Heima er bezt - 01.06.1981, Síða 12

Heima er bezt - 01.06.1981, Síða 12
Frumkvöðull vörðuleitanna, sem síðar verður frá sagt, Jón Sigurgeirsson frá Helluvaði. þegar hann ríður til þings til að sækja vígsmálin á hendur Hrafnkeli Freys- goða. Frásögn sú er þannig: „Hann ferr norðr til brúar, ok svá yfir brú, ok þaðan yfir Möðrudalsheiði, ok váru í Möðrudal um nátt; þaðan ríða þeir til Herðubreiðstungu, ok svá fyrir ofan Bláfjöll, ok þaðan í Króksdal ok svá suðr á Sand, ok komu ofan í Sauða- fell, ok þaðan á Þingvöll.“ Frásögnin er ekki orðmörg, en þó svo skýr að greinilega er hægt að sjá hvaða leið Sámur og menn hans fóru. Þeir hafa farið yfir Jökulsá vestur af Möðrudal, trúlega hjá Ferjufjalli. Tungan milli Lindaár og Grafarlandaár hefur verið nefnd Herðibreiðstunga, og hélst það heiti lengi fram eftir öldum. Þaðan munu þeir svo hafa farið norðan við Herðubreiðarfjöll, en sunnan við Bláfjall, um Suðurárbotna og vestur til Krókdals. í Ljósvetningasögu segir svo: „Um sumarit, búask þeir heiman með sex tigu manna hvárir ok ríða til Jökulsár. En þá váru góð vöð víða. Þá mælti Þorkell: „Nú munum vér skipta liði váru. Skal Þorsteinn ok vér fimm saman fara almannaveg vestr til þings, en flokkurinn allr annarr skal ríða fyrir ofan Mývatn til Krókdals ok Bleiksmýrardals ok svá fyrir neðan heiði“. Ekki er vitað með vissu hvar þeir Þorkell hafi farið yfir Jökulsá en talið er að það hafi verið einhvers- staðar uppi á fjöllum, og þá frekast sunnan Ferjufjalls. Talið er að annar hópurinn hafi riðið yfir hraunið líka leið og Sámur á Leikskálum, en hinn farið „almannaveg“ til Mývatnssveit- ar. Hafa nú verið taldar allar ferðir um Ódáðahraun sem kunnugt er um fram á 16. öld og verður varla sagt að þær séu margar eða veiti mikla fráeðslu um öræfin. Af gögnum frá 16. öld má sjá, að þá hafi legið vegur eða leið yfir Ódáða- hraun sunnan Mývatns til Möðrudals á Fjöllum. Árið 1544 sendir Gissur Einarsson biskup í Skálholti vísitasíu- bréf til Austfjarðaklerka og tilkynnir að hann muni heiman ríða eftir Þor- láksmessu (2. júlí) þá um sumarið, til Skriðufells og svo austur Sprengisand til Möðrudals. Þó að ekki sé sagt í heimildum þessum að biskup og hans fylgdarlið hafi farið yfir Ódáðahraun þá má sjá það af flestu í frásögn af ferðinni. Leiðin yfir hraunið er talin hafa verið þekkt þegar Gissur fór í þessa vísitasíuferð sína. Oddur Einarsson biskup í Skálholti (1589-1630) fór nokkrum sinnum leiðina yfir Ódáðahraun í vísitasíu- ferðum sínum til Austurlands. Er svo sagt að biskup hafi alltaf fengið leið- sögumann yfir hraunið að austan, og átti hann að mæta biskupi á tilteknum degi við Kiðagil. Til þess var venju- lega fenginn gamall fátækur bóndi, er kallaður var Barna-Þórður. Það var eitt sinn á seinni árum biskups, er hann fór þessa leið, að hann kom ekki á tilteknum degi að Kiðagili. Þórður kom eins og talað hafði verið um en gat ekki beðið lengur en þann dag vegna matarleysis. Áður en hann hélt heimleiðis ritaði hann í moldarflag vísu þessa er nú er alkunn: Biskups hef ég beðið með raun og bitið lítinn kost. Áður ég lagði á Ódáðahraun át ég þurran ost. Stuttu eftir að Þórður var farinn komu biskup og hans menn og lásu vísuna. Var þá ákveðið að leggja á hraunið með leiðsögn biskups. Er þeir voru komnir áleiðis hrepptu þeir þoku 196 Heinw er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.