Heima er bezt - 01.11.1965, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.11.1965, Blaðsíða 11
IX. Jón í Yztafelli hefur tekið mikinn þátt í félagsmálum og er áhugamaður um þau. Hann er samvinnumaður að uppeldi og lífsskoðun. Var einn þeirra manna, sem tóku ungmennafélagshreyfingunni fegins hugar og veittu henni brautargengi. Gekk ótrauður til liðs við Fram- sóknarflokkinn, þegar hann kom til sögunnar. Vann að stofnun héraðsskólans á Laugum og var formaður skóla- ráðsins frá byrjun og til ársins 1934, að hann fluttist úr héraðinu. Hefur átt sæti í stjórnum margra félaga, svo sem: ungmennafélags, bændafélags, skógræktarfélags, lestrarfélags; verið sýslunefndarmaður Ljósavatnshrepps 1917—1934 og aftur síðan 1957; safnaðarfulltrúi 1917— 1960, oft verið kvaddur til nefndastarfa, m. a. af ríkis- stjórninni 1929 í póstmálanefnd, sem lagði grundvöll að miklum breytingum til umbóta á póstmálum í landinu. Jón er í hópi ritfærustu manna landsins. Hann meitl- ar mál sitt og stuðlar. Stíl hans einkenna stuttar, hnit- miðaðar, hreinskornar setningar. Myndrænar líkingar eru honum auðveldlega tiltækar til efnisskýringar og skrauts. Vald hans á íslenzkri tungu sést t. d. vel, þegar hann beitir henni við lýsingar á óvenjulegu landslagi eða við önnur efni, sem torvelt er að skilgreina og tungan hefur ekki tamizt við. Um hann hefur verið sagt, að hann sé orðgnóttarmaður, og er það sannmæli. Hygg ég, að þeir, sem orðtaka bækur, geti haft úr brunni að ausa þar, sem eru bækur hans og ritgerðir, því jafnframt því að hann hagnýtir vel fornmálið, er hann málþróunar- maður. Jón hefur frá ungum aldri verið gefinn fyrir náttúru- athuganir. Telur hann, að fjölþætt gróðurfar og marg- breytilegt landslag að Yztafelli hafi í bernsku og æsku ýtt sterklega undir þá hneigð í fari sínu. Einhvers stað- ar hefi ég séð í riti eftir Jón, að hann nefnir í þessu sam- bandi leikbróður sinn og smölunarfélaga, Helga Jónas- son á Gvendarstöðum, hinn sjálfmenntaða meistara í grasafræði og náttúruathugunum. Má vera, að nágrenn- ið við Helga í æsku hafi haft eitthvað að segja. „Hver dregur dám af sínum sessunaut“. Þá er ættfræðin Jóni mjög hugstæð, og ættgengi. Saga er yndi hans og sífrjótt viðfangsefni, — einkum sam- hengi sögunnar. í þessum greinum og fleirum er hann óvenjulega fróður maður. Sérstaklega er hann yfirlits- fróður. Fræðimannlegt nostur við smærri atriði sam- rýmist síður dugnaði hans og afkastakappi. Yztafell II. (Lengst til vinstri fjós og hlaða.) Súlan, minnismerki um stofnun S. í. S., stendur á grunni gamla hússins. (Lengst t. h. íbúðarhúsið.) Bjarni Sigurðsson fremst á myndinni með hvolpinn Neró i fanginu. Heima er bezt 395

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.