Heima er bezt - 01.06.1981, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.06.1981, Blaðsíða 13
Við svokallaða Oddsvörðu norðan Grafarlanda. og villtust. Loks komu þeir að litlum kotbæ og fengu þar gistingu, en bisk- up „bannaði mönnum sínum að grennslast um háttu fólksins.“ Daginn eftir fylgdi bóndi þeim rétta leið yfir hraunið og Jökulsá. Biskup og bóndi riðu báðir saman á undan um daginn, svo að enginn vissi hvað þeirra fór í millum. Að skilnaði gaf bóndinn biskupi vænan hest er seinna var kallaður Biskups-Gráni. Biskup bannaði síðar að sagt væri margt af þessu. Biskup hefði ekki þurft að villast langt af leið til þess að lenda á efstu bæjum í Bárðardal. Fylgdarsveinar hans þóttu oft heldur gemsmiklir og var því sanngjarnt að hann bæði þá að hafa sig hæga er þeir kæmu að ókunnum bæ í öðru biskupsdæmi. Þessi atburður varð mjög til að auka á útilegumannatrúna, en á 17. öld hefur ekki þurft meira en þetta, til þess að föruneyti biskups héldi. að það væri komið til útilegumannabyggða eftir þokudag og villu um öræfin. Gísli Oddsson biskup (1632-1638) hóf að rita „Undur íslands" árið 1638. Víkur hann þar m.a. nokkrum orðum að stór-ánum norðan lands, og telur þær „óttaleg fljót, bæði furðulega straumhörð og uppbólgin af vatns- magni, svo sem Blanda, Héraðsvötn, Skjálfandafljót og Jökulsá sem er langmest fljóta á íslandi því að stundum er hún yfir tvær eða þrjár rastir á breidd við fjöllin, og þó að þetta sé ótrúlegt, þá hef ég að vísu reynt það ásamt félögum mínum með ærinni hættu, að svo sé.“ Þó að lýsing þessi sé stutt, má þó ráða að Gísli biskup hafi þekkt vel Jökulsá á Fjöll- um og hafi riðið hana „stundum með ærinni hættu,“ svo að ljóst er að hann hefur farið Ódáðahraunsveg oftar en einu sinni. Ekkert bendir til að eftirmenn Gísla hafi farið um Ódáðahraunsveg. Munu þeir hafa farið Sprengisand og niður í Bárðardal eða aðrar leiðir. Síðastur fór leiðina að talið er Bjarni Oddsson sýslumaður í Burstarfelli í Vopnafirði 1636, í þeirri ferð drukknaði af honum maður í Jökulsá. Varða. Á þessum tíma var þjóðinni tekið að hnigna mjög, og varð þess vart ekki síst á sviði samgangna og ferðamenn- ingar. „Sæluhús féllu, vöð týndust og vörður hrundu, en ekkert var um bætt eða endurnýjað. Reiðver og annar út- búnaður til ferðalaga gekk úr sér, en þekking manna á fjallvegum glatað- ist. Jafnframt þvarr kjarkur þjóðar- innar fyrir kúgun og fátækt, en ævin- týraþrá hennar féll í fjötra hjátrúar og ótta, svo að slys eða óhapp á fjallveg- um varð ærin orsök til þess að leið- irnar legðust af.“ Ódáðahraunsleiðin varð einn hinna fyrstu fjallvega, $em týndust. En er ferðir hófust að nýju um fjallvegi landsins, varð Ódáða- hraunsleiðin útundan, gleymd og grafin í tímans sand. Á síðari hl. 18. aldar vaknar áhugi á að finna Ódáðahraunsveg á ný. Jón Árnason sýslumaður á Ingjalds- hóli ritaði stiptamtmanni árið 1774. Mestur hluti bréfsins eru hugleiðingar sýslumanns um hina fornu fjallvegi austan Sprengisands, og þó aðallega varðandi leiðir úr Norður-Múlasýslu suður og vestur. Segir sýslumaður m.a. í bréfi sínu: „Um leiðina úr Ár- nessýslu norður Sprengisand til Þing- eyjarsýslu eru þeir miklu kunnugri, sem hafa farið hana, svo sem Eiríkur Hafliðason á Tungufelli í Lundar- reykjadal í Borgarfirði, en ef til vill verður torfundin leið um svonefnt Ódáðahraun, sem liggur að sandinum norðan megin. Leið sú var farin fyrr- um. Sennilega mun Jökulsá í Axar- firði, sem er hættuleg yfirferðar, helsti þröskuldurinn á þeirri leið. Af Jökul- dal í Múlaþingi lá til forna fjallvegur vestur til Árnessýslu og fóru þá leið sumir lögréttumenn, sem til Alþingis riðu. Hafa rosknir menn sagt mér að ferðin til Alþingis hafi ekki tekið nema þrjá daga. Sú leið liggur fram hjá fjalli því, sem Herðubreið heitir.“ Nokkur áhugi virðist hafa verið uppi í Múlasýslu að finna góða leið þaðan vestur öræfin á Sprengisand. Til dæmis gerði Hans sýslumaður Wium út leiðangur í því skyni (líklega árið 1777) en árangurinn varð minni en til var ætlast. Veturinn 1776 samdi general-toll- kammerið, er fór með mál íslands í Höfn, frumvarp til nýrra vegalaga, er Heima er bezt 197

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.