Heima er bezt - 01.05.1983, Blaðsíða 31

Heima er bezt - 01.05.1983, Blaðsíða 31
Athugasemd í síðasta tölublaði Heima er bezt, er gerð sú athugasemd við skýringar á bréfi síra Matthíasar Jochumssonar, að Albert sá, sem þar er nefndur sé Albert Thorvaldsen myndhöggv- ari, og við Þórður í Skógum bornir fyrir því. Þótt ekki skipti miklu máli tel ég rétt að rekja þau rök, sem ég hefi fyrir þeirri skoðun. Ég hygg að skírnarnafn Thorvaldsens hafi verið Albert, því að svo er hann ætíð nefndur í eldri ritum íslenskum. Þannig yrkir Jónas Hallgrímsson til hans kvæði Til Alberts Thorvaldsens að honum lifandi, og síra Magnús Hákonar- son samdi fyrir Bókmenntafélagið Ævisögu Alberts Thor- valdsens, skömmu eftir andlát hans. íslendingar hafa þá ekki haft annað nafn á honum, en hversvegna og hvenær nafni hans er breytt í Bertel, veit ég ekki. Síra Matthías nefnir Thorvaldsen nokkrum sinnum bæði í ljóðum og Söguköflum sínum. í kvæðinu um Kaup- mannahöfn, þar sem hann ber saman annars vegar andans menn Dana og hins vegar herkónga og stríðshetjur segir svo: „Adam og Albert ég set ofar en Gorm eða Knút“, og í skýringargrein með kvæðinu er sagt að það séu þeir Öehlenschláger og Thorvaldsen. Eru þeir nefndir þarna í sömu andránni eins og i áðurnefndu bréfi. En mestu máli skiptir þó, að í sjálfu kvæðinu um Skagafjörð telur síra Matthías upp nokkur stórmenni, sem þar séu fæddir eða ættir eigi að rekja þangað og segir svo: Síðast tel ég þó hinn fyrsta, Albert jöfur allra lista er ei þarna kyn þitt fœtt? En Þorvaldur faðir Alberts var Skagfirðingur. Hygg ég enginn þurfi að velkjast í vafa um, hver sá Albert er, sem síra Matthías getur í bréfinu til síra Einars Jónssonar. St. Std. Tilmæli Það eru vinsamleg tilmæli útgefanda Heima er bezt til skuldugra áskrifenda að þeir greiði gíróseðla sína hið fyrsta. Bent skal á að vegna hins lága hlutfalls auglýsinga í Heima er bezt (5-6%), miðað við venjulegt auglýsinga- magn í íslenskum tímaritum (25-50%), fá lesendur blaðs- ins meira í sinn hlut af „hreinu“ tímaritsefni þar en víðast annars staðar. Þess vegna er áskrift að Heima er bezt ódýr og hagstæð kaupandanum. Með bestu kveðjum, Heima erbezt Heimaerbezt 175

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.