Heima er bezt - 01.06.1973, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.06.1973, Blaðsíða 7
Unnur og Tryggvi og öll börn þeirra, sem eru á lifi. Fremri röð frá vinstri: Haukur, Kristin, (Unnur, Tryggvi), Ingunn, Helga. — Aftari röð frá vinstri: Sveinn, Dagur,- Hjörtur, Asgrímur, Eysteinn, Ingi. (Ljósm.: Ljósmyndastofa Péturs, Húsavik). upp á húsráðendur og ræða framtíð íslenzkra nytja- skóga. Tryggvi Sigtryggsson hefur hlotið verðlaunabikar Skógræktarfélags íslands, og árið 1972 hlaut hann gull- merki þess og var gerður þar að heiðursfélaga. Að stétt og stöðu hefur Tryggvi Sigtryggsson verið nýræktarbóndi. í mörg ár var hann í stjórn Búnaðar- sambands Suður-Þingeyinga, lengst af gjaldkeri, en einnig formaður. En víðar hefur hann komið við sögu. Hann hefur frá fyrstu tíð verið félagshyggjumaður af lífi og sál. Hann var meðal brautryðjenda að stofnun Héraðsskólans á Laugum, sem ungmennafélögin áttu frumkvæði að. í mörg ár var hann prófdómari við skólann og kenndi þar á stundum í forföllum. Hvað eftir annað og einnig í mörg ár hefur hann verið formaður skólaráðsins og er það enn. I skólanefnd fræðsluhéraðs Reykdælahrepps var hann mörg ár. Auk alls þessa hefur hann haft áhuga á stjórnmálum og látið þau til sín taka. Það sem nú hefur verið upp talið, mun mörgum þykja ærið ævistarf og að margt hafi þar hlotið að vera unnið í hinum svonefndu „tómstundum“, sem nú eru mjög á dagskrá. Það er misskilningur. „Tómstundir“ er óþekkt hugtak Tryggva Sigtryggssyni. Langur vinnu- dagur og lítil hvíld, samhjálp og samheldni fjölskyld- unnar, eiginkonu og barna, og arfurinn frá heimilis- menningu Hallbjarnarstaða, eru grundvöllurinn að af- köstum hans. Veraldarauður og kaupmáttur launa er það ekki, þótt ranglæti þjóðfélagsins gegn öryrkja bændum væri Tryggva Sigtryggssyni jafnan ríkt í huga og sé enn. Það er aðeins einn sterkur þáttur í arfinum frá Hall- bjarnarstöðum, sem hér hefur verið festur á blað. Þeir voru fleiri. Ungur lærði Tryggvi Sigtryggsson af föður sínum að leika á fiðlu. Síðan hefur hann aldrei við hana skilið. Við hliðina á ræktunarstörfunum hefur tónlistin verið honum helgur hollvættur. Hvenær honum hefur gefizt tóm til að handleika fiðlu sína fjölmörgum sinnum alla ævi, er eitt af dularfullum fyrirbrigðum mannlífsins. Og enn þann dag í dag strýkur hann boga sínum um strengi hins helga hljóðfæris. Hann er einn af síðustu kvistunum á meiði, er eitt sinn var laufríkur, þegar leikið var á fiðlu á a. m. k. helmingi heimila í þessu héraði. En ekki nóg með það. Tryggvi hefur tekið þátt í hverju söngfélaginu af öðru og að síðustu sungið með Karlakór Reykdæla í fjölda ára. Hann söng með kóm- um veturinn 1971—72 og tók þátt í söngmóti Karlakóra- Heima er bezt 187

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.