Heima er bezt - 01.11.1965, Side 32

Heima er bezt - 01.11.1965, Side 32
til 1965 eða í 37 ár. Á þessum árum hafa fjórir menn haft með höndum stjórn skólans. Fyrsta skólaárið 1928 til 1929 var skólastjóri sr. Jakob Ó. Lárusson, þá tekur við skólastjórn Bjarni Bjarnason skólastjóri, sem stjórn- aði skólanum um þrjá áratugi með sterkum, hlýjum tök- um. Frá 1. janúar 1959 til 1. september sama ár, var skólastjóri hinn frægi íþrótta-snillingur Vilhjálmur Ein- arsson, en skólaárið 1959 til 1960 tók við skólastjórn Benedikt Sigvaldason, sem kennt hafði áður við skól- ann. Hefur hann verið skólastjóri frá hausti 1959 til þessa dags. Hefur skólastjórn hans reynzt farsæl og traust. Vík ég þá aftur að staðar-valinu, sem mestar deilur stóðu um. Má það teljast mikil gæfa fyrir Suðurlands- undirlendið og landið allt, að Laugarvatn varð fyrir val- inu sem skólasetur. Vígðalaug, sem fornmenn voru skýrðir í, er ef til vill hamingjutákn staðarins. — Laug- arvatn, hið forna óðalssetur, með skólana fimm, íþrótta- hús, sundlaug, gufubað og nýgert, víðlent íþróttasvæði, er einstæður staður á íslandi. Og gæti þetta fagra skóla- hverfi hvergi átt betri aðstöðu. Þarna styður allt reisn og fjölbreytni staðarins. Þarna er nægur jarðhiti, fagurt umhverfi og Laugarvatn vel í sveit sett bæði að fornu og nýju. Laugarvatn á væntanlega mikla framtíð. Á liðnu sumri hélt æskulýður íslands fjölmennt íþróttamót og héraðshátíð að Laugarvatni. Flygg ég, að enginn, sem þetta mót sótti, gleymi nokkurn tíma Laugarvatni. Veðurblíðan var einstök, og framkoma mótsgesta og íþróttafólks í ágætu samræmi við fegurð og helgi staðarins. Stefán Jónsson. Einn vinsælasti höfundur dægurlaga og dægurljóða, varð sjötugur nýlega. En hann er líka þekktur málari og hafði fyrir skömmu málverkasýningu í Rcykjavík og V'estmannaeyjum. Seldust mörg málverk á sýningunum. Þessi velþekkti málari, skáld og tónlagasmiður er Freymóður Jóhannsson, starfsmaður á Hagstofunni. f sambandi við ljóð og lög nefnir hann sig 12. september. í sambandi við sjötugs-afmæli hans, fékk ég lcyfi hans, til að birta í nóvemberblaði Heima er bezt, dægur- ljóð við dægurlög eftir skáldið, og aðeins eftir hann einan í þetta skiptið. Mörg falleg Ijóð eftir Freymóð hafa áður birzt í þessum þætti. Ég hef valið þessi ljóð til birtingar úr bæklingi, sem heitir: Textar við lög eftir 12. september. Fyrsta ljóðið, sem birtist hér heitir Heimþrá. Erla Þorsteinsdóttir hefur sungið ljóðið inn á hljómplötu. HEIMÞRÁ Mig dreymir heim um dimmar, kaldar nætur, mig dreymir heim til þín, ó móðir kær, er hjarta þreytt í húmi dapurt grætur og hníga tár, sem þú ein skilið fær. Og þegar blessuð sólin, gegnum glugga, með geislum sínum strýkur vanga minn, mér finnst það vera hönd þín mig að hugga — og hjartað öðlast ró við barminn þinn. Er sunnangestir sumarlandsins berast á söngvavængjum norður bjartan geim, og vinir fagna, — vorsins undur gerast, — þá verður yndislegt að koma heim. Þá kemur næst ljóðið: Blikancii haf. Þetta ljóð hefur verið sungið á hljómplötu af Sigurveigu Hjaltested og Sigurði Ólafssyni. BLIKANDI HAF Hann: En hvað það er dásamlegt að dansa hér, dansa við þig einmitt þetta lag. Endurminningarnar streyma móti mér. Hún: íManstu forðum þennan sama dag, Bæði: er við stóðum frjáls og glöð á Bláteigsbrún. Blikandi hafið seiddi okkar þrá. Gáruðu fliit þess léttskreið fley með ljós við hún. Lagið okkar beggja fæddist þá. Hún: Þetta kvöld var ógleymanleg unaðsstund, er við nutum bæði, — ég og þú. Ljósaskiptin breiddu frið um fjöll og sund. Hann: Flýtum okkur, — hverfum þangað nú! Bæði: Lokum augum, svífum út á Bláteigsbrún, blikandi hafið svalar okkar þrá. — 416 Heima er beit

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.