Heima er bezt - 01.06.1973, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.06.1973, Blaðsíða 25
KVEÐ ÉG mér til hugarhœgðar HÓLMFRÍÐUR JÓNASDÓTTIR er fædcl 12. sept. 1903 í Grundarkoti í Blönduhlíð, Akrahreppi. Foreldrar voru hjónin Anna Jónsdóttir og Jónas Jónasson bóndi á Hof- dölum í Viðvíkurhreppi. Hólmfríður lauk námi frá Kvennaskólanum á Blönduósi 1922. Hefur stundað barnakennslu nokkra vetur. Eftir hana hafa birzt nokkur kvæði i tímaritum. Hólmfríður hefur verið bú sett á Sauðárkróki síðan haustið 1932. NÝÁRSBÆN Nú tek ég ofan hörpuna og hristi ryk af streng og hjartað fer að syngja með fagnandi róm. Til fundar við þig, nýja ár, í gleði minni ég geng og gef þér þessi fölu hugans blóm. Þótt jörðin faldi hvítu og fjúki í snauðra skjól, fræ í moldu sofi og dreymi um Ijós og yl, hún gengur senn á mót við hina gulhnhærðu sól, sem gefur öllu von um þáttaskil. Enginn veit hvað nýárið til íslands stranda ber, er ógna vítissprengjur og frelsisstríð er háð. Vér biðjum þess af alhug að auðnan fylgi þér til árs og friðar, kæra fósturláð. Þótt dimmt sé úti í heimi og dauðinn kveði Ijóð með draugarödd og heimti fórn í kalda grafarró, vér biðjum þess, að saurgi aldrei íslenzkt blóð hinn yndislega, hvíta nýárssnjó. GAMALT STEF Þá lokið dagsins önnum er og ómar blítt í strengjum. En rökkurblámi um byggðir fer, við búumst heim af engjum. Við tauminn fákar leika létt um laufi vaxnar grundir. Þeir fara á tölt og taka sprett, svo titrar foldin undir. Við erum ung og líðum létt um Ijóðs og söngva geima, og heyið allt í sæti sett, — en svefn og draumar heima. Þó vesturf jallsins bratta brún sé böðuð kvöldsins skuggum, skín aftansól um austurtún, og eldar brenna á gluggum. UNDIR BERUM HIMNI í garði mínum ei gróa blóm, en gras handa litla Rauð. Það ilmar þar svalt og sumargrænt í sóldagsins vítamínsauð. Þó glittir á fallegan fífilkoll og fannhvíta baldursbrá, menn segja það illgresi, en augu guðs umlykja fegurð þá. í garðinum slegið grasið er — það gustar og ljárinn hvín. Ó, fífill með bjartan blómsturkoll nú bíður dauðinn þín. Og litla mjallhvíta baldursbrá, — sem ber þetta tigna nafn — þú fellur sem hvert annað feyskið strá í flesjunnar jurtasafn. Ég breiði úr múgum og bylti þeim við nú bregst mér þurrkurinn ei, en þornar við sól og sunnanvind hið safaríka hey. Ég teyga loftið í sælh sátt við sumarsins bænagjörð. lífsins eilífa andardrátt og angan frá sleginni jörð. Þegar sumarið kveður með söng og yl og sóldaggir breytast í hrím, og hjónum, sem byggðu sér hreiður í vor, í haust verður þyngra um rím. Þá veturinn gengur með hörku í hlað og hefur sinn volduga dans, mun glóhærðum fola þá gistingin föl, og gjöfin í jötuna hans. Heima er bezt 205

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.