Heima er bezt - 01.06.1973, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.06.1973, Blaðsíða 24
var á ákvörðunarstað, leizt þeim hins vegar ekki á að vinna neitt við skipið, þar sem mikill sandur var kom- inn að því, þótt vel hefði verið gengið frá því árið áður, og álitu því, að orðið væri of áliðið sumars til þess að reyna að ná því út, er aðstæður reyndust þannig. Sneru því aftur án viðstöðu. Eitthvað yar skipið lekt, því að á hverju vori þurfti að dæla það svo dögum skipti (með handdælu). Var það jafnan gert áður en vinna hófst þar að öðru leyti, og fékk jóhann oftast til þess menn frá Fagurhólsmýri og Kvískerjum. Sumarið 1923 var svo gerð lokatilraun til að ná skip- inu út. Hófu þeir vinnu við skipið þegár um sumarmál. Var því lyft upp úr sandinum enn að nýju, og fært út að sjó á dráttarbraut, sem lögð var á sléttan sandinn, og á þessum stað allfastur í sér og þéttur. Brautin var úr eik, smurð blautsápu þá er skipið mjakaðist áleiðis. Stál- bitar höfðu verið boltaðir lóðrétt á skippssíðurnar, tveir á hvort borð, er námu nærri niður að brautinni hvorum megin, en þar á milli hafðir eikarklossar. Akkeri voru sett út í sjó, eins og gert hafði verið fyrsta sumarið, með vír í skipið, og festur í skipsvinduna (gufuvind- una). Voru sett á hana handföng eða sveifar og vind- unni síðan snúið með handafli, (meðan skipið var á þurru landi) og voru þá nokkrir menn við vindunna. Þokaðist skipið þannig mjög hægt eftir brautinni, og aðeins örstuttan spöl á dag; enda ætíð viðhöfð fyllsta aðgætni. — Þegar nokkuð var liðið á sumar, var það samt komið vel út að sjó, sem var þó dálítill spölur. Ekki var búist við, að akkerin ein dyggðu til þess að hægt væri að draga skipið á flot, eftir að brautinni sleppti. Varð því að ráði, að fá björgunarskip Vest- manneyinga Þór, til þess að draga togarann síðasta spöl- inn. Það var um miðjan ágúst, að undirbúningi var lok- ið, og allt tilbúið fyrir úrshtatilraun að ná honum út. Daginn, sem Þór kom, var dálítill brimsúgur við ströndina, en þó ekki til verulegrar hindrunar, og því þegar hafizt handa um aðgerðir. Er Þór fór að draga, þá er leið að háflóði, og skrúfa togarans að sjálfsögðu einnig látin vinna með, virtist allt ætla að ganga að óskum. Togarinn færðist úr stað og skreið áfram, eða réttara sagt aftur á bak, því að þannig lá hann í f jörunni. Flaut hann út í lón, en hafði ekki langt farið er varð torfæra í vegi. Hinum megin lónsins var sandrif eða eyri, sem togarinn komst ekki yfir, og sat hann þar fastur. Sjaldan er ein báran stök, og svo varð hér. Því að svo óheppilega vildi og til, að vír flæktist í skrúfu togarans. Mun það ekki síður hafa ráðið úrslitum hvernig fór. Litlu munaði að vísu, að skipið kæmist á flot, en frekari tilraunir voru áhtnar þýðingarlausar. Þannig fór um tilraunir þessar, sem svo lengi höfðu staðið, og gerðar höfðu verið af forsjá og dugnaði, að strönd úthafsins bar hærra hlut. Jóhann Hansson, sem verið hafði aðaldriff j öðrin í þessum framkvæmdum og sjálfur séð um þær, var kunnur dugnaðarmaður og jafn- framt gætinn og athugull. En fram á þá tíma, og raunar lengur, mun það hafa verið mjög fátítt að tækist að ná strönduðum skipum við sandana sunnlenzku, og raunar ekki áður unnið að því af slíkri þrautseigju og hér hafði verið gert, þó að ekki bæri árangur. Fljótlega barst togarinn dálítið upp aftur, og var hann rifinn að allmiklu leyti um sumarið, svo sem þilfarið, íbúðarherbergin, timbur úr fiskilestinni, möstrin o. fl. Ennfremur gufuvélin að talsverðu leyti. Sumarið eftir sótti Jóhann hið helzta af því, ásamt verkfærum og nokkru af timbrinu, sem notað hafði verið við skipið, en annað er eftir var, síðan selt hingað í sveitina að inestu. — Þá kom og járn úr skipinu að not- um við smíði sumra rafstöðvanna í sveitinni, en það er önnur saga. imimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimmiiiiiiiiiimiimiiiiiiimimiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiim Helgi Gíslason, Hrappsstöðum: | Bændahvöt | Vor bændastofninn sterki 1 nú stattu vörðinn fast. ! Mót ljósi lyftu merki I þótt löngum blási hvasst. | Því móðurmoldin kallar | þú mannshönd vinna skalt i þér nauðsyn nytjar allar það náttúran lætur falt. | Vort merki má ei falla, I þótt margt sé örðugt nú. Nei, látum lúður gjalla vor hfir bjargföst trú | á framtíð frjálsrar stéttar sem fólki veitir brauð. Við verðum þokast þéttar í þrenging vorri og nauð. r 5 Og það við byggðum brúna } til betra skipulags. Já allt það uppskerst núna við annir þessa dags. Og því er vængjuð vonin, sem vekur gleði og þrótt vor móðir sérhvern soninn | seður fæðis gnótt. 204 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.