Heima er bezt - 01.05.1983, Qupperneq 29

Heima er bezt - 01.05.1983, Qupperneq 29
 -tegar fyrstu leiðangursmenn luku upp sjónum um dagmál, var ekki hægt að segja, að dagmálaglenna væri á ásjónu himinsins. Það var kominn norðaustan frassi. Setti hroll að mönnum og dugði ekki að kveikja upp í maskínunni, hann sat eftir sem áður. Það sem einkum var hrollvekj- andi, var sú staðreynd, að ekki komust allir í bílana. Hafði ferðaáætlunin gert ráð fyrir, að skipst væri á að ganga og aka langleiðina að Sauðanesi. En þetta er um 30 km leið og ekkert spennandi gönguveður. Hugsuðu margir fararstjóra þegjandi þörfina — en ekki kom þó til uppreisnar. Það dugði heldur ekki að berja lóminn. Töldu bjartsýnismennirnir í ferðinni, að nú legðist lítið fyrir menn komna af norrænum víkingum. Svo var annað alvarlegra á ferð — leiðangurinn orð- inn matarlaus eða því sem næst. Hættu menn öllum vafasömum hugs- unum, heldur skófluðu í sig því litla, sem eftir var af kosti. Að því búnu var hafurtaskinu troðið í bílana. Ekki var til setu boðið, sjónvarpsmenn kvaddir í snatri. Bóndinn á Sauðanesi ætlaði að flytja þá á áfangastað. Rétt fyrir hádegi var land lagt undir fót og hjól. En heppni þessa leiðangurs átti ekki að verða endaslepp. Skömmu eftir brottför frá Skoruvík, birti smátt og smátt til og stytti upp. Varð gönguveður þokkalegt, þótt lágskýjað væri. Ekki gáfum við okkur mikinn tíma til náttúruskoðunar. Staldrað við á Skoruvíkurbjargi og kíkt niður á Stórakarl. Svo nefnist stapi undir björgunum. Þar byggir súlan annan helming lóðar en svartfugl hinn. Landamörk voru til að sjá skýr, stap- inn hvítur öðru megin, mótparturinn svartur (sést vonandi á myndinni). Betra er að fara að öllu með gát þarna á bjargbrúninni. Hún er þarna um 100 m há. Já, gangan sóttist vel. Komið á Þórshöfn um nón. Þar var etinn ær- legur málsverður og þótti mörgum vart mega tæpara standa. Síðan var haldið áleiðis suður. Ekkert gerðist markvert fyrr en í Hellisheiði, hvað annað! í efstu brekkunni Vopna- fjarðarmegin tók að rjúka úr bíl fararstjóra. En ekki dugði að stoppa, slík var efjan, að ekki hefði verið viðlit að ná bíl af stað, ef hann hefði numið staðar. Til að bæta gráu á svart, var komin slydda og útlitið vægast sagt óglæsilegt. Var ég nú viss, að heppni leiðangursins væri fyrir bí og forsjón- in orðin uppgefin að halda lengur yfir honum hlífiskildi. Ég bjó mig undir það versta. Sá undirbúningur var að vísu fátæklegur, fólst einungis í því að draga sig í hnút í aftursætinu, kreppa hnefana —og loka augunum af og til. En bíllinn slangraði eins og dauða- drukkinn dóni upp forarbrekkurnar. Er þær verstu voru að baki, nam Elli staðar enda rauk úr farartækinu sem úr Bjarnarflagi, þegar best lætur og hitalyktin var kæfandi. Hún gat sem best boðað úrbræðslu og þá var ein- faldlega stóra stopp. Var það fyllsta alvörumál, því komið var versta veð- ur, norðaustan stormur og snjókoma með öðrum orðum rammíslenskt vetrarveður og það um miðjan júlí. Undirstrikar þetta vel ummæli mín um heiðina í upphafi fyrstu greinar- innar. Þarna í hriðarsortanum var reynt að grennslast fyrir um, hvaða óyndi gripið hefði bfl leiðangursstjóra. Ekki vantaði smurolíu, nóg var kælivatn og hvergi var leka að sjá. Annars voru aðstæður til athugunar heldur slæm- ar. En þeir fróðustu í vélfræði, töldu að hér væri um mjög dularfullan krankleik að ræða, en ekkert annað Stórikarl við Skoruvíkurbjarg. Svartfugl- inn býr ofan á þeim hluta hans sem snýr að landi, en súlan sjávarmegin, eins og