Heima er bezt - 01.05.1983, Síða 21

Heima er bezt - 01.05.1983, Síða 21
„Ofanvert við Geldingsártún, rennur Geldingsáin suður í Meyjarhólsland, og stefnir eftir það nokkuð beint til sjávar. Eru þar nokkrir fríðir fossar. 1 einum þeirra fossa fyrirfór konubjálfi fimm vikna gömlu barni sínu veturinn 1615. Hún hét Ragnhildur Magnúsdóttir. Vorið eftir var hún dæmd á Helgastaðaþingi og henni drekkt. Svo var ranglæti þeirra tíma fullnægt. Talið var að foss sá, er barninu var fargað í, sé þriðji fossinn frá veginum. Þar uxu víðihríslur, vökvaðar af úða fossins og skýlt af klöppum fyrir biti sauðfjár. Sagnir gerðu reyni úr víðin- um.“ Sagnirnar um reyniviðinn á Geldingsá draga líklega dám af reyninum fræga í Möðrufelli í Eyjafirði, sem nefndur var Möðrufellshríslan, og átti að hafa vaxið af moldum tveggja systkina er sek urðu óleyfilegan samgang. Fara miklar sögur af honum, enda mun hann vera enn við lýði (Sjá „Systkinin í Möðrufelli“ e. Árna Bjarnarson og „Reynirinn í Möðrufellshrauni“ e. Steindór Steindórsson í sagnasafn- inu Ömmu (ný útg.) bls. 430-435. Rvík. 1961). í rauninni er hér um að ræða leifar af eldfornri trjáatrú eða dýrkun trjáa, sem þekkst hefur um öll lönd, og mun einnig hafa átt sín ítök hérlendis. Reynirinn var hið heilaga tré okkar íslendinga, þessvegna spratt hann (eða var álitinn spretta) af moldum sakleysingja. Er skemmtilegt að minnast þess, að nú hafa vaxið upp tveir undur fallegir skógarreitir niður með Geldingsánni, þar sem m.a. má finna reynihríslur. Hafa þeir bræður Jón og Kristján Tryggvasynir frá Meyjarhóli, stofnað reitina og plantað í þá ýmsum trjám. Þarmeð hefur þjóðsagan eða þjóðaróskin um reyniviðinn á Geldingsá líka rætst, og minningin um ógæfusama móður og barn hennar hlotið verðugan varða. Höfnin svæðis ^**»*7j |^^Ín5sbj0 Huldukaupstaðurinn í Hallandsbjörgum. Hugmynd um dreifingu byggðar. Hér hafa nú verið raktar þær frásagnir semfinna má í prentuðum heimildum um huldufólksbyggðirnar austan við Pollinn. Líklegt er að til séu fleiri slíkar sögur þótt ég hafi ekki uppgötvað þær, og víst er að margir Ak- ureyringar hafa frá ýmsu að segja í þessu sambandi. Mér er kunnugt um ýmsa sem séð hafa einkennileg Ijós þarna í heiðinni, og það löngu fyrir daga vélsleðanna, sem nú þeysa um allar brekkur á vetrum, og gera allar slíkar sýnir marklitlar. Þannig segist Jón Sigurgeirsson frá Helluvaði eitt sinn, er hann var lögreglumaður, hafa verið á gangi um Hamarsstíg á Akureyri með öðrum manni (Sigurði Eiríkssyni) og sáu þeir báðir allstórt Ijós er virtist færast hægt og á jafnri ferð út og niður Vaðlaheiðina og hvarf svo fyrir hús, er það bar skammt fyrir utan Halland. Var þetta að haustlagi um 1950, og minnti Jón að verið hefði auð jörð. Jón er maður athugull og ekki oftrúaður á dulræn fyrirbæri, en segist þó ekki geta skýrt þetta á venjulegan hátt. Svipuð reynsla mun ekki vera óalgeng á þessum slóffum, og vil ég hérmeff koma þeirri beiffni á framfæri viff alla sem reynt hafa eitthvaff slíkt, aff skrifa niffur lýsingar á því, sem nákvæmlegast staffsettar í tíma og rúmi, og koma þeim í hendur þess er hér ritar. Heimaerbezt 165

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.