Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1996, Page 12

Heima er bezt - 01.05.1996, Page 12
haustnám hófst hér á nýjan leik. Við höfum far- ið dagsferð til Mjóaijarðar í beijamó undanfarin tvö haust. Hér í skóginum tínum við bláber, hrútaber og sveppi. Við notum fyrstu 2-3 dag- ana í þetta og erum um leið að hrista hópinn saman áður en honum er skipt upp í matreiðslu- hóp og handmenntahóp. Auðvitað tökum við líka slátur. Samvinna skólanna Hér hefur verið hússtjórnarnám alveg samfellt allan þennan tíma og ég held að það sé stöðugt að styrkjast í sessi með aukinni samvinnu og samnýtingu á þessari aðstöðu. Samvinna fram- haldsskólanna á Austurlandi er alitaf að aukast. í nokkur ár hafa nemendur átt þess kost að taka eina önn hér og aðra við Menntaskólann á Egils- stöðum og útskrifast síðan af eins árs hússtjórnarbraut. í haust fór af stað ferðaþjónustubraut við Menntaskólann á Egilsstöðum og þeir nemendur taka hér matreiðslu- og framreiðslunám á einni önn og ýmsar bóklegar greinar sem því tengjast. Það er hvergi annars staðar á Austur- landi svona góð aðstaða til handavinnu- eða matreiðslu- kennslu og vegalengdir eru ekki lengur til trafala. Það er ákveðin stefna og vilji í þá átt að tengja skólana saman og nýta aðstöðuna þar sem hún er best og mér finnst það hafa gengið mjög vel. Samstarfið mætti þó vera meira og það strandar dálítið á því hvað húsnæðið hér er lítið. Við höfum bara eina kennslustofu og mjög lítið gistirými. Við gætum ráðið við meira ef húsnæðið væri til staðar. Ævintýri í skólanum Jú, jú, hér gerist sitthvað skemmtilegt. Mesta fjörið var nú kannski þegar grunnskólakrakkamir voru hérna. Þá skiptumst við á að vera með gæslu á kvöldin og nóttunni. Eg var því oft búin að fá nóg í vikulokin eftir mikla kennslu og næturvaktir en þetta voru skemmtilegir og hressir krakkar. Ég man eftir einum hópi, sem var ansi fyrirferðarmikill, sérstaklega þó piltarnir og þurfti oft að sussa á þá. Þeim fannst við gera upp á milli kynja, stelp- urnar væru ekkert betri en aldrei skammaðar. Einn morg- uninn komu tveir piltar til mín og sögðust nú ætla að segja mér hvað stelpurnar, þessir englar mínir, hefðu gert. Þegar þeir fóru á fætur og ætluðu að bursta í sér tennurn- ar brá þeim heldur í brún. Stelpurnar höfðu málað þá um nóttina án þess að þeir yrðu þess varir og þegar þeir litu í spegilinn sáu þeir kanínur og kisur og ýmislegt fleira. Ég gat ekki annað en hlegið og sagði þetta bara góðlátlegt grín en þeir urðu óskaplega sárir við. Svo líður nú dagur- inn og ég er einmitt á næturvakt næstu nótt. Ég svaf hér niðri í íbúð og vaknaði við umgang í herberginu. Þegar Hússtjórnarnemar í grasaferð. ég settist upp sá ég á hælana á einhverjum þremur. Ég hljóp á eftir þeim, upp stigann og sá inn á hvaða herbergi þeir fóru. Ég fór á eftir þeim og spurði ansi höstug hvað þetta ætti að þýða og fékk auðvitað það svar að þetta hefði bara átt að vera góðlátlegt grín. Þá ætluðu þeir að mála mig í framan eins og stelpumar höfðu málað þá, en ég svaf bara of laust. Vetrarhjálpin Við þennan skóla var svokölluð „vetrarhjálp“ á ámm áður. Þetta var hópur pilta, sem sýndi námsmeyjum mik- inn áhuga og oft með ágætum árangri. Það sést á gömlum skólaspjöldum að margar húsfreyjur hér í kring komu fyrst í þennan skóla. Mér skilst að þetta hafi verið mikil spenna. Piltarnir klifruðu upp á svalirnar og stúlkurnar niður af þeim og dæmi voru um að beinbrot hlytust af. Piltar komu ekki hér inn nema sérstaklega boðnir en nú er öldin önnur. Við samræmum útivistarreglur við aðra skóla og þetta er orðið mjög svipað um land allt. Ungt fólk í dag gerir svo ákveðnar kröfur um frjálsræði að tak- markanir um útivist að kvöldlagi ganga bara ekki upp. Ég sé heldur ekki tilganginn með því og ég hef haft það að leiðarljósi að nemendur hér sitji við sama borð og nem- endur annarra skóla. Það var líklega í fyrsta nemendahópnum mínum að hér kom stúlka vestan af landi og var að koma í fyrsta sinn á Austurland. Hún kom aðeins fyrr en hinar stúlkurnar og mér fannst hún horfa svo mikið á mig. Svo fór hún að spyrja um ýmislegt; hvort hér væri sjónvarp, hvort náms- meyjar hefðu útivistarleyfi á kvöldin og fleira slíkt. Hún sagði mér það seinna að hún hefði verið undir það búin Framhald á bls. 192 168 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.