Heima er bezt - 01.05.1983, Page 22

Heima er bezt - 01.05.1983, Page 22
Ljósm.: H.Hg. Halland. Það er vissulega ekki einleikið, hve margar dularsýnir eru tengdar svœðinu Halland / Eyrarland, þar sem skyggnir menn þykjast sjá huldufólkskaupstaðinn. Veigastaðaklif og Gljúfrið. í suðri StaðarbyggðarfjaU. Ljósm.: H.Hg. Sjálf bæjarnöfnin á þessu svæði eru býsna ein- kennileg, og gætu hugsan- lega sagt merkilega sögu, ef við kynnum að útskýra til- urð þeirra. Halland má skýra á tvennan hátt, þ.e. sem hið hallandi land (enda mun algengt að sagt sé Hallandi í nefnifalli t.d. „Guð- mundur á Hallanda“) eða hall(a)-land, þ.e. steina- eða klappalandið, og er hvorttveggja réttnefni. í Hallandi fæddist Bólu- Hjálmar árið 1796, en fáir íslendingar hafa á seinni öldum verið sérkenni- legri eða gæddir jafn furðulegum náttúrugáfum sem hann. Sameinaði hann í ríkum mæli þá hæfileika sem jafnan eru taldir huldufólki til gildis, þ.e. ríka skáldgáfu og listrænan hagleik. Þess má einnig geta, að til eru sagnir um viðskipti Bólu-Hjálmars við huldufólk í Eyjafirði. Skýring á nafninu Veigastaðir er ekki eins ljós, en það er til í ýmsum útgáfum í rituðum heim- ildum, svo sem Vígastaðir, Veiðistaðir og Vegastaðir. Eðlilegast virðist að tengja það við bæjarnafnið Varð- gjá, sem kemur fyrir í Landnámu í sama formi og nú er ritað, og bendir hvorttveggja til hernaðar. Svo vill til að milli bæj- anna, neðan núverandi vegar, er gildrag milli klettabelta, sem líkist gjá en mun vera kallað „Gljúfrið“ því um það fellur Gljúfralækur ofan í Veigastaðabás. Sunnan og ofan við þetta gil, er Veigastaðaklifið, með veggbröttum klettum að framan (vestan), og gæti þarna verið hið ákjósan- legasta vígi, ef rétt væri á haldið, og jafnframt tilval- inn staður til að halda vörð á, því þaðan sést vel til allra ferðaleiða fyrir botni Eyja- fjarðar hvort sem er á sjó eða landi. Um þetta bil, eða litlu sunnar, eru merki Veigastaða og Varðgjár, sem um leið eru hreppa- og sýslumörk, og hafa verið frá fornu fari, þótt sumum þyki það einkennilegt, þar sem engin sérstök skil eru í landslaginu þarna. Niðri í Veigastaðabás er mikið af hvítum kristöllum í holum í berginu, af þeirri gerð sem kallast geisla- steinar (nánar tiltekið stil- bít eða desmín), en slíkir steinar voru fyrr á tímum oft tengdir dularverum og á þeim var sérstök trú (t.d. voru bergkristallar íNoregi kallaðir dvergsteinar). Þess má geta að orðið veig getur merkt gull, og er sú merking vel kunn úr skáldskap, (einkum í sam- setningum: veigalín, veiga- skorð = kona) og auk þess þýðir það styrkur eða kraftur (sbr. veigamikill). Kannske er það heldur ekki tilviljun, að í Veiga- staðaklifi vex burknateg- undin sæturót (Polypodi- um vulgare), sem ekki er vitað um annars staðar í Eyjafirði, en burkni þessi var talinn hafa ýmsar merkilegar náttúrur eins og nöfnin engilsæta, köldu- gras o.fl. benda til, en hún var m.a. notuð sem meðal við tæringu. Huldufólk var vel að sér i grasalækning- um, og eru til af því ýmsar sögur. Margir lækir falla niður hlíðina milli Hallands og Eyrarlands (sbr. kortið), og mynda víða smáfossa er þeir falla fram af kletta- hjöllunum, en við fossana eru víða fagrir og skjólsælir hvammar, með miklu fjöl- gresi, og blómskrúði. Slíkt land er uppáhald blómálfanna sem skyggnir menn sjá stundum og segja vera mjög litlar verur i mannsmynd, og virðast þeir tengdir gróðrinum á einhvern sérstakan hátt. Margrét frá Öxnafelli seg- ist hafa séð slíkar verur í lækjarhvammi milli Leifs- staða og Fífilgerðis. „Þeir voru alls sex, og voru þeir í hvamminum meðfram læknum (Kúalæk). Blá- klæddir voru þeir, með topphúfu, og á að gizka 30 sm á hæð. Þeir voru fjör- ugir og dreifðu sér. Andlit- in voru stórgerð og ellileg. En þeir voru hýrir á svip. Þeir virtust vera að skoða sig um þarna í kjarrinu.“ (Þessi lýsing minnir á jarð- dverga þá sem í Bretlandi kallast goblins). 