Heima er bezt - 01.11.1965, Side 34

Heima er bezt - 01.11.1965, Side 34
FIMMTI HLUTI — Ég fór líka snemma að sofa í gærkvöld. — Já, elskan, þú varst góða barnið að sofna svona snemma í gærkvöld, segir hann í örlítið glettnislegum gælurómi. — En fóruð þið Nanna seint að sofa? spyr Erla blátt áfram og barnalega. — Já, við tókum svefninn nokkuð seint. — En af hverju spyrðu að því? — Af því að þið vöknuðuð svo löngu á eftir mér. — Hefur þú nokkuð fylgzt með því, hvenær við vökn- uðum, fyrst þú hefur verið úti í morgun? — Já, þegar ég kom að tjaldinu eftir morgungöng- una, sváfuð þið, og svo vildi ég ekki gera ykkur ónæði, og þess vegna lagðist ég hérna fyrir í sólbaði, meðan ég beið eftir að þið skylduð vakna, — og héðan af hef ég fylgzt með því, sem gerzt hefur inni í tjaldinu. — Stelpan þín! segir Snorri brosandi í glöðum ávít- unartón. — Svona hefur þú þá leikið á okkur. Erla horfir einlæg og full trúnaðar á bróður sinn og segir alvarlega: — Ég segi engum frá því sem ég sá, Snorri minn. — Jæja, Erla mín, þú máttir vita fyrst af öllum leynd- armálið okkar Nönnu, ég veit að þú geymir það vel með okkur, þangað til við gerum það sjálf opinbert. — Já, því máttu trúa, ég skal aldrei bregðast ykkur, mér þykir svo innilega vænt um ykkur bæði! — Já, ég hefi alltaf vitað, að ég ætti góða systur. Og nú skulum við fara inní tjaldið og vita hvað morgun- kaffinu líður hjá Nönnu okkar. — Já, það skulum við gera. Síðan rísa þau bæði á fætur og fylgjast að inní tjaldið. Nanna hefur heyrt samtal systkinanna fyrir utan tjald- skörina, og hún treystir Erlu eins og góðri systur. Kaff- ið er tilbúið, þegar systkinin koma inní tjaldið og ljúfan ilm þess leggur á móti þeim. — Góðan daginn, Nanna mín, segir Erla og brosir af meiri innileik til stallsystur sinnar en nokkru sinni áður. — Góðan daginn, vina mín. Mikið hlýtur þú að vera orðin þurfandi fyrir hressingu. — Já, nú langar mig verulega mikið í kaffi. — Það er nú líka loksins tilbúið hjá mér. Gerið þið svo vel. Systkinin taka sér sæti, og Nanna rennir í bollana. Síðan setzt hún einnig sjálf, og þau drekka öll morgun- kaffið með mestu ánægju. En á meðan þau sitja að kaffi- drykkjunni, segir Erla við bróður sinn: — Hve lengi megum við vera í Þórsmörk að þessu sinni, Snorri minn? — Það er nú farið að styttast. Ég lofaði mömmu í gær að heimsækja hana á sjúkrahúsið í seinni heimsókn- artímanum í dag, og því má ég ekki bregðast. Við dvelj- um hér framyfir hádegið, en strax upp úr því verðum við að kveðja þessa jarðnesku paradís okkar að þessu sinni. — Við getum farið í svolitla gönguför fram að hádeg- inu. — Já, og það skulum við líka gera og njóta tímans vel. Þegar þau hafa lokið við að drekka kaffið, leiðast þau öll burt frá tjaldinu og njóta sumarmorgunsins bjarta úti á víðáttum óbyggðanna. Hvert spor þeirra er sam- stillt, og sólskin lífsins í hverju brosi. En stundin er hraðfleyg og fljót að líða, og fyrr en varir er komið há- degi. Þau halda þá heim aftur í tjaldið, og hádegisverður er snæddur. En strax að því loknu er farangurinn tekinn saman til heimferðar. Éitla ævintýrahöllin hvíta hverf- ur úr skógarjaðrinum, og unga fólkið stígur ferðbúið uppí bifreiðina. Kvödd er Þórsmörk með ljúfsárum trega, en ógleymanleg endurminningin lifir. Og bifreið- in rennur af stað í áttina heim til borearinnar. VII. Þöglar ástir Degi er tekið að halla. Snorri ekur heim að húsi for- eldra sinna og stöðvar bifreiðina við garðshliðið. Magn- ús lögmaður kemur þegar út og fagnar unga fólkinu hlýtt og innilega. Feðgarnir hjálpast síðan að því að losa farangurinn úr bifreiðinni, en stallsysturnar ganga sam- 418 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.