Heima er bezt - 01.11.1965, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.11.1965, Blaðsíða 30
Frá Laugarvatni. nægilega uppbót á Stóradónii er fljótsvarað, því að þennan ósið tel ég hvorki uppbót á Stóradómi né öðru. Þá kemur hér að lokum smá saga, sem heitir: Sá, setn bindur sár annarra, gleymir sínmn eigin. Höfundur skrifar undir dulnefninu Þröstur. Þetta er athyglisverð- ur þáttur saminn af ungum manni. Fyrirsögnin er tákn- ræn. Þessi þáttur birtist í skólablaðinu 1935. SÁ, SEM BINDUR SÁR ANNARRA, GLEYMIR SÍNUM EIGIN Saga þessi gerðist að vetri til. Það var þremur dögum fyrir jól, að Jón gamli á Hamri ætlaði að fara í kaup- stað, til að sækja til jólanna. Það var fjögra tíma gang- ur frá Hamri í kaupstaðinn. Jón fór því snemma af stað að heiman um morguninn, til þess að lenda ckki í myrkri á heimleiðinni. Jóni gekk vel að afgreiða sig í kaupstaðnum, en farið var að skyggja, þegar hann lagði af stað heim til sín, mcð dálítinn poka á bakinu. Veðrið hefði verið milt og gott allan daginn, og gangfæri var frcmur gott. En þó \ ar nokkur lausamjöll. Þcgar Jón var kominn hálfa lcið heim, tók að snjóa. Fyrst duttu snjókornin með hægð niður á jörðina, en brátt fór að hvessa og eftir litla stund var kominn á blindbylur. Jón gamli fór nú að verða stórstígari, því að hann vissi, að það var ekkert gaman, að komast í kast við höfuðskepnurnar, þegar þessi hlið- in vissi að. Jón hélt nú áfram, eins hratt og hann gat, en eftir nokkra stund var hann orðinn villtur, og það bætti ekki úr að færðin versnaði svo, að varla var hægt að komast áfram. Jón hafði verið inikið karlmenni á sínum yngri ár- um, en nú fannst honum eins og hann vera öllum heill- um horfinn, einn og villtur í þessu veðri. En ekki dugði annað en halda áfrain meðan þróttur entist, og það gerði hann Iíka. Nú fór að hvessa enn meira og snjókoman fór að sama skapi vaxandi, og var nú Jón orðinn svo magn- þrota, að hann ætlaði að fara að leggjast fyrir.Nei! Hvað var þetta? Hann rak fæturna í citthvað, og það undar- legasta var, að þetta var maður, sem var yfir kominn og örmagna af þreytu og lagstur fyrir. Það var eins og Jón gamli glcymdi öllum erfiðleikum og þreytu. Hann sá það eitt, að þarna var maður, sem þurfti hjálpar við, og var enn verr á sig kominn, en hann sjálfur. Þetta gaf honum svo mikið þrek, að hann tók manninn, sem lagst- ur var fyrir, upp á herðar sér og byrjaði á nýjan leik að brjótast áfram í ófærðinni. Þegar hann hafði haldið áfram um stund, sá hann rofa fyrir Ijósi skammt frá sér. Er hann hafði gcngið um stund á Ijósið, birti ofurlítið, 414 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.