biðja um stóra spóninn? En drengur endurtók nú beiðni sína: „Stór bón, stór bón, ég bið þú gef mér Oddnýju.“ „Ekki á ég hana Oddnýju,“ svaraði Sigurður. „Þú verður að biðja hana Katrínu um hana.“ En Katrín var húskona þarna, og Oddný dóttir hennar, þá stálpuð. En svo spurði Sigurður: „En hvað hefur þú, auminginn, að gera við konu? Ekki getur þú séð fyrir konu.“ En þá svarar drengur: „Ég konu, þú konu þig!“ En þetta átti víst að útleggj- ast þannig: „Ég get átt konu alveg eins og þú!“ Eins og oft vill verða um þá, sem eru hálfgerð oln- bogabörn lífsins fara þeir ekki varhluta af ýmsu aðkasti frá samtíð sinni, svo sem uppnefni og fleira þess háttar. Þannig var og um þau Neshjón. Eiríkur var t. d. kallað- ur „Eiríkur heimski“ og „Eiríkur dót“, en Katrín hlaut viðurnefnið „forklæða-Katrín“. Hlaut hún þá nafngift sökum þess, að hún hafði farið í ferðalag og haft lélegt forklæði (átti auðvitað ekki annað). Var henni svo gef- ið nýtt forklæði einhvers staðar á leiðinni, en stakk því niður og notaði það gamla framvegis á leiðinni, og var það lagt út á verri veg, eins og títt er. Þetta frásagnarhrafl sem hér er rifjað upp um þau Neshjón og syni þeirra er að mestu leyti eftir frásögn- um þeirra Ragnheiðar Guðmundsdóttur frá Starmýri, ömmu minnar, og Kristínar Jónsdóttur, fóstru minnar. En Ragnheiður mundi þau Neshjón vel, enda var hún á líku reki og börn þeirra og í sömu sveit. En mildð af minningum þessum hefur fallið í gleymsku sökum þess, hve seint ég fór að rifja þetta upp og verður því ekld umbætt. 410 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.