sjá má. 172 Heimaerbezt fyrir hendi en halda áfram og sjá hvort beiglan drattaðist ekki undan brattanum. Raunar var fárra kosta völ, hinir bílarnir horfnir suður af og ekkert hægt að fullyrða, hvenær þeir uppgötvuðu, að við værum ekki með. Elli ræsti því vélina og bfllinn dólaði af stað. Okkur lánaðist að komast niður af heiðinni, niður úr hríðinni og ofan á jafnsléttu í Jökulsárhlíð. Þar biðu aðrir leiðangursmenn, var þá farið að lengja eftir okkur. Eins og ég drap á hér framar, höfðum við sérfræðinga á flestum sviðum í þessum leiðangri. Og nú kom til kasta bifvélavirkja, en hann var einn af þeim, er beið okkar. Hann fann fljótlega bilunina. Það var leki á kælivatnsröri, þrátt fyrir allt. Ekki var um auðugan garð að gresja, hvað efni til viðgerðar varðaði. Þó tókst að þétta rörið. Var það gert með grisju, tyggigúmmíi og heftiplástri. Ég get ekki láð neinum, þótt hann efi sannleiksgildi þessara orða. En þeir sem áhuga hafa að vita hið sannasta og jafnframt læra þessa viðgerð, geta snúið sér til Bjarna Björnssonar, bif- vélavirkja á Fáskrúðsfirði og fengið nánari upplýsingar. Trúlegt þykir mér, að Bjarni hafi þegar sótt um einkaleyfi á þessari viðgerð. En hvað um það, dugði hún til ferðaloka og undirstrikaði lán þessa leiðangurs nánast hundrað prósent, ef hægt er að mæla heppni á þann máta. Við komum að Hlöðum (því miður heitir þar Fellabær nú) um kl. 21.30. Bauð fararstjóri liðinu til kvöldverðar í Vegaveitingum. Var ekkert skorið við nögl, hver fékk það er hann lysti og á matseðli var. Yfir borðum þakk- aði Elli mönnum vasklega fram- göngu. Einnig bað hann velvirðingar er orðið hafði á viðurgjörningi í för- inni. (Ég held barasta, að þá hafi flestir verið farnir að gleyma því). Einnig hrósaði Elli mannskapnum fyrir eljusemi, förin sólarhring styttri en áætlun hafði hljóðað upp á. Gerðu menn góðan róm að ræðu leiðang- ursstjóra. Var samsæti þetta hið ánægjulegasta í hvívetna. Þarna mátti segja, að leiðangrinum hafi lokið. Hafði hann tekist vel í alla staði eða öllum aðalatriðum vildu kannski sumir segja — og var þá ekki takmarkinu náð? I þessari ferð bættu menn við sig aukinni lífsreynslu, fróðleik og skemmtan. Og því sem mönnum fannst fara úrskeiðis í hita dagsins, hlæja menn að þá árin líða. Stundir erfiðleika og andstreymi verða síðar meir eins og krydd ferð- arinnar. Þetta er einn leyndardómur lífsins. Hvort eldspýtnaverksmiðjan á eftir að rísa á Langanesströnd skal ekki fullyrt, en Elli væri manna lfldegastur að leggja þar hönd á plóg. Eitt er vist, að þar norður frá er efni í eldspýtur handa klendingum um ófyrirsjáan- lega framtíð. Og með mikilli ánægju skyldi ég kaupa fyrsta stokkinn. Að lokum þakka ég öllum leiðang- ursmönnum (þótt seint sé) ánægju- legar stundir á strönd Dumbshafs. Lesendum einnig, þeim er nennt hafa að lesa. Vona ég, að þeir hafi haft dálitla skemmtan af. Góðar stundir. Uppkastið var samið 28. febrúar 1981. Handriti lokið að fullu þann 21. febrúar 1983. Guðjón Sveinsson. Á Skálum. Björn Kristjánsson vitavörður frá Skoruvik mun nú manna fróðastur um byggð á Langanesi, borinn þar og barnfœddur. Hann frœðir Jón sjónvarpsmann Björg- vinsson um gamla daga. Þeir styðjast við einn lifrargeyma bræðslunnar, sem voru úr tré og minntu á stórar slátur- tunnur. A innfelldu myndinni er leiðangursstjórinn Elis P. Sigurðsson við leifarnar af ofnum lifrarbrœðslunnar. Allar Ijósmyndir með greinaflokknum tók greinarhöfundur. Heima er bezt 173

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.