166 Heimaerbezt Veigastaðir. SKÓGRÆKT í VARÐGJÁRBÖKKUM Skömmu eftir að Skógræktarfélag Eyjafjarðar var stofnað 1930, gengust nokkrir áhugamenn fyrir því að tryggja töluverða landræmu meðfram ströndinni í löndum Hal- lands, Veigastaða og Varðgjár, til skóggræðslu. Það var máske engin tilviljun heldur, að landspilda þessi, sem afgirt var og kölluð Vaðlareitur, nær að heita má um endilangt svæðið, sem fróðir menn telja að huldufólkskaupstaðurinn sé byggður á. Og þó er það e.t.v. merkilegast, að sá sem átti hugmyndina að félagsstofnuninni (en þetta var fyrsta skógræktarfélag landsins) og myndun Vaðlareitsins, hug- sjónamaðurinn og eldhuginn Jón Rögnvaldsson garð- yrkjumaður, var alinn upp og búsettur þá í Fífilgerði, sem er á mörkum huldufólksbyggðarinnar að sunnanverðu. eins og þegar var getið. Eins og öllum Eyfirðingum mun kunnugt hafa nú vaxið upp myndarlegustu skógarteigar í þessum reit, einkum af birki, lerki og stafafuru, sem hafa þrifist þarna ágæta vel, svo og ýmsar grenitegundir. Eru stórir hlutar þessa ný- skógar iðjagrænir sumar sem vetur, og því mikið augnayndi þeim sem búa hinum megin við Pollinn. Stafafurureiturinn í Hallandsbökkum (yzt í reitnum) er sérstaklega vöxtulegur, og mun vera einhver sá efnilegasti í landinu. Furan var þarna gróðursett í snarbrattar brekkur, fyrir neðan neðsta klettahjallann (Búðarneskletta?). í hjallanum hefur einnig sprottið upp eins konar huldu- hrisla, blæösp, sem enginn veit hvernig þangað er komin, og hugsanlega hafa þar leynzt angar af henni frá því að skógar þöktu landið á þessum slóðum. Öspin hefur jafnan vakið athygli hérlendis, vegna þess hve sjaldgæf hún er, og lík- lega verið átrúnaður á henni, eins og á reyniviðnum, sbr. bæjarnafnið Espihóll í Eyjafirði. Friðunin á bökkunum hefur haft þau áhrif að gróðurfar hefur víða tekið stakkaskiptum. Er þar nú mun meiri blómgróður en utan reitsins, og má nefna t.d. geithvönn, mjaðjurt, blágresi og hrútaberjaklungur, sem varla munu hafa sést þarna áður, en eru nú algengar. Þá hefur ýmiss konar lyng aukist til muna, m.a. eru þarna nú breiður af sortulyngi, sem ekki var kunnugt um áður, og bláberjalyng nokkuð, að ógleymdri Alaskalúpínunni, sem blálitar mel- ana utantil í reitnum á sumrin. Ekki er að efa að fólkið í huldukaupstaðnum kann að meta þá umhyggju sem menn hafa sýnt gróðrinum á þessu svæði, enda eru til margar sögur um varnir þess við skerð- ingu á skógargróðri, blómahvömmum eða grasbrekkum, sem oft er túlkað sem álög á slíkum stöðum, er mönnum hefnist fyrir að brjóta. Kæmi víst ekki á óvart þótt það hefði e.t.v. haft einhverja hönd í bagga með tilurð Vaðlaskógar- reitsins og þrifum trjáa og blóma í honum. .. .OG VEGAGERÐ? í þessu sambandi fer ekki hjá því að hugurinn hvarfli til vegarframkvæmda þeirra sem nú eru áætlaðar í gegnum Vaðlareitinn, en þeim hlýtur óhjákvæmilega að fylgja all- verulegt jarðrask, og sprengingar á klettahjöllum, sem lenda í vegstæðinu. M.a. mun þurfa að sprengja niður hjallann, sem er fyrir ofan stafafurureitinn áðurnefnda, inn og niður af Hallandi. Slíkt umrót hefur jafnan verið litið heldur illu auga af hulduverum þeim er í klettum búa. Nærtækt dæmi um það eru atburðir þeir er gerðust þegar hefja átti grjótnám í Stofuklöpp við Krossanes á Akureyri, árið 1962, en þar var þá óhöppum afstýrt með skynsamlegri varúð er verkstjórinn og yfirmaður verksmiðjunnar sýndu. Svipað átti sérstað fyrirfáum árum (um 1975) við vegagerð um Hegranes í Skagafirði, þar sem hætt var við að sprengja skarð í gegnum klettahjalla fyrir tilmæli frá hulduverum. Vonandi hafa forsvarsmenn „Leiruvegarins“ svonefnda, þá skynsamlegu forsjálni og víðsýni til að bera, að rasa ekki um ráð fram í þessu efni. Furulundurinn i Hallandsbökkum, yst í Vaðlareit. Ljósm.: H.Hg. Heima er bezt 167

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.