Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1996, Síða 23

Heima er bezt - 01.05.1996, Síða 23
á föður sinn, Rifgirðingakónginn, fara með hið háttbundna rím, hljóðfall stemmunnar loðir við hlustir drengs- ins. Þessi kveðandi, þessi íslenska list, skapar brageyra Sigurðar Breiðfjörðs. Og þegar hann hlustar og reynir að fylgja föður sínum inn í myrkviði kenninganna, þá víkkar vitund drengsins og þar sem áður var mold- argólf baðstofunnar, er ævintýraheim- ur rímunnar kominn, klæddur í silki og skarlat. Bóndinn geispar, þegar lestrinum er lokið og vefur rímnakverunum inn í klút. Síðan gengur allt heimafólkið til náða. Það er búið að slökkva á kol- unni. Engin glæta í dimmri baðstof- unni. Ekkert hljóð, nema hrotur heimamanna. En Siggi litli vakir einn. Hann er tíu vetra gamall drengur, sem hefúr séð tjaldið lyftast frá ævintýra- heimum rímunnar. Hann getur ekki sofnað aftur. Ævintýri íslensku rím- unnar logar ennþá i æðum hans. Æv- intýrið um kappa og álfa var sæluhús íslensku þjóðarinnar á hinni löngu ör- æfagöngu, sem kölluð er saga hennar í þúsund ár. A hverri vöku gisti íslenska þjóðin- þetta sæluhús og gekk síðan til verka sinna, köld, búforsjál og vinnusöm, rétt eins og hún hefði aldrei lifað æv- intýrið né sæluhús vökunnar. En Siggi litli vill ekki hverfa aftur inn í Svörtu- loft hins íslenska þjóðlífs. Hann treinir sér ævintýrið, eins og hann var vanur að treina sér jólakertið, sem mamma hans gaf honum kvöldið, sem frelsari hans fæddist. Hann starir fram í bað- stofumyrkrið, og allt í einu sér hann furðulega sýn: Við rúm hans stendur maður, mikill og vörpulegur. Hann er ljós yfirlitum, en hold hans er kaunum hlaðið. Siggi þekkir strax manninn, þótt hann hafi aldrei séð hann, því að hann dó rúmum 20 árum áður en Siggi litli fæddist. Hér var kominn Árni prestur Böðvarsson, mesta rímnaskáld, sem ísland hefur alið. Hann var holdsveikur síðustu árin. Siggi rís upp í rúminu og horfir skelfdur á hið kaunum hlaðna, virðu- lega skáld. Engan mann mat hann meir en þennan holdsveika skáldmær- ing, sem ort hafði bestar og flestar rímur á íslandi. Hann tosar niður á sér skyrtuna og stamar: „Hva... hva... hvað viltu mér?“ Komumaður horfði á hann blíðlega og sagði: „Ég ætla að arfleiða þig að skáld- gáfu minni.“ Meira sagði hann ekki og hvarf strax. Siggi litli starði hljóður og skjálf- andi fram í rökkrið, en honum tókst loks að sofna og svaf fram á miðjan dag. Hann vaknaði hress og kátur og mintist draumsins. Meðan hann var að klæða sig, sór hann þess dýran eið, að hann skyldi aldrei kikna undir þeim arfi, sem honum hafði verið gef- inn um nóttina. Þennan sama dag hóf hann að yrkja Bragða-Olvérsrímur. Þá var hann hálfs ellefta árs. Ellefu ára gamall lauk hann þessari rímu, sem var sú fyrsta er hann orti. Pilturinn er ekki hár í loftinu og purpuraskikkja skáld- skaparins hvílir þung á svo grönnum og ungum herðum. Hann er talandi skáld, svo hraðkvæður, að honum er léttara um mál í hendingum en óbundinni ræðu. En þó er hann enn bara breiðfirskur sveitapiltur, sem leikur sér að skeljum. Hann lifir enn í unaði bemskunnar, og hvergi er yndi hennar meira en við Breiðafjörð. Hann er íslenski smalapilturinn, sem situr yfir spöku fé, liggur í víðibrekk- unum með prikið við hlið sér og horf- ir þögull í sólarlagið, þetta breiðfirska sólarlag, sem hann á síðar efitir að yrkja um og minnir hann alltaf á konu, sem greiðir hadd sinn. Sólin klár á hveli heiða hvarma gljár við baugunum. Á sér hár hún er að greiða upp úr bárulaugunum. Þessi bemskuár em sælustu stund- imar í lífi Sigurðar Breiðfjörðs. Þau urðu eins og djúpt, lygnt og sólroðið stöðuvatn í sál hans, hin fríðsæla heimahöfn, er beið hans, hvemig svo sem lífsfleyið hraktist á öldum hinnar rúmhelgu tilvem. Um þau ár orti hann: Fóstra, já, mér féll í lyndi faðmi á að hvílastþín, byggði ég þá með œsku yndi ofursmáu húsin mín. Þess vegna gat Sigurður Breiðfjörð aldrei farið í hundana hið innra með sér, hversu hraklega sem lífið lék hann. Fáa hefur þyngdarlögmál lífsins dregið nær rennusteinunum en Sigurð Breiðfjörð. En í öllum armóðinum mátti jafnan greina manninn, sem borinn var til mikilla óðala. Eftir hinn merkilega viðburð, er Ámi prestur Böðvarsson, birtist hon- um í draumi, er Sigurður litli Eiríks- son í Bíldsey orðinn erfðaprins ís- lensks rímnakveðskapar. Hann er ást- mögur Iðunnar, hinnar ljósu gyðju skáldskaparins, hennar, er geymdi ódáinseplanna og gaf guðunum eilífa æsku. Ungur gekk Sigurður Breið- Qörð óbreyttur riddari í þjónustu þess- arar frúar. Til æviloka átti hann eftir að lofsyngja hana í ótölulegum man- söngvum sinna mörgu rímnaflokka. Ástmeyjum sínum og eiginkonum, varð Sigurður aldrei trúr. En Iðunni vildi hann ekki bregðast, hún var guðstrú hans og himinborin ást. Hana blótaði hann um daga og nætur og á öllum árstíðum, henni þakkaði hann í auðmýkt öll afkvæmi skáldskapar síns, þótt bamalánið væri raunar ekki alltaf mikið. Líó þú niður um Ijósa haf lituð hvita skrúði, kœrust Iðunn, oss þiggaf Alfaðir að brúði. í föðurgarði Sigurðar Eiríkssonar er ekki mikill auður í búi. Heimilið er bláfátækt, eins og flest önnur alþýðu- heimili á þeim ámm. Eiríkur hefur óljósan gmn um, að Siggi litli muni lítt fallinn til þeirrar púlsvinnu, sem var hlutskipti nær allra sveitamanna. Strákurinn má ekki sjá bók, án þess að lesa hana upp til agna. Þess á milli fer hann einforum og horfir dreymn- um augum á hina breiðfirsku fegurð, sem orðin er hluti af honum sjálfum. Já, hann virðist gerður úr fíngerðara Heima er bezt 179

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.