Heima er bezt - 01.10.1978, Blaðsíða 36
JH *ik S j jÆm&íe* ■. m i* * 'lk ð m a Hfc \ : Æl f®fr • 9 pfff - H , y ra * ■ f ^: m
um»
Valgeir Sigurðsson blaðamaður er þjóðkunnur
fyrir hina fjölbreytilegu, skemmtilegu og fróðlegu
viðtalsþætti, sem eftir hann liggja við fjölmarga
Islendinga úr öllum stéttum þjóðfélagsins. f
þessum viðtölum gefst óvenjugott tækifærl til
þess að kynnast fólki með margvíslegustu lífs-
reynslu og viðhorf. I þessari fjölbreyttu og
skemmtilegu bók, birtast 15 viðtalsþættir Val-
eirs Sigurðssonar við merka, núlifandi (slend-
inga, sem allir hafa eitthvað sérstakt, fræðandi og
skemmtilegt í pokahorninu. Bókin skiptist í þrjá
meginþætti, sem nefnast:
Á SKÁLDABEKK, Á GÓÐRI STUND, og
Á FÖRNUM VEGI.
Hér eru rithöfundar látnir ríða á vaðið. Fyrsti hluti
bókarinnar er helgaður þeim. Þar næst koma
fimm greinar um tómstundavinnu manna og loks
greinar um ýmis efni, svo sem náttúruskoðun og
náttúruvernd, ferðalög og útilegur, hrossarækt
og hestamennsku o. m. fl.
Viðmælendur
Valgeirs eru:
A SKALDABEKK:
Einar Kristjánsson
Hannes Pétursson
Indriði G. Þorsteinsson
Kristján frá Djúpalæk
Rósberg G. Snædal
Á GÓÐRI STUND:
BroddiJóhannesson
Eysteinn Jónsson
Guðrún Ásmundsdóttir
Jakob Benediktsson
Sigurður Kr. Árnason
AFORNUM VEGI:
Anna Sigurðardóttir
Auður Eiríksdóttir
Auður Jónasdóttir
Stefán Jóhannsson
Þorkell Bjarnason
I formála að bókinni kemst Valgeir Sigurðsson m.a. svo
að orði:
„Hún er einkennileg þessi vegferð okkar, - þessi stutta
stund, sem við tökum þátt í lífsstríði mannkynsins.
Areiðanlega eru skipti okkar við samferðafólkið - og
einnig við aðrar lifandi verur - merkilegasti þátturinn í
þeirri reynslu, sem okkur gefst kostur á, meðan ævin varir. Þess
vegna er það ef til vill ekki fánýt iðja að ganga á vit samferðamanna
sinna, spjalla við þá um reynslu þeirra og viðhorf til lífsins, og
halda síðan til haga þeirri vitneskju, sem þannig fæst frá fyrstu
hendi.“ I bókinni birtast myndír af öllum viðmælendum Valgeirs,
og í bókarlok er mannanafnaskrá.
Bók396
I lausasölu kr. 6.840.
HEB- verð aðeins kr. 5.800.