Heima er bezt - 01.05.1983, Blaðsíða 20

Heima er bezt - 01.05.1983, Blaðsíða 20
heim, en Magnús fór niður á Torfunefsbryggju „og settist þar á síldartunnu, svo ég gæti í næði athugað þessi undraverðu ljós. Þá sá ég þau spegla sig í sjónum, og það langt fram á Poll. Þarna sat ég þar til birti af degi. Eftir því sem meir birti dofnuðu ljósin, eins og stjörnur á himinhvolfinu. Fannst mér sýn þessi dásamleg. Ég hef lýst þessu fyrir konu, sem er vel skyggn og kvaðst hún sjá þetta á hverjum degi.“ Magnús bætir því við að hann sé ekki skyggn, en hafi hins vegar stundum séð ljósfyrirbrigði, sem hann hafi ekki skilið. Telur hann líklegt að hann hafi öðlast þessa sýn fyrir áhrif frá Jónasi lækni, sem hann segir hafa skyggnigáfu. Er það gömul trú, að óskyggnir menn geti séð sýnir ef þeir líta undir hönd skyggnum manni, og virðist frásögn Magnúsar staðfesta þá trú. Erfitt er að finna nokkra vísindalega skýringu á þessari ljósasýn þeirra félaga. Þótt veðurlýsingin gefi e.t.v. vissar grunsemdir um rafmögnun í loftinu og að ljósin hafi getað verið eins konar hrævareldur, er þó ýmislegt sem mælir gegn því, t.d. staðsetning eða dreifing ljósanna, útlit þeirra og hreyfing. Auk þess hefðu þeir átt að verða varir við slíkt í nágrenni við sig sjálfa. Ekki er heldur líklegt að um speglun hafi verið að ræða. Rafljós voru þá ekki til nema á örfáum bæjum, og þó að einhver götulýsing hafi verið byrjuð á Akureyri, hefur hún varla verið notuð að nætur- lagi, enda hefði hún ekki heldur getað framkallað slíka speglun. Verður því ekki hjá því komist að tengja þessa ljósadýrð við huldufólksbyggðirnar austan fjarðarins, einkum þá kaupstaðinn við Halland, sem hér hefur verið til umræðu, enda stemmir það við reynslu margra annarra, einkum þó við sýnir Margrétar frá Öxnafelli, sem sagt var frá. Hér kemur það sama fram eins og hjá henni, að huldukaup- staðurinn handan Pollsins nær yfir mun stærra svæði en Hallandsbjörgin, og mun láta nærri að hann svari til Ak- ureyrarbæjar að stærð, a.m.k. eins og hann var um 1930. Kristján Rögnvaldsson garðyrkjumaður hefur það eftir Margréti, að hún hafi séð eins konar veitingahús eða kaffihús í Festarkletti, sem er við þjóðveginn, út og niður af Kaupangi, og sé þar oft margt um manninn. Ætti þetta hús þá að vera syðst í álfakaupstaðnum, að líkindum við alfaraleiðina inn í fjörðinn. í Leifsstaðaklöppum sást fyrrum mikið af huldufólki. að sögn Jóhannesar Óla Sæmundssonar (Örnefnaskrár), og kannast Kristján einnig við það, en klappirnar eru ofan vegarins, utan við Festarklett. HULDUBÖRNIN Á FOSSI Um aldamótin síðustu var um tíma þurrabúðarbýli við Stóragilslækinn niður við Leiruna, út og niður af Eyrar- landi, er nefndist Foss, eftir fossi einum litlum er lækurinn myndar ofan í hringlaga klettabyrgi, rétt fyrir neðan þjóð- veginn sem nú er. Eftirfarandi lýsingu ritaði Helgi Eiríksson á Eyrarlandi (1907), eftir gamalli konu, Guðrúnu að nafni, er þá átti heima á Fossi, en Helgi var síðar bóndi á Þórustöðum og oft kenndur við þann bæ, gætinn og grandvar maður í hvívetna. Birtist sagan í Grímu h. n., 5, bls. 12-13. Vorið 1908 voru til heimilis á Fossi fátæk hjón með sex börn, og Guðrún móðir bóndans, sem þá skorti tvo vetur í áttrætt. Dag einn í júnímánuði voru hjónin að heiman með tvö elztu börnin, en Guðrún var heima með hin fjögur, er voru 3-7 ára. Var hún önnum kafin við vinnu inni við, en að aflíðandi hádegi gengur hún út til að gá að börnunum. „Þegar hún kom norður fyrir bæinn, sá hún dreng á að gizka 9-10 ára gamlan, ganga upp með læknum og leiða við hönd sér stúlkubarn, sem virtist vera á þriðja ári eða þar um bil. Bæði voru börnin hversdagslega búin, drengurinn í bláröndóttri skyrtu, gráu vesti með móleitu baki, og gráum buxum, en stúlkan var í bláum léreftskjól. Bæði voru þau berhöfðuð og með ljósgult hár. Þegar þau nálguðust fossinn kallaði Guðrún til drengsins og spurði hvert hann ætlaði með barnið, því að hún taldi víst, að þetta hlytu að vera tvö af heimabörnunum. Svo virtist sem drengnum yrði bilt við þegar hún kallaði. Leit hann snöggt til hennar, greip stúlkuna í fang sér og hljóp áfram upp með læknum.“ Þóttist Guðrún þá sjá að þetta væru ekki heimabörnin, enda var þar nú enginn drengur á stærð við þennan og klæðnaður þeirra öðru vísi. Fór hún þá inn í bæinn aftur, og hitti þar öll börnin fjögur að leik inni í baðstofunni, og höfðu þau ekki farið út. Gekk Guðrún þá aftur út til að forvitnast um börnin, en þá voru þau horfin og sáust ekki framar. „Þess er vert að geta, að börn þessi gátu ekki verið af næstu bæjum, því að börn á þeim aldri voru þar engin. Taldi Guðrún því sennilegast að þetta væru álfabörn úr berginu við fossinn.“ Líklega verður seint fyrir það girt, að börnin sem Guð- rún sá að Fossi, hafi getað verið mennsk börn t.d. með ferðafólki þar sem alfaraleið lá þarna rétt hjá, eða að þau hafi komið með bátum frá Akureyri, þótt sú gamla sæi þá ekki. Hins vegar er sagan ekki ólíklegri en ýmsar aðrar huldufólkssögur, og þetta litla fossbyrgi er einkar snotur og vinalegur staður, þar sem hulduverur gætu mjög líklega hafa búið. REYNIVIÐURINN AÐ GELDINGSÁ í þjóðsagnasafninu „Allrahanda“ sem séra Jón Norðmann prestur í Grímsey og síðar á Barði í Fljótum (um miðja 19. öld) setti saman, er getið um reynivið hjá Geldingsá, er svo átti að vera til kominn: „Eitt sinn var vinnukona á Geldingsá. Hún bar út barn sitt og fleygði því fram af fossinum í ánni; óx þar síðan upp reyniviður, en sama kvöldið heyrðist þrítekið barns- hljóð í Laufási í loftinu.“ Saga þessi er einnig skráð í þjóðsagnasöfnum Jóns Árnasonar og Ólafs Davíðssonar, eftir handriti Jóns Norð- manns. í Svalbarðsstrandarbók Júlíusar Jóhannessonar (1964) er atburðarins einnig getið á þessa leið: 164 Heima erbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.