Heima er bezt - 01.06.1981, Qupperneq 18
Aftökustaður
Kálfagerðisbræðra
eftir Steindór Steindórsson
I Lýsingu Eyjafjarðar (1949) er sagt,
að Klofasteinar, aftökustaður Kálfa-
gerðisbræðra sé í Neðra Möðrufells-
hrauni án frekari skýringa, og er þar
birt mynd af steinum, er svo heita og
liggja rétt ofan við þjóðveginn í
hraunjaðrinum neðst. Þegar ég tók
saman héraðslýsinguna var mér skýrt
svo frá af kunnugum mönnum, að
þetta væri aftökustaðurinn, og sá ég
enga ástæðu til að rengja frásögnina
og gerði því engan reka að því að fá
nánari upplýsingar, las ekki einu sinni
Myndin að ofan:
KÍofasteinar efri séðir frá suðri. Ef
myndin prentast vel má sjá Grundniður
á sléttunni.
sögu síra Jónasar á Hrafnagili af
Kálfagerðisbræðrum, þóttist kunna
það, sem máli skipti og datt ekki í hug,
að þar væri aftökustaðnum lýst að
öðru en nafninu. Þetta getur verið
áminning til þeirra, sem eitthvað rita,
að treysta ekki minninu um of.
Liðin eru full 30 ár síðan Lýsing
Eyjafjarðar kom út, og má ætla að
einhverjir hafi lesið hana og skoðað
myndirnar, og um leið talið víst, að
hér væri umræddur aftökustaður,
fyrst þetta stóð á prenti. Enginn gerði
athugasemd um þetta í mín eyru.
Þá var það fyrir um ári síðan, að
Sigtryggur Símonarson bílstjóri
hringir í mig og segir mér, að hér sé
ranghermt, aftökustaðurinn sé við
aðra Klofasteina ofar í hrauninu.
Þótti mér þetta merkileg tíðindi, þar
sem ég vissi að Sigtryggur var alinn
upp á þessum slóðum og hafði búið
þar árum saman. Bar hann fyrir sig
sögn Símonar föður síns, sem lengi
bjó í Ölversgerði og Hallgríms bónda í
Samkomugerði, sem báðir voru fæddir
fyrir síðustu aldamót og höfðu dvalist
á þessum slóðum alla æfi og fengið
vitneskjuna frá gömlum mönnum í
bernsku sinni. Bauð Sigtryggur mér
að fara með mig á staðinn, þegar vel
hentaði, og tók ég því boði með
þökkum.
Fyrst varð mér samt að lesa sögu
síra Jónasar af Kálfagerðisbræðrum,
en þar segir svo: „Aftökustaðurinn
202 Heima er bezt