Heima er bezt - 01.05.1996, Side 10
klætt. Þar að auki fækkaði þessum skólum,
þeir voru upphaflega átta til tíu talsins en
eru nú tveir. En þeir hefðu ekki lifað af, ef
þeir hefðu ekki breyst í takt við tímann. Það
hefur verið mjög skemmtilegt að sjá þessa
skóla vaxa aftur upp og ég geri mér alltaf
betur og betur grein fyrir því hvað það er
nauðsynlegt að svona nám sé einhvers stað-
ar í boði. Reyndar eru margir slíkir áfangar
í boði í þó nokkrum framhaldsskólum, t.d.
fatasaumur og matargerð, sem hægt er að
taka með hefðbundnu bóklegu námi og það
er auðvitað mjög gott. En skóli eins og
þessi verður alltaf öðru vísi. Hér búa nem-
endur saman í litlu samfélagi, við nám og
störf og reka þetta heimili saman. Þeir sjá
nánast sjálfir um alla hluti. Verkþjálfunin
verður þvi ansi mikil og samfélagið er yfir-
leitt gott og gefandi.
Það hefur ekki verið hörgull á nemendum
nema fyrsta árið þegar þeir voru ekki nema
14 en þurfa helst að vera 20 - 24. Við höf-
um ekki húsrúm fýrir fleiri. En eftir það fór
þetta vaxandi með hverju ári og þar kom
sögu að við gátum ekki tekið alla nemendur
inn sem sóttu um, langt í frá. Fyrir 3 árum
fengum við heimild til að vera með hús-
stjómamám vor og haust og þannig hefur
skólinn verið rekinn síðan. Þá hættum við
auðvitað að taka inn grunnskólanema.
Mörgum þótti miður að geta ekki sent þessa
nemendur hingað lengur, en skólar höfðu
komið sér upp aðstöðu heima fyrir, sem var
auðvitað æskilegast. í mörgum grunnskól-
um var ein vika hér á Hallormsstað, eina
heimilisfræðslan sem nemendur fengu á
öllu grunnskólastiginu og það var engan
veginn fullnægjandi. Helst hefði ég viljað
sjá heimilisfræðslu í yngri bekkjum í
heimaskóla og síðan hefði vikan hér verið
lokapunkturinn.
Kynjaskiptingin
I gegnum árin hefur komið hingað einn
og einn piltur. Fyrstu árin mín sást nú
reyndar ekki karlmaður en svo kom einn og
hann verður alltaf einstakur í mínum huga.
Eg var búin að hafa miklar áhyggjur af
Nemendur og kennarar Hússtjórnarskól-
ans á Hallormsstað 1992, Margrét er
þriðjafrá hœgri ífremstu röð.
Útskrift úr Hússtjórnarkennaraskóla íslands. Margrét er önnurfrá
vinstri í efri röð.
í Höllinni í Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað í desember 1994,
starfsmenn og nemendur. Margrét situr fyrir miðju með Hildi Þóru
ífanginu.
k
166 Heima er bezt
\mm