Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1996, Síða 18

Heima er bezt - 01.06.1996, Síða 18
finna í uppsláttarbókum um Islendinga. Það litla sem ég hef fundið um hana er að mestu í frásögnum um föður hennar og eigin- mann. Mikill munur er á stíl Þóru bókar og vasakversins frá 1800, sem er í sannleika sagt töluvert ruglingslegt og tyrfið á köflum. Eins og gert er í formála vasakvers- ins biður Þóra mikillega af- sökunar á ritverkinu. Hún skrifar: „Ég skal játa það, að bók þessari kann í mörgu tilliti að vera ábótavant, helst að því leyti, sem snertir niðurskipun eíhisins og orðfæri, og afsaka ég hið fyrra með því, að ég ýmsra anna vegna gat ekki samið bókina í einu lagi, heldur varð smátt og smátt að rita hana jafnóðum og hún var prentuð, hinu síðara til af- sökunar get ég þess, að eigi var ætíð auðvelt að velja orð á íslensku til að þýða rétti og krásir útlendra;...“ Eins og þessi orð benda til er tölu- vert af efninu þýtt úr dönskum bók- um og nefnir hún sérstaklega tvær slíkar, „Haandbog for husmödre," sem þá var til þess að gera ný en hún kom út 1853, og „Husmoderen“, enda segir Þóra m.a. að bókin sé til komin: „Þar eð ég hef orðið þess vör, að mörg kona sem séð hefúr danskar matreiðslubækur, hefur girnst að eignast slíka bók á íslensku...“ Að öðru leyti nefnir Þóra sem heimildir til bókar sinnar rit þeirra frægu upplýsingarmanna Eggerts Olafssonar og Ólafs Ólavíusar og það sem að öðru leyti snertir tilbún- ing og meðferð á íslenskum mat seg- ist hún rita eftir þeirri þekkingu og reynslu sem hún hafi besta. Og til að valda engum misskilningi segir hún jafnframt: Þjóðlegt hádegissnarl. Skyr og brauð með kæfu og „ vöðlubjúga. ‘ „Ég veit líka að enginn lítur svo á bók þessa sem ég ætlist til að nokkur brúki það dags daglega sem hún kennir, eins og nú skuli menn fara að „lifa hvern dag í vellystingum prakt- uglega“. Nei! hitt á bókin að segja, hvernig menn eigi að matreiða þegar þeir vilja breyta út af hinu vanalega og hagnýta sem best þau efni sem fyrir hendi eru. Og það vona ég að bókin geti frætt alla um, sem hafa bæði vilja og viðleitni til þess að þurfa ekki ævinlega að höggva í sama farið.“ I bók Þóru er töluvert af sérís- lenskum réttum, t.d. eru þar fyrir- sagnir um íslenska rétti eins og lundabagga, flautir og strjúg, grasa- mjólk, smjör og skyrgerð til dæmis. Þóra þýðir oft afar skemmtilega og eru mörg nýyrði í bók hennar sem betur hefðu náð fótfestu í málinu. Þannig kallar hún ragout „lystar- spað“ sem mér þykir gott nafn. Spaðkjöt var niðurhöggvið kjöt (höggvið í spað) kallað hér í eldri tíð og spaðsúpa hét venjuleg kjötsúpa. Og svo að haldið sé áfram með spað- ið þá kallar Þóra frikkasé „spað- musl,“ rúllupylsur „vöðlubjúgu,“ ís „krapflautir“, frikkadellur „steikta snúða“, fiskrouletter „fiskistranga“, sigtibrauðið „sáldbrauð“ og bolludags- bollurnar heita „langaföstu- snúðar.“ Búðingar heita „býtingar“ í matreiðslubók Þóru, en orðið búðingur sem hér varð svo vanalegt er í vasakveri Mörtu. Töluvert er af áfengis- blöndum í kaflanum um drykki, t.d. púns og toddý af ýmsum gerðum. Þar eru drykkirnir byskup, páfi, kardínáli og prestur, sem eru svipaðrar tegundar eins og nöfnin, í grundvallaratriðum þannig að rauðvín, borgundarvín eða rínar- vín, eru soðin með sykri og ýmis- legu kryddi svo sem appelsínuberki, múskatshnot, kanelberki og negul- nöglum. Ekki ósvipað því sem nú er kallað jólaglögg. Að lokum er hér uppskrifl að jarð- eplaköku handa 5, úr matreiðslubók Þóru. Ég get gefið þessari uppsknft mín bestu meðmæli því að á dögunum var þessi kaka á borðum í kaffistofu Þjóðminjasafnsins, á afmæli Áma Bjömssonar þjóðháttafræðings. Rétt er að taka það ffam að mælieiningin lóð, sem þama er notuð er 20 gr: „Jarðepli, sem búið er að sjóða og flysja deginum áður, skal rífa smátt. 12 eggjablóm skal þeyta með 12 lóð- um af smásteyttu sykri, 3 lóðum af sætum og löku hálfu lóði af bitrum, steyttum möndlum, rifnum berki af tveimur sítrónum og vökva úr þrem- ur, hræra síðan vel saman við þetta þremur fjórðu úr pundi af jarðeplun- um hér um bil hálfa stund, og, að því búnu hvítunni úr eggjunum, sem áður skal vera búið að þeyta. Kökuna skal baka við hægan eld í fyrstu þangað til að hún er búin að lypta sér.“ Ljósm.: Hallgerður Gísladóttir. 214 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.