Heima er bezt - 01.11.1965, Side 33
Heyrum í fjarska,langt frá strönd um laut og tún
— lagið okkar beggja hljóma þá.
Þriðja ljóðið er Frostrósir. Haukur Morthens hefur
sungið ljóðið á hljómplötu.
FROSTRÓSIR
Þú komst til að kveðja í gær.
Þú kvaddir og allt varð svo hljótt.
Á glugganum frostrósin grær.
Ég gat ekkert sofið í nótt.
Hvert andvarp frá einmana sál,
hvert orð, sem var myndað án hljóms,
nú greinist í gaddfreðið mál
í gervi hins lífvana blóms.
Er stormgnýrinn brýzt inn í bæ
með brimhljóð frá klettóttri strönd,
— en reiðum og rjúkandi sæ
hann réttir oft ögrandi hönd. —
Ég krýp hér og bæn mína bið,
þá bæn, sem í hjartanu er skráð:
„Ó, þyrmd’ ’onum, gefð’ ’onum grið! “
Hver gæti mér orð þessi láð.
Þá kemur hér síðast: Æskan skemmtir sér. Haukur
Morthens hefur sungið þetta ljóð.
ÆSKAN SKEMMTIR SÉR
Komdu hingað Kalli,
komdu Sigga mín,
Pétur, Gunnar Palli,
Petra, Sigurlín,
Auður, Kristín, Anna,
Óðinn, Þór og Freyr.
Helga, Beta, Hanna,
Hermann, Jón og Geir.
Nú skulum við syngja saman,
syngja og dansa — tralla, lalla, Ialla, lalla.
Allir hafa af því gaman,
ekki að stanza — ha, ha, ha, ha!
Hér er engu illu að leyna,
allir mcð hreinan skjöld.
Fjöldi meyja, fjöldi sveina
fagna stöðugt þessu eina:
Dynjandi dansi í kvöld!
Bakkus er hér ekki.
Allt hans fylgdarlið,
ramma reykjarmekki,
róstur, drykkjumið
forðumst við og flýjum.
— Feigðin á þar skjól. —
Dugum degi nýjum
djörf í morgunsól.
En nú skulum við syngja saman,
syngja og dansa — tralla, lalla, lalla, lalla.
Allir hafa af því gaman,
ekki að stanza — ha, ha, ha, ha!
Hér er engu illu að leyna,
allir með hreinan skjöld.
Öllum þeim, sem ennþá bíða
og okkar reglum vilja hlýða,
bjóðum við á ball í kvöld.
Umbeðin ljóð, sem mér hefur ekki tekizt enn að finna,
koma vonandi bráðum í leitirnar.
Stefán Jónsson, Skeiðarvogi 135.
BREFASKIPTI
Jóna K. Sigurðardóttir, Hjartarstöðum II, Eiðaþinghá, Suður-
Múlasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt á aldrinum 17—18 ára.
Vna Þ. Steinþórsdóttir, Hjartarstöðum I, Eiðaþinghá, Suður-
Múlasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt á aldrinum 15—16 ára.
Páll Jólmnnsson, Eirikur Kristjánsson, Birgir Stefánsson, Páll
Þórðarson, Benedikt Steingrimsson, Friðbjörn Guðmundsson, Jón
Gissurarson, Sigurður Ingþórsson og Bragi Kristinsson, allir í
Bændaskólanum að Hólum í Hjaltadal, óska eftir bréfaskiptum
við stúlkur á aldrinum 16—18 ára.
Guðrún Katrin Konráðsdóttir, Haukagili.Vatnsdal, Austur-Hún.,
óskar cftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 14—16
ára. Æskilegt að mynd fylgi.
Ásta M. Sigfiísdóttir, Húnabraut 3, Blönduósi, Austur-Hún.,
óskar cftir bréfaskiptuin við pilta eða stúlkur á aldrinum 15—16
ára.
Erla Hafliðadóttir, Ögri, Ögurhreppi, Norður-ísafjarðarsýslu,
óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinura 24—25 ára.
Sigrún Ólafsdóttir og Hildur Ása Benediktsdóttir, báðar á Hér-
aðsskólanum á Laugum, Reykjadal, Suður-Þingeyjarsýslu, óska
eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 16—18 ára.
Ingólfur Friðbjömsson, ísólfsstöðum, Tjörnesi, Suður-Þingeyjar-
sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 26—32 ára.
Sigriður Bjömsdóttir, Ytra-Hóli, Austur-Húnavatnssýslu, óskar
eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 15—16 ára.
rratldór Gislason, Grund, Súðavík, Norður-ísafjarðarsýslu, óskar
eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 14—17 ára.
.Eskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi.
Heima er bezt 417