Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1996, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.06.1996, Blaðsíða 7
Ég slapp með 21 mánuð í skóla. Ég byrjaði 10 ára gömul, tók fullnaðarpróf 12 ára, þá var ég búin að vera 8 mánuði í barnaskóla. Svo tók ég landspróf og gagnfræða- próf á tveimur árum í Reykjaskóla. Ég ætlaði að halda áfram, en það var ekki hægt. Ég tók landspróf vegna þess að það gilti í áframhaldandi nám, en aftur á móti var betra að hafa gagnfræðapróf ef maður ætlaði út á vinnu- markaðinn. Ég vildi halda möguleikunum opnum. Faðir minn vann við biffeiðaskoðun, verðlagseftirlit og einnig mikið við viðgerðir ýmis konar. Þar af leiðandi var hann mikið að heiman. Ég var því alltaf heima um sauð- burð á vorin og við heyskap á sumrin. Annars vann ég hér og þar, var í Kaupfélaginu á Blönduósi, í Sláturhús- inu á haustin, á símstöðinni í Bólstaðarhlíð og ýmislegt annað, sem til féll. Við vorum mikið á ferðinni sem krakkar og fórum oft í útreiðartúra. Ég hef alltaf haft gaman af hestum. Þegar við vorum yngri áttum við til að stelast á bak án þess að hafa leyfi eða samþykki eigendanna til þess. Pabbi átti góðan hest, sem var bannaður börnum. Eitt sinn þegar pabbi kom heim þá var ég berbaka á honum og hafði hnýtt upp í hann snærisspotta. Þegar pabbi sá þetta, sagði hann að það væri eins gott að ég hefði leyfi og beisli. Það var ekki alltaf hægt að vita það fyrir í hvaða sveitarfélagi Guðfinna með Þóreyju. Þórey og Sveinbjörg. Það brann 17. maí 1961 og strax þá um sumarið fóru báðar fjölskyldurnar að byggja upp aftur. A meðan á byggingunni stóð héldum við til í samkomuhúsi sveitar- innar, sem er ekki langt frá. Þar var ekkert vatn eða salemi. Við urðum að bera vatnið í fötum úr Sléttánni. Þetta var basl, en það hafðist. Fyrstu vikurnar eftir brunann vorum við systurnar á Auðkúlu, systur mínar hjá Flannesi og Pálínu móður hans, en ég hjá Þorbjörgu og Jónmundi. Mamma meidd- ist á hendi og pabbi þurfti að fara aftur að Reykjaskóla og klára kennsluna, svo það kom í minn hlut að sjá um búið. Það eru um 5 km. milli bæjanna og þá leið fór ég ýmist á gamla Ferguson eða hestum því vegir að vori til voru ekki til að hrópa húrra fyrir á þeim árum. Rúmri viku síðar byrjaði sauðburður og þá tók Hannes á Auðkúlu þessar 6 eða 7 mjólkurkýr sem við vorum með, líka í fóstur, óbeðinn, í viðbót við ærslabelgina þrjá. Þetta var mun betra fyrir mig því að bæði gátu þá stelp- urnar mjólkað kýrnar ef ég var í Stóradal eða þá að Hannes og hans fólk sá um það. Aður hafði ég verið til húsa hjá Hannesi og Pálínu meðan ég gekk í barnaskóla en þá var skólinn á hinum bænum, hjá Þorbjörgu og Jón- mundi. Skólaganga og sveitalíf ! Heima er bezt 203

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.