Heima er bezt - 01.06.1981, Qupperneq 22

Heima er bezt - 01.06.1981, Qupperneq 22
kaupfélagi uppi í Grímsnesi sem væri að fara á hausinn. Um leið og nafn Egils var nefnt breyttist í þeim hljóðið, og þá var óhætt að láta mig fá vöruna. Þá er eftir að koma vörunni austur, bíllinn okkar sem Egill keypti 1929, var austur á Selfossi og Hellisheiði ófær. Mjólkin flutt á snjóbílum og Sigurður á Kolviðarhóli með alla sína hesta í flutningum. Allt að gefast upp, Sigurður þurfti að sinna svo mörgu, gat ekki eingöngu bundið sig við mjólkurflutninga. Enda snjóbílunum ætlað það verk. Sigurður var eins- konar rútumaður á þessum árum, sá um póst og því um líkt. Ég ákvað að fá bíl og gera tilraun að koma vörunum upp að Kolviðarhóli. Þaðan hugsaði ég mér að koma þeim austur á Kambabrún með snjóbíl eða biðja Sigurð að flytja vöruna á hestasleð- um. Bíl fékk ég, þó menn væru tregir til að fara, því veðrið var ekki sem best. Við komumst með bílinn við ill- an leik upp í neðri kantinn á Svína- hrauni, að 25 km. steini. Þá treystir bílstjórinn sér ekki að fara lengra. Mér þótti þetta nú slæmt, en hinsveg- ar óráðlegt að pína bílstjórann lengra, ef að veðrið versnaði, gat orsakað að hann kæmist ekki suður aftur. Svo það verður úr að við tökum af bílnum. Þetta var allskonar vara en samt allt matvara. Bílstjórinn var með afskap- lega góð segl og lánaði mér þau bæði, annað breiddum við undir en hitt of- aná vöruna. Svo snýr hann við og leggur af stað til Reykjavíkur, en ég stóð i sömu sporum og horfði á eftir bílnum, með skófluna hans í hendi minni. Sá hann líkt og einhversstaðar segir, þar fann ég svartan, snéri mér við og labbaði í átt til Kolviðarhóls. Það var það mikið harðviðri að ég sá ekki til að fylgja vörðunum öðruvísi en að skýla mér með skóflunni. Ekki hafði ég lengi gengið, þegar ég mæti báðum snjóbílunum, sem vildu endi- lega taka mig upp og ég færi bara með þeim. Þennan dag urðu þeir að fara alla leið suður að Lögbergi. Ég var ekkert að snúa við með snjóbílunum en drattaði mér upp að Kolviðarhóli. Þetta hefði nú allt gengið hjá mér, ef vegamálaskrifstofan hefði staðið við að halda opinni leið upp á Hól, sem hún var raunar búin að lofa, en réði ekki við. Það var útilokað að bjarga vörunum uppeftir þennan dag, og ég var um nóttina á Kolviðarhóli. Það var vont veður næsta dag, svo ég er um kyrrt á Hólnum. Hugsaði mér að fara ekki heim fyrri en vörurnar væru á Kambabrún. Nálægt miðnætti er ég vakinn upp á Hólnum, og beðinn blessaður, hvort ég vilji nú ekki fara á snjóbílnum á móti bílunum sem komi að sækja mjólkina að sunnan. Bilstjórarnir væru þá orðnir svo úttaugaðir, að þeir voru orðnir verri en togarasjómenn í gamla daga, áður en vökulögin komu. Það átti ekki að gefa sig fyrr en í fulla hnefana. Ég segi við manninn og man alltaf eftir því: „Þú verður þá að koma út með mér Sveinn minn.“ Það var Sveinn Jónsson sem var með grafvél- ina hjá Flóaáveitunni fyrrum, sem bað mig um að fara fyrir sig. Sveinn var yfirmaður á snjóbílunum fyrir ríkið. Ég segist ekki kunna á þessa andskotans bíla með tvo eða þrjá gír- kassa, og þekki ekkert á þetta. „Ó, góði, góði“, sagði Sveinn „þú hlýtur að finna það út“, henti sér upp í rúmið og var steinsofnaður. Svona var gengið nærri mönnum. Nú hleypur hann í frost, helvítis- garð og læti. Þá vill svo til að vinnu- maður Sigurðar á Kolviðarhóli veik- ist, fær lungnabólgu. Þá fer ég að rifja upp mína gömlu atvinnu og gerist ökumaður hjá Sigurði, var hjá honum í viku. Og endaði með því að við náðum vörunum neðan úr Svína- hrauni og upp á Hól með því að tví- skipta þeim. Og af Hólnum komum við þeim á sama hátt austur á Kambabrún og þegar Kalli komst á fætur skildi ég við Kolviðarhól. Þetta er fyrsta, aðdráttarferðin tíl Reykjavíkur, sem farin er fyrir Kaup- félag Árnesinga. Hún tók ellefu daga, eða jafnlangan tíma og að fara skreiðarferð, ofan úr Biskupstungum með klyfjahesta, og suður til Grinda- víkur. Skömmu eftir að innkaupaferðmni lauk, er ég beðinn um að manna hestagengi til sleðaflutninga á Heliis- heiði. Með þeirri tækni var mjólk og öðrum vörum komið yfir Fjallið, í langan tíma, þann vetur. Þeir flutn- ingar voru á vegum Mjólkurbús Flóamanna. Búið greiddi mér íaun fyrir þá vinnu. Kaupfélagið tók ckki við flutningum fyrir mjólkurbúið fyrr en um vorið. 7 Um veturinn 11. febrúar 1931 var Egill kosinn í stjórn Mjólkiurbús Flóamanna, sem formaður. Og þarna nást samræmdar aðgerðir. Kaupfélag Sigtún. / þessu húsi hóf Kaupfélag Árnesinga starfsemi sína áriö 1931. 206 